Hlynur - 15.05.1974, Side 16

Hlynur - 15.05.1974, Side 16
Samvinnufélög bænda í Frakklandi i örum vexti Franskur bóndabœr. Samvinnufélögin í franska landbúnaðinum hafa eflzt mjög ört undanfarið. Meginþátturinn í starfi þeirra um mörg ár hef- ur verið kornsala, og þar hafa þau nú um 70% markaðshlut- fall, en á sviði mjólkursölu hafa þau líka tekið drjúgan þátt og hafa þar nú um 50% af sölunni. Á öðrum sviðum, sem þau hafa fyrst nýlega hafið starfsemi á, hefur árangurinn lika orðið góður. Þetta á m. a. við um grænmetisræktun, þar sem 40% af heildarsölunni er nú í hönd- um samvinnufélaga, og kjötiðn- aðinn, þar sem þau eru með 35% markaðshlutfall. Landbúnaðarsamvinnuhreyf- ingin í Frakklandi samanstend- ur nú af um 21.000 samvinnufé- lögum af ýmsum gerðum. Þar af eru um 5.000 sölufélög bænda, sem m. a. sjá um að sækja af- urðirnar heim á bæina, flokka þær, setja í umbúðir og selja. Meðal þessara 5.000 félaga eru bæði bein framleiðendafélög, heildsölusamtök, jafnt fyrir einstök landsvæði sem Frakk- land í heild, og auk þess all- mörg dótturfyrirtæki þessara félaga. Við þetta bætast svo 13.000 ræktunarsambönd, 1.200 rekstr- arfélög (t. d. samvinnukúabú eða vínræktarfélög á samvinnu- grundvelli), 60 nautgriparæktar- félög, 1.400 ostabú og auk þess allmikill fjöldi af ýmis konar þjónustufélögum. í sölufélögun- um 5.000 eru um 80% allra franskra bænda félagsmenn, og í þjónustu þeirra eru um 100.000 starfsmenn. Samvinnufélögin hafa lagt á það mikla áherzlu undanfarið að fylgjast með framþróuninni og auka markaðshlutfall sitt. Sér- stök áherzla hefur þó verið lögð á að auka og bæta landbúnað- arframleiðsluna á öllum sviðum og samræma útlit hennar og gæði. Þetta hefur reynzt sér- lega þýðingarmikið, vegna þess að auglýsingaherferðir í hljóð- varpi og sjónvarpi fyrir ein- stökum vörumerkjum hafa reynzt sérstaklega árangurs- ríkar í þessu sambandi. Á sama hátt reyna félögin einnig að ná áhrifum í útflutn- ingi landbúnaðarvara. Þetta gerist m. a. með samstarfi við erlend samvinnusamtök, og jafnvel með því að stofna til samsteypufyrirtækja með þess- um aðilum. Líka hefur verið farið inn á þá braut að stofna dótturfyrirtæki í öðrum löndum, og er þeirri aðferð einkum beitt innan Efnahagsbandalagsins. Að því er varðar skipulags- málin, þá er þróunin svipuð og í öðrum Evrópulöndum, því að félög eru sameinuð með það að markmiði að skapa einingar, sem séu nægilega stórar til að geta haft áhrif jafnt á heima- markaði sem á erlendum mörk- uðum. Þannig eru þrír af fjór- um stærstu útflutningsaðilum Frakklands á matvælum sam- vinnufélög, en hin stóru og sam- keppnishæfu samtök á sölusvið- inu hafa fyrst orðið að veru- leika á síðustu árum, þegar menn hafa farið að skipuleggja fjárfestingar félaganna í heild. Framhald á bls. 15. H L Y N U R Blað um samvinnumál 5. tbl. 22. árg. maí 1974 Hlynur er gefinn út af Sambandi ísl. samvinnufélaga, Landssambandi ísl. samvinnustarfsmanna og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjórar eru Sigurður A. Magnússon (ábm.) og Eysteinn Sigurðsson. Auk þeirra eru í ritnefnd Sigurður Jónsson og Gunnar Sveinsson. Ritstjórn og afgreiðsla eru hjá Fræosludeild Sambandsins, Ármúla 3, Reykjavik. Verð kr. 275.00 árgangurlnn. Kemur út mán- aðarlega. — Prentun: Prentsmiðjan Edda hf. 16 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.