Hlynur - 15.05.1974, Side 10
Aðalfundir
tryggingafélaganna
Aðalfundir Samvinnutrygg-
inga, Líftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga hf. voru
haldnir að Hótel Sögu föstudag-
inn 10. maí. Fundina sátu 23
fulltrúar víðs vegar að af land-
inu, auk stjórnar félaganna,
framkvæmdastjóra og nokkurra
starfsmanna. í upphafi fund-
anna minntist formaður stjórn-
arinnar, Erlendur Einarsson,
tveggja manna, sem átt höfðu
sæti í fulltrúaráði félaganna og
látizt höfðu síðan siðustu aðal-
fundir voru haldnir. en það
voru þeir Halldór Ásgrímsson
fyrrv. kfstj. og alþm. og Jónas
Jóhannesson tryggingafulltrúi.
Þá bauð formaðurinn sérstak-
lega velkomna til fundarins tvo
fulltrúa starfsmanna félaganna,
sem nú sátu fundina í fyrsta
sinn. Tryggingafélög samvinnu-
manna munu vera þau einu hér
á landi, sem hafa á aðalfundum
sínum sérstaka fulltrúa úr hópi
starfsmanna sinna.
Fundarstjóri var kjörinn Ól-
afur Jensson verkfr. Kópavogi og
fundarritarar þeir Sverrir Þór,
Reykjavík, Jóhann Björnsson,
Vestmannaeyjum, og Grétar
Björnsson, Hvolsvelli.
Rekstur og afkoma
Erlendur Einarsson forstjóri
flutti skýrslu stjórnarinnar og
Ásgeir Magnússon frkvstj. skýrði
reikninga félaganna. Þar kom
m. a. fram, að heildariðgjalda-
tekjur Samvinnutrygginga námu
661,8 milj. kr. á árinu 1973, en
það var 27. reikningsár félags-
ins. Höfðu iðgjaldatekjurnar
aukizt um 58,7 milj. kr. eða tæp
10% frá fyrra ári, en þá ber þess
að gæta, að vegna breyttra
gjalddaga ábyrgðartrygginga
bifreiða voru bókfærð iðgjöld
þessara trygginga á árinu 1973
aðeins fyrir 10 mánuði á móti
16 mánaða iðgjöldum, sem bók-
færð voru árið 1972. Iðgjalds-
taxtar fyrir brunatryggingar
fasteigna voru lækkaðar um
25% við endurnýjun þeirra í
október 1973.
Heildariðgjaldatekjur Líftrygg-
ingafélagsins Andvöku námu
15,6 milj. kr. og höfðu aukizt um
3,9 milj. eða 32,8% frá fyrra ári.
Andvaka varð 25 ára 9. maí, og
i tilefni af því ákvað stjórn fé-
Verzlunin á Egilsstöðum (sjá bls. 9) að innan. Se?n sjá má er kún rúmgóð og
vöruval fjölbreytt.
10 HLYNUR