Hlynur - 15.02.1975, Page 4
Happaskipið
HELGAFELL
Ljósin spegluðu sig í gruggugri
Sundahöfninni þegar við gengum
um borð í Helgafellið. Mannskap-
urinn var að gera klárt fyrir brott-
för og gaf þessum ólánlegu land-
kröbbum hornauga:
— Nei, komið þið blessaðir strák-
ar og veikomnir um borð, þessi
kunnuglega rödd kom úr barka
Eiríks Eiríkssonar, sem kom skæl-
brosandi á móti okkur. Víkingur-
inn var hann kallaður í skóla og
vasklegur er hann í fasi, og ekki
síður traustur félagi.
Eiríkur býður okkur til klefa
síns og við látum fara vel um okk-
ur.
— Eiríkur, nú útskrifast þú frá
Samvinnuskólanum vorið 1962,
beið þín þá ekki trygg og notaleg
skrifstofa?
— Jú, blessaður vertu, nóg er til
af stólpm og skrifborðum. En mig
langaði bara ekki til að sitja á
rassinum yfir einhverju pappírs-
rusli. Ég kann alltaf betur við mig
þar sem hlutirnir eru að gerast.
— Hvenær byrjaðu þá til sjós?
— Nú, ég fer á Helgafellið árið
1964 og hef verið hér síðan, nema
tvö ár sem ég var í landi og var
þá verkstjóri hjá Togaraútgerðinni
En einhvern veginn er það þann-
ig, að mann langar alltaf á sjóinn
aftur. Það er frelsið, sjáið þið, og,
ja við getum sagt hjartaslög lífs-
ins, ha.
— En er þetta ekki erfið vinna?
— Erfið vinna! Ég held nú síð-
ur. Sko, skip er heimur út af fyrir
sig og hér er þessum 24 stundum
ekki skipt á ákveðinn hátt í vinnu,
skemmtanir og svefn. Þú ert á vakt
á ýmsum tímum sólarhringsins og
þá er að passa sitt verk vel, en að
öðru ieyti er þetta bara leikur.
Maður er laus við öll þessi bönd
sem eru á manni í landi. Nú, og
svo verður sumarið miklu lengra.
Það er eiginlega aldrei vetur um
borð Það er helst þegar við erum
að koma heim og nálgumst ,.Grjót-
hólmann" eins og við köllum sker-
ið, þið vitið hvað ég meina, að við
verðum varir við veturinn.
— Nú en hvað gerið þið þá i
tómstundum ykkar?
— Það er alltaf nóg að gera. Við
lesum mikið, það eru um borð
bækur frá Borgarbókasafninu sem
endurnýjaðar eru fyrir hvern túr
og við lesum mun meira en í landi.
Svo er spilað og teflt Líka höf-
um við safnað flöskum og kaup-
um fyrir andvirðið kvikmyndir, en
það eru mjög góð sýningartæki um
borð
— Og hvaða myndir kaupið þið
svo?
— Hérna strákar mínir, hvað
haldið þið, að sjóari kaupi? En ég
segi auðvitað ekki, að það sé ekki
til hnífs og skeiðar í menningar-
neyslu. Heyrðu, eigum við bara
ekki að segja að myndasafnið um
borð sé mjög alhliða.
— Jú, eigum við bara ekki að
segja það. En er stéttaskipting
mikil um borð?
Nei, alls ekki. Að visu erum við
með tvo matsali og annan nota
frekar þeir eldri og i þeirra hópi
eru náttúrlega flestir yfirmenn.
Við þessir yngri viljum heldur
vera út af fyrir okkur og ræðum
þá létt. Það eru sko vinsælir menn
TíÖindamaOur Hlyns, GuOmundur R. Jóhannsson ræOir létt viO Eirík
Eiríksson, sem er tU vinstri.
4 HLYNUR