Hlynur - 15.02.1975, Blaðsíða 12
Samvinnu-
Ekkert hefur valdiö meiri bylt-
ingu í atvinnulífi um land allt á
síðustu árum og skuttogarakaupin.
Meðal margra og glæsilegra skipa,
sem bæst hafa i flotann eru nokk-
ur í eigu Samvinnufélaganna, ým-
ist að öllu Ieyti eða að hluta.
7. febrúar í fyrra kom til lands-
ins, Hólmanes SU 1, smíðað á
Spáni og 451 brúttólest að stærð.
Á Kaupfélag Héraðsbúa helming-
inn í Hólmanesi á móti Hraðfrysti-
húsi Eskifjarðar. Var Hólmanesið
fyrsta skipið af fimm sömu stærð-
ar.
16. apríl ’74 kom svo systurskip
Hólmaness, Jón Vídaiín ÁR 1 til
Þorlákshafnar, en eigandi er Meit-
illinn, Þorlákshöfn. Hraðfrystihús
Keflavíkur, sem er eign Kaupfé-
lags Suðurnesja keypti svo þriðja
skuttogarann af þessari gerð. Sá
heitir Aðalvík KE 95 og kom til
landsins 4. júní á s.l. ári.
31. maí '73 kom frá Japan til
Fáskrúðsfjarðar skuttogarinn
Ljósafell SU 70. Ljósafell er eign
Hraðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar,
en það er eign Kaupfélags Fá-
skrúðsfirðinga. Ljósafellið er 462
brúttólestir og hefur reynst mikið
aflaskip Af sömu stærð og Ljósa-
fell er nágranni þess, Hvalbakur
SU 300, sem Kaupfélag Stöðfirð-
inga á stóran hlut í.
Þriðja skipið frá Japan af þess-
ari stærð er Drangey SK 1, eign
Útgerðarfélags Skagfirðinga. —
l
Efst, Framnes fS 708, Þingeyri. 1
miöju, Hólmanes SU 1, Eskifirði.
Neöst, Ljósafell SU 10, FáskrúÖs-
firöi.
12 HLYNUR