Hlynur - 15.02.1975, Blaðsíða 9
Frá húsmœðraviku að Bifröst vorið 1969. Húsmæðravikurnar hafa verið einn vinsælasti þátturinn l félags-
°Q frœðslustarfi samvinnufélaganna.
— Er farið að panta vikur í sum-
ar?
— Það eru ýmsir aðilar farnir
að spyrjast fyrir um þetta. Tak-
markið verður þó fyrst og fremst
að samvinnufólkið, félagsfólkið og
starfsmennirnir sitji fyrir. Lands-
samband ísl. samvinnustarfsmanna
hefur tekið að sér að taka við um-
soknum frá samvinnustarfsmönn-
u,m fyrir þrjár vikur. Ein í byrjun
Júní, önnur um mánaðarmótin júlí
ágúst og &ú þriðja i ágústlok.
Þá hefur Nemendasamband Sam-
vinnuskólans tekið að sér að aug-
lýsa eina viku í byrjun ágúst fyrir
samvinnuskólanemendur. Norræn-
*r samvinnustarfmenn verða svo í
júnílok og stórir starfshópar eins
°S til dæmis starfsmenn verk-
smiðja Sambandsins á Akureyri
hafa mikinn áhuga á orlofi á Bif-
röst. Þá vonumst við til iþess, að
fslagsmennirnir í kaupfélögunum
uotfæri sér þetta og kaupfélögin
hafi öfluga forgöngu um að kynna
Þeim þessa nýju tilhögun.
Liklegt er, að minna verði um
ferðalög til útlanda næsta sumar
°S fólk kanni þá frekar möguleika
á ódýru orlofi innanlands í stað-
inn. Ég er þvj bjartsýnn á að það
takist að fullnýta Bifröst i sumar
en tað tekur sinn tíma að kynna
Þetta fyrir fólki, og því þarf að
vinna að því af alefli að kynna
fólki þessa möguleika.
Ferðir um Borgarfjörð
—• Verður af hálfu Bifrastar
skipulögð dagskrá fyrir orlofs-
gesti?
— Ekki er það nú hugmyndin.
Hins vegar verður reynt að sjá til
þess að öll aðstaða sé fyrir hendi
og þá látin í té aðstoð við ýmsan
undirbúning, afnot af tækjum o.
fl. Hins vegar verða hóparnir að
hafa frumkvæðið sjálfir og ekk-
ert er því til fyrirstöðu, að þeir
hafi kvöldvökur,, spilakvöld og
ýmislegt til afþreyingar og fróð-
leiks. Minna má á hátíðarsalinn og
setustofuna sem aðstöðu fyrir ým-
is konar samkomur.
Vel kemur til greina að koma
á skoðunarferðum um Borgar-
fjörð og fá t.d. Sæmund í Borgar-
nesi til að taka þær að sér. Þetta
ætti að fara að vera vel fram-
kvæmanlegt, þegar litið er til hins
mikla fjölda fólks, sem dvelur á
stöðum eins og í Munaðarnesi,
Svignaskarði og Bifröst. Borgar-
fjörður býður upp á mikla mögu-
leika til skoðunarferða og eins er
stutt til næriiggjandi byggðarlaga
eins og Snæfellsness, Dala og
jafnvel norður á Strandir. Svo er
næsta nágrenni Bifrastar þekkt
fyrir náttúrufegurð og fjölda
skemmtilegra gönguleiða. Það
ætti því enguim að leiðast á Þess-
um stað.
Sumarheimiii samvinnumanna
—• Verður eitthvað gert til að
auðvelda fjölskyldum að dvelja á
Bifröst?
— Það er fullur skilningur á
því að auðvelda fjölskyldum að
vera á Bifröst. Jafnvel mætti
hugsa sér sérstakar fjölskyldu-
vikur. Væntanlega þarf ekkert að
greiða fyrir börn t. d. innan 5 ára
aldurs og góður afsláttur fyrir
þau eldri. Sérstök leikaðstaða er
*
fyrir börn úti og umhverfið er
þægilegt fyrir fólk með börn. Ó-
hætt er að fullyrða, að mikill á-
hugi er á því að gera Bifröst sem
aðgengilegasta fyrir samvinnu-
fólkið, og fólk fái það á tilfinn-
inguna, að Þetta er heimili. Að
sjálfsögðu verður að gæta þess, að
þessi starfsemi verði ekki óhag-
kvæm rekstrarlega, en hinn félags-
legi tilgangur á að sitja í fyrir-
rúmi. Það er svo undir samvinnu-
mönnum komið hvernig til tekst
en maður vonar það besta, og ef
vel gengur í sumar er ég ekki
hræddur um framhaldið. Með
þessi lokaorð í huga var Guðmundi
þakkað fyrir spjallið og hér með
er honum óskað alls velfarnaðar
í Því gróandi starfi sem býður
hans á næstu mánuðum.
R./.
HLYNUR9