Hlynur - 15.05.1974, Side 2
Uppbygging Kaupfélags
Vestmannaeyja í
fullum gangi
Viðtal við Georg Hermannsson
kaupfélagsstjóra
Fyrir rúmlega hálfu öðru ári
(8. tbl. 1972) birtist hér í blaðinu
ýtarlegt viðtal við Guðna B.
Guðnason þáverandi kaupfélags-
stjóra í Vestmannaeyjum, þar
sem hann rakti starfsemi kaup-
félagsins þar og greip á ýmsum
þáttum varðandi æskilegar end-
urbætur á verzluninni í Eyjum.
Á þeim tíma, sem síðan er liðinn,
hafa gerzt þeir atburðir þar, sem
ekki er þörf á að rekja hér, og
er þar átt við eldgosið í Heimaey
og öll þau ósköp, sem í kjölfar
þess fylgdu.
Núna er eldgosið hins vegar
afstaðið, meirihluti Eyjabúa
kominn heim aftur, mestur hluti
bæjarins hreinsaður af vikri og
gjalli og uppbyggingin þar í
fullum gangi. Við Kaupfélagi
Vestmannaeyja hefur tekið ung-
ur og ötull kaupfélagsstjóri, Ge-
org Hermannsson áður verzlun-
arstjóri og búðaeftirlitsmaður
hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, og
um miðjan maí brugðum við
okkur til Eyja og áttum við hann
viðtal um endurreisn kaupfé-
lagsins. Þess má geta í framhjá-
hlaupi, að undirritaður fékk i
leiðinni að kynnast áþreifanlega
öryggisleysinu, sem enn ríkir i
samgöngumálum Eyjabúa, því
að vegna óhagstæðrar vindáttar
féll niður flugferðin, sem hann
ætlaði burt með, og kostaði það
óvænta næturgistingu þar úti,
en til allrar hamingju við frá-
fíeorg Ilermannsson.
bært atlæti. En viðtalið við Ge-
org hófum við með því að biðja
hann um að segja stuttlega frá
þeirri eyðileggingu, sem varð i
gosinu á eigum félagsins.
— Fyrir gos rak félagið fjórar
matvörubúðir, svarar Georg —
að Bárugötu 7, Heimagötu 37,
Hólagötu 28 og Kirkjuvegi 21,
vefnaðarvöruverzlun og búsá-
haldaverzlun að Bárugötu 6,
byggingavöru- og timbursölu við
Flatir og auk þess kjötvinnslu
að Bárugötu 7. Þetta lokaðist
allt, og síðan fór húsið við
Heimagötu, þar sem ein verzlun-
in var, nánast á kaf í vikur og
er nú í hraunjaörinum og þannig
utangarðs í bænum. Af sömu
ástæðu er verzlunin við Kirkju-
veg nú staðsett þannig, að þar
er ekki lengur grundvöllur fyrir
matvöruverzlun, þvi að hún er
nú aðeins örskammt frá hraun-
jaðrinum. Þegar gosið hófst,
hraktist kaupfélagið í land með
megnið af vörubirgðum sínum og
stóran hluta af verzlunaráhöld-
um og innréttingum. Skömmu
síðar var töluvert mikið af vöru-
lager félagsins selt á útsölu í
Reykjavík, en mjög fljótlega, eða
seint í febrúar, opnaði félagið
hins vegar aftur verzlun sína við
Hólagötu hér í Eyjum. Þetta var
gert fyrir beiðni stjórnar Við-
lagasjóðs og við ákaflega erfiðar
aðstæður, að ekki sé meira sagt,
ekki sízt að því er snerti það að
fá fólk til starfa þar. Þessi verzl-
un var svo rekin samfellt allan
þann tíma sem gosið stóð og
raunar talsvert lengur, og sá
Garðar Arason starfsmaður fé-
lagsins um rekstur hennar allan
tímann. Þetta var gert vegna
þess, að til kaupfélagsins var
leitað um að veita þessa þjón-
ustu, og hér sannaðist það eins
og oft áður, að það er löngum
kaupfélagið, sem síðast flýr.
Þessi verzlun var svo rekin með
óskaplegum erfiðleikum og tapi
mánuðum saman, fyrst og
fremst vegna þess, að hér var
tiltölulega lítið af fólki og mest
karlmenn, sem unnu myrkranna
á milli og voru i fæði hjá mötu-
neyti Viðlagasjóðs, en leituðu að-
eins til verzlunarinnar um kaup
á ýmsum smávægilegri nauð-
synjavörum. Þessari þjónustu
hafði kaupfélagið sem sagt hald-
ið uppi hér í marga mánuði, þeg-
ar fólki fór að fjölga hér aftur
s.l. haust, en þá fyrst fóru kaup-
menn að hugsa sér til hreyfings.
Þegar ég kom hingað upp úr síð-
ustu áramótum, þá voru allar
matvöruverzlanir, sem hér voru
starfandi fyrir gosið, farnar í
gang eða i þann veginn að
byrja, auk ýmissa annarra verzl-
2 HLYNUR