Hlynur - 15.05.1974, Side 5

Hlynur - 15.05.1974, Side 5
Til vinstri er Bárugata 7, þar sem Kf. Vestmannaeyja hefur nú opnað vörumarkað. Til hægri er Bárugata 6, þar sem vefnaðarvöru- og búsáhaldaverzlanir hafa nú verið opnaðar, en skrifstofur félagsins eru á efri hœðinni. — En nú hafið þið þegar farið af stað með verzlun með vöru- markaðssniði. Er það öruggt, að raunverulegur grundvöllur sé hér fyrir slíka verzlun? — Þetta er einmitt atriði, sem ég tók til sérstakrar athugunar, þegar ég kom hingað, og þá afl- aði ég mér allra fáanlegra upp- lýsinga um matvöruverzlunina hér og gerði á þeim grundvelli rekstraráætlun fyrir vörumarkað hér. íbúafjöldinn þá var um 2.500 manns, og miðað við með- alneyzlu á íbúa samkvæmt verð- lagi 1973 af þeim vörum, sem við verzlum með, þá reiknaði ég með 45 þúsund krónum á hvern íbúa. Það gefur þá útkomu, að árs- neyzla þessara 2.500 manna af vörumarkaðsvörunum væri ekki nema um 112.5 miljónir króna, og samkvæmt útreikningum mínum sýndist mér, að vöru- markaður hér þyrfti að ná um 40 miljón króna árssölu til að standa undir sér, eða með öðr- um orðum að hann yrði að ná til sin allverulegum hluta af þessari verzlun. Jafnframt þessu tók ég það inn í myndina, að fólki hér myndi fjölga og gerði ráð fyrir, að hér yrðu um 3.000 manns í byrjun maí, sem hefur staðizt, og um 3.500 manns næsta haust, en slík fjölgun hækkar vitaskuld upphæð neyzlunnar og eykur möguleika þessarar verzl- unar. Samkvæmt þessum athug- unum mínum leit þetta því alls ekki illa út, og það varð enn til að styrkja það, að lauslega áætl- að sýndist mér einnig, að mark- aðshlutfall kaupfélagsins hér árið 1972 myndi samkvæmt þess- um neyzlutölum mínum hafa verið um 30% í öllum fjórum matvöruverzlunum þess saman- lögðum. Hins vegar má geta þess í sambandi við þetta, að miðað við söluskattskil mun markaðs- hlutfall kaupfélagsins hafa legið nærri 50%, að því er mér er sagt. — Nú eru verzlanir með vöru- markaðssniði tiltölulega ný- komnar til sögunnar hér. Þú myndir kannski útskýra það dá- lítið nánar, að hvaða leyti þessi verzlun ykkar er frábrugðin því, sem við höfum átt að venjast. >— Þetta byggist meðal annars að verulegu leyti á því, að bíla- eign hér í Vestmannaeyjum hef- ur á sama hátt og annars staðar á landinu aukizt mikið og fólk notar bíla sína meir við innkaup en áður var, og kaupir þá sjaldn- ar inn og meira í einu. Sömu- leiðis byggist þessi vörumarkað- ur eins og aðrir á því, að fólk sæki hann sem víðast að og kaupi í verulegu magni í einu. Þá veitum við ákveðinn afslátt þarna frá lögleyfðri álagningu, þannig að vöruverð er á flestum vörum nálægt 10% undir venju- legu búðarverði, og auk þess er miðað við að verzla sem mest við Birgðastöð Samþandsins og hag- nýta þá þjónustu hennar, að hún reiknar út smásöluverðið fyrir okkur eftir þessu prógrami. Til þess að þetta sé hægt verðum við líka að ná niður launakostn- aðinum, og það er ekki hægt nema með því að skerða þjón- ustuna. Það gerum við m. a. með styttum opnunartíma, en vöru- markaðurinn er opinn kl. 10— 12.30 og 15—18 í fimm daga vik- unnar og auk þess fram til kl. 22 á föstudögum, en lokað á laugardögum. Sömuleiðis spörum við i innréttingum og setjum vörurnar fram í búðina í um- búðakössunum, sem þær berast okkur í. Auk þess verður að ná miklum veltuhraða, eða velta birgðunum ekki sjaldnar en tvisvar og hálfu sinni í mánuði. Þá pakkar fólkið sjálft vörum sínum við kassana, við seljum eingöngu gegn staðgreiðslu, af- greiðum engar símapantanir, sendum ekki heim annað en það sem fólk hefur sjálft tekið til í búðinni og greitt þar, og þá gegn 100 kr. heimsendingargjaldi, og auk þess leggjum við ekki til um- búðir aðrar en bréfpoka, og svo pappakassa, ef til eru. HLVNUR 5

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.