Hlynur - 15.05.1974, Side 7
með tvær hendur tómar eða því
sem næst, því að hér var aðeins
vörulager, sem þurfti að eyða
mjög mikilli vinnu í að gera sölu-
hæfan. Þá hefur orðið að greiða
allan viðgerðarkostnað hér út úr
rekstrinum jafnóðum, því að
bætur frá Viðlagasjóði hafa ekki
borizt hingað enn. Þess vegna
hefur það skapað mikla erfið-
leika, hvað þessi byrjun hér hef-
ur verið fjárfrek, bæði varðandi
kostnað við viðgerðir og við að
birgja búðirnar upp af vörum.
— En hvað viltu segja um
vöruaðdrætti hingað?
— Flutningaþörfin hingað
hefur aukizt gífurlega og Herj-
olfur annar henni engan veginn
lengur, enda er hann orðinn
gamalt skip. Aðrar samgöngur
við land eru engar nema flugið,
°g það getur verið stopult. Mér
bregður því mikið við hér frá
Því sem ég átti að venjast í
Borgarnesi, þar sem vörurnar
komu beint af bílum inn í búð-
irnar og voru þá aðeins hand-
fjatlaðar á tveimur stöðum
a leiðinni. Þó að meisaflutn-
mgar hafi skapað rnikil þægindi
1 sambandi við vörusendingar
hingað, fá vörurnar samt sem
aður margfalt verri meðferð en
með bílum, auk þess sem allur
flutningskostnaður hingað er
margfaldur á við það sem ég hef
átt að venjast, eða t. d. ríflega
helmingi hærri með skipi hing-
að en með bíl upp i Borgarnes.
Og ef flutt er með flugi, þá gerir
flutningskostnaður heldur meira
en að tvöfaldast frá því sem
hann er með skipi. Það eru ekki
sízt atriði á borð við þetta, sem
valda aðstöðumuninum hjá því
fólki, sem býr úti í dreifbýlinu,
frá því sem Reykvíkingar eiga
að venjast.
HLYNUR þakkar Georg Her-
mannssyni fyrir samtalið. - e.
*
FornihvaBisur 28
Veitingaskálinn Brú
Veitingaskálinn Brú, sem er á
vegamótum Norðurlandsvegar og
Strandavegar hjá símstöðinni
Brú í Hrútafirði, er starfræktur
yfir sumarmánuðina, júní-sept-
ember. Opnað var hinn 31. maí
s.l., og er þetta þriðja sumarið,
sem hann er rekinn, en áður var
þarna lítil ferðamannaverzlun.
Kaupfélag Hrútfirðinga á Borð-
eyri rekur skálann. Þar vinna
níu manns yfir hásumarið, en
nokkru færri í júní og septem-
ber. í sumar sér Guðný Þor-
steinsdóttir um hinn daglega
rekstur, og matseld annast Þór-
halla Snæþórsdóttir matreiðslu-
maður.
Mikil viðskipti urðu strax við
veitingaskálann sumarið 1972,
og jukust þau verulega s.l. sum-
ar. Höfuðáherzla er lögð á
hreinlæti í hvívetna, og hefur
sú viðleitni borið góðan árangur
og vakið eftirtekt ókunnugra.
Umgengni gesta er í bezta lagi,
enda var húsið strax vel úr garði
gert og vel búið tækjum.
Sæti eru fyrir 50 manns i einu.
Þá eru þarna til sölu ýmis konar
vörur fyrir ferðafólk, m. a. til
uppfyllingar í nestið, og viðlegu-
útbúnaður er til að jafnaði, svo
sem tjöld, svefnpokar og hitun-
artæki. Gas er selt á kútum og
fyllt á gashylki fólks, og líka er
Esso-bensín og olíur selt á Brú.
Þvottaplan er einnig á staðn-
um, sem er mikið notað, en af-
greiðslutími skálans er kl. 9—
23.30.
Vitað er, að fólk þarf í sumum
tilvikum á meiri þjónustu að
halda en þarna er að fá, sérstak-
lega með tilliti til bíla sinna, og
er reynt að leiðbeina fólki og
aðstoða það eftir föngum. Bif-
reiðaverkstæði er á Borðeyri,
sem er í 10 km fjarlægð frá Brú,
og póstur og sími er í næsta ná-
grenni, þar sem símstöðin Brú
er.
Mjög mikil umferð er orðin
um Strandaveginn, bæði fólk á
leið norður Strandir og jafnvel
ekki síður um Laxárdalsheiði á
leið til og frá Vestfjörðum um
Dali og Snæfellsnes. Að vísu er
fremur lítið gert fyrir veginn
yfir heiðina, en hann er fær öll-
um bílum, ef veðrátta er ekki
mjög votviðrasöm. Á þessari leið
er eftir að brúa eina á, en hún
er að jafnaði mjög lítil. Vega-
lengdin yfir Laxárdalsheiði er
um 15 km á milli bæja.
HI.YNUH 7