Hlynur - 15.02.1974, Qupperneq 12
Húsavíkur. Besta færi var og
veðrið eins gott og hægt var að
hugsa sér. Vaðlaheiðin var ófær
og því ekið um Dalsmynni. Veg-
urinn var nýruddur og hefði
mátt ætla að vegruðningsmönn-
um hafi borist spurnir af ferð-
um mínum! Mátulega mikill eða
lítill snjór var á jörðu og mjög
skörp skil í landslaginu. Það er
ekki siður gaman að ferðast að
vetrarlagi ef veður og færð er
við hæfi en á sumrin.
Á Húsavík var fyrst bankað
uppá hjá Heiðari Karlssyni og
hann vísaði veginn til Þórhalls
Björnssonar hjá Mjólkursam-
laginu, sem kom við annan
mann á stofnþingið i Bifröst s.l.
haust, og verið hefur tengiliður
LÍS og starfsfólks KÞ. Klukkan
hálf niu um kvöldið hafði verið
boðaður fundur i stjórnarstofu
kaupfélagsins. Þarna mættu svo
um tuttugu manns, og var ekki
laust við að það færi um mann
í þessu forna höfuðvígi sam-
vinnuhreyfingarinnar. Myndir
af frumherjum úr samvinnusög-
unni héngu á veggjum allt í
kring, og andi þeirra Jakobs
Hálfdánarsonar, Benedikts frá
Auðnum, Péturs frá Gautlöndum
og Sigurðar á Ystafelli gerði
hvert orð mikilvægt, sem þarna
var talað. Vitaskuld varð það
að vera eitthvað gáfulegt innan
um alla þessa gáfuðu Þingey-
inga, lífs og liðna.
Fyrir nokkrum árum var
stofnað starfsmannafélag Kaup-
félags Þingeyinga, en þegar
verslunarmannafélag var stofn-
að á Húsavík féll starfsemi
starfsmannafélagsins niður. Þó
hafa alltaf verið haldnar árs-
hátíðir. Ákveðið var á þessum
fundi að endurvekja félagið og
var kosin fimm manna undir-
búningsnefnd í því skyni. Um-
ræður á fundinum voru f jörugar
eins og Þingeyingum var sæm-
andi. Þegar þetta kemst á prent
verður væntanlega komið aftur
á legg félag samvinnustarfs-
manna á Húsavík og í Þingeyja-
sýslu.
Blönduós
Þriðjudaginn 20. nóvember var
svo haldið af stað til baka, þar
sem ófært var lengra norður til
Kópaskers og Þórshafnar. Það
var skaði að þvi að komast ekki
til þessara staða, sérstaklega
Kópaskers, en fulltrúi þaðan
kom bæði á undirbúningsfund
að stofnun LÍS i maí í fyrra og
svo á stofnþingið á Bifröst. Nú
var næsti áfangastaður á
Blönduósi og þangað komst ég
í tæka tíð. Hafði þar með tekist
að koma á alla þá staði, sem á-
formað var að heimsækja í upp-
hafi. Þar var svo haldinn félags-
fundur um kvöldið og stýrði
honum Grímur Gíslason, for-
maður Starfsmannafélags Kaup-
félags Húnvetninga. Þetta félag
var stofnað 4. mai í fyrra og
sendi síðan fulltrúa bæði á und-
irbúningsfund LÍS og stofnþing-
ið. Var Sigurjón Valdimarsson
fulltrúi á báðum stöðum. Gekk
Slcopmynd úr olíukreppunni,sem sýnir annars vegar iðnrekanda með óseljanlega
bil'i og hins vegar Araba með óselda olíu.
starfsmannafélagið i LÍS án fyr-
irvara. Ekki var fjölmenni á
þessum félagsfundi en umræðui
góðar, eins og alltaf áður. Mikill
hugur er i félagsmönnum að
eignast hús að Hreðavatni, og
verða þeir örugglega með þar.
Þá eru uppi óskir um það að
eignast fulltrúa í stjórnum
samvinnufélaganna í A-Húna-
vatnssýslu. Félagar í starfs-
mannafélaginu eru nú 32.
Miðvikudaginn 21. nóvember
var svo haldið aftur til Reykja-
víkur og komið þangað að kvöldi
dags. Tíu dagar voru að baki með
samvinnustarfsmönnum á Vest-
ur- og Norðurlandi. Ég kom
bjartsýnni til baka heldur en
þegar ég lagði af stað, og ég
hafði það á tilfinningunni, að
þetta væri kannski til einhvers,
en ekki bara tilgangslaus leit
eftir vindi.
Nú var að hefjast handa að
undirbúningi næstu ferðar. Að
þessu sinni var Austurland í
sigtinu. Gerð var áætlun um að
fljúga til Vopnafjarðar á næsta
mánudegi og til Egilsstaða á
þriðjudegi. Aka síðan niður á
firði á miðvikudag og fimmtu-
dag, og fljúga til Hornafjarðar
á föstudag og halda til Revkja-
víkur á laugardag.
Hvolsvöllur
Áður en haldið var i þessa
ferð, þá skutumst við Baldvin
Albertsson, framkvæmdastíórn-
armaður í L-ÍS til Hvolsvallar, til
að kynna landssambandið og
ræða möguleika á stofnun
starfsmannafélags þar. Við fór-
um þangað sunnudagskvöldið
fyrir austurferðina, 25. nóvem-
ber. Þetta var óformlegur rabb-
fundur og sá Ágúst Ingi Ólafs-
son um undirbúning hans. Var
ákveðið á þessum fundi að stofna
starfsmannafélag starfsmanna
Kaupfélags Rangæinga fyrir
n. k. áramót og var svo gert.
í næstu grein verður sagt frá
ferðalagi um Austurland og við-
ar.
12 HLYNUR