Hlynur - 15.05.1974, Side 3

Hlynur - 15.05.1974, Side 3
llólagata 28, þar sem Kf. Vestmanna- eyja rak verzlun mestallan gostím- ann, ana, en kaupféiagið var einungis með þessa einu búð opna. Það má geta þess, að hér eru reknar í dag fyiir utan verzlanir kaup- félagsins fimm matvöruverzlan- ir, auk a. m. k. fimm söluturna, sem allir verzla með takmarkaö úrval af matvörum, og þar fyrir utan eru svo talsvert margar sérvöruverzlanir af ýmsu tagi. — En svo hefur verið tekið hér til hendinni síðustu mánuðina, er ekki svo? — Þegar ég kom hingað eftir áramótin var verzlunin við Hóla- götu orðin mjög illa farin og af skiljanlegum ástæðum búið að ofbjóða þar bæði húsnæði og kælitækjum. Auk þess hafði ver- ið opnuð hér fyrir jólin smá- vægileg sala á búsáhöldum i hluta af eldri búsáhaldaverzlun félagsins, en henni var lokað aftur um áramótin. Það sem síð- an hefur gerzt er í stuttu máli það, að laugardaginn 2. febrúar var opnaður vörumarkaður á- samt bátasölu að Bárugötu 7, og samtímis því var verzluninni við Hólagötu lokað. Síðan tókum við hinn 17. febrúar við timbursölu FORSIÐAN: Veggskrcyting hjá Kaupf. Vestmannaeyja, gerð af Guðna Iler- mansen listmálara. félagsins af Viðlagasjóði, en hann hafði fengið húsnæði og aðstöðu hennar til afnota og haft þar aðalbækistöð sina í sambandi við björgun fasteigna hér í Eyjum. Hinn 15. marz opn- uðum við siðan vefnaðarvöru- verzlunina að nýju, og núna er verið að leggja síðustu hönd á lagfæringu búsáhaldaverzlunar- innar og stendur til að opna hana nálægt 20. maí. í framhaldi af því er síðan áætlað að opna aftur matvöruverzlunina við Hólagötu í júní, væntanlega með kjörbúðarsniði. Loks er fyrirhug- að að fara aftur af stað með kjötvinnslu félagsins, en það verður þó i smærri stíl en áður var. Eins og gefur að skilja hef- ur það kostað mikla vinnu og fyrirhöfn að koma þessari starf- semi af stað aftur, en i því sam- bandi má geta þess, að allar lag- færingar og viðgerðir á húsnæði félagsins hafa annazt þeir Sig- urður Sigurðsson og Kristján Sigurðsson frá Hvolsvelli, og þeir hafa unnið það verk með hinni mestu prýði. —■ Nú byggist rekstur Kaup- félags Vestmannaeyja eingöngu á smásöluverzlun, sem hefur eins og allir vita átt erfitt uppdráttar síðustu árin. Verður ekki erfitt að reisa rekstur félagsins við í allri þeirri samkeppni, sem þú nefndir áðan? — Það er rétt, að rekstur fé- lagsins er eingöngu smásölu- veizlun, sem hefur gengið mis- jafnlega hér eins og annars stað- ar, og sérstaklega voru tvö sein- ustu árin fyrir gos erfið hér hjá félaginu. Á hinn bóginn er það líka augljóst, að það eru einmitt smáar verzlanir, sem eru yfirleitt alls staðar að leggja upp laup- ana, og þarf reyndar ekki að líta lengra en til Reykjavíkur til að sjá, að þar er kaupmaður- inn á horninu á stöðugu undan- haldi. Það er helzt til marks um það, að þar hafa síðustu rnánuð- ina verið þetta 40—50 verzlanir fáanlegar til sölu eða leigu. Sama þróun hlýtur að verða hér, enda er það skoðun mín, að hér í Eyjum séu nú allt of margar verzlanir. En áður en hins vegar er hægt að fara að gera raun- hæfar frambúðaráætlanir um breytingar á rekstri félagsins, þá þarf að koma endanlega i ljós, hvernig hagur þess stendur eftir það áfall, sem það varð fyrir í sambandi við gosið. Þrátt Garðar Arason við verzlunarreksturinn meðan gosið stóð yfir. Strókurinn í baksýn. HLYNUR 3

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.