Hlynur - 15.05.1974, Blaðsíða 9

Hlynur - 15.05.1974, Blaðsíða 9
land Products, Inc., sem eins og kunnugt er starfar í Bandarikj- unum og er í eigu Sambandsins og um 20 frystihúsa innan SAFF. I skýrslum stjórnarformanns, Erlendar Einarssonar forstjóra, °g framkvæmdastjóra, Othars Hanssonar, kom m. a. fram, að afkoma fyrirtækisins undanfar- iS hefur verið allgóð. Einnig Föstudaginn 26. april tók Kaupfélag Héraðsbúa í notkun nýtt verzlunarhúsnæði á Egils- stöðum. Bygging hússins var hafin haustið 1972 og voru þá sökklar þess steyptir. Vorið 1973 var síðan hafizt handa um að steypa húsið upp, og var það fokhelt um haustið það ár. í vetur hefur verið unnið að inn- réttingum í húsinu. Húsið er 810 fermetrar að stærð, og er verzlunin á 720 fer- metra gólffleti í einum sal. Auk verzlunarrýmisins eru í húsinu frysti- og kæligeymslur, kjöt- skurðarherbergi og lager. Þarna verður verzlað með matvörur, vefnaðarvörur, búsáhöld og gjafavörur, leikföng, sportvörur og heimilistæki, auk þess sem afgreiðsla er í búðinni fyrir bækur, blöð og ritföng, tóbak, snyrtivörur og sælgæti. Bvggingin er teiknuð af Teikni- stofu Sambandsins, og arkitekt hennar er Hákon Hertervig. Veggir eru steinsteyptir, en loft- ið borið uppi af límtrjám og pappaklætt. Á langvegg þess að utan mun Hringur Jóhannesson gera veggskreytingu, og verður því verki lokið i sumar. Trésmiðja Kaupfélags Héraðs- búa hefur haft umsjón með framkvæmdum við bygginguna, og er yfirsmiður Völundur Jó- ræddu þeir nokkuð um söluhorf- urnar þar vestra fyrir fram- leiðslu fyrirtækisins, og spunn- ust um þær talsverðar umræður. í stjórn Iceland Products voru kosnir þeir Erlendur Einarsson forstjóri, formaður, Guðjón B. Ólafsson frkvstj., Marteinn Frið- riksson frkvstj. og Mr. Boswell, lögfræðingur í Bandaríkjunum. hannesson, en Hermann Eiriks- son trésmiður hefur lengst af unnið að smíðinni sjálfri. Raflagnir annaðist Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum, upp- setningu kæli- og frystitækja Gísli Ágústsson, Reykjavík, pípu- lagnir Jón Ásgeir Jónsson, Egils- stöðum, og málningu Ingvar Á. Guðmundsson, Egilsstöðum. Múr- verk annaðist Brúnás hf., Egils- stöðum, undir stjórn Benedikts Jónassonar. Innréttingar voru keyptar af norska firmanu Legra A/S í Þrándheimi, og sáu Norðmenn um uppsetningu þeirra, en Sig- urður Jónsson verzlunarráðu- nautur hjá Skipulagsdeild Sam- bandsins hafði umsjón með upp- röðun og skipulagi. Frysti- og kæliklefar eru enskir af gerðinni Foster, en mjólkur- kælir og frysti- og kælitæki í búð eiu frá Sviþjóð, frá fyrir- tækjunum Gustavsberg og Levin. Verzlunarstjóri í þessari verzl- un er Jón Kristjánsson. í framhaldi af þessari breyt- ingu er fyriihugað að endur- skipuleggja lagerhúsnæði kaup- félagsins, þar sem gamla verzl- unin var. Ætlunin er, að þar verði járnvörudeild og pantana- afgreiðsla, auk lagerhúsnæðis. Það húsnæði er áfast nýja hús- inu, og er grunnflötur allrar byggingarinnar 1.450 fermetrar. Kaupfélag Héraðsbúa byggði fyrst verzlunarhús á Egilsstöðum árið 1946, og er það hús enn í notkun sem skrifstofuhúsnæði og verzlunarhúsnæði fyrir járn- vörudeild. Verzlunin flyzt nú úr húsinu, og verður neðri hæðin að hluta notuð sem aðstaða fyrir starfsfólk. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Héraðsbúa er Þorsteinn Sveins- son. (Frá Kf. Héraðsbúa.) Verzlun Kf lléraðsbúa að utan, myndir innan úr henni eru á næstu bls. Ný verzlun Kf. Héraðs- búa á Egilsstöðum HLYNUR 9

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.