Hlynur - 15.02.1975, Blaðsíða 24

Hlynur - 15.02.1975, Blaðsíða 24
aO Birgir Eydal prentari og áður verkstjóri i prentsmiðju Þjóð- viljans hefur verið ráðinn til Sambandsins til að annast alla fjölritun en Sambandið á full- kominn og afkastamikinn off- setfjölritara. að Pétur Kristjónsson trygginga- sölumaður hefur tekið við for- mennsku i félagi starfsmanna Samvinnutrygginga og And- vöku af Einari Frimannssyni. önnur í stjórn eru: Halldór Einarsson sem er varaformað- ur, Reynir Hauksson gjaldkeri, Guðrún Jónsdóttir ritari og Ingvar Sigurbjörnsson með- stjórnandi. aO ferðaskrifstofan RESO í Sví- Þjóð, sem er ein stærsta ferða- skrifstofa i Evrópu er sameign samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar i Sví- þjóð. aö Alþýðuorlof eða ferðaskrifstof- an Landsýn hefur umboð fyrir Reso á Islandi og í sumar verð- ur vikulegt leiguflug frá Kaup- mannahöfn til Islands á vegum Reso og Landsýnar. aO Innflutningsdeild Sambandsins endurgreiddi kaupfélögunum fyrir árið 1974 rúml. 22 milljón- ir í afslátt af viðskiptum við Birgðastöð, Búsáhaldadeild og Vefnaðarvörudeild. Síðan 1968 hafa þá verið greiddar 89 millj. ónir í afslátt til kaupfélag- anna. Aðrar deildir eins og Byggingavörudeild og Fóður- vörudeild greiða hins vegar af- sláttinn jafnóðum og viðskipt- in eru gerð. aO velta Innflutningsdeildar 1974 varð rúml. 4000 milljónir og jókst um 57% frá fyrra ári eða 1400 milljónir. aO Rósa Kristjánsdóttir var á síð- asta aðalfundi Starfsmannafé- lags Samvinnubankans kjörinn formaður félagsins í stað Gunn- ars Sigurjónssonar fráfarandi formanns. önnur í stjórn eru: Eva örnólfsdóttir ritari, Helgi Ingi Sigurðsson gjaldkeri og Björn Jóhannsson og Friðrik Weisshappel meðstjórnendur. aO Gunnar V. Sigurðsson mun aft- ur taka við stjórn Kaupfélags V-Húnvetninga í stað Hauks Hannessonar, en Gunnar var áður kaupfélagsstjóri KVH. aO Deild samvinnustarfsmanna í V.R. samþykkti á síðasta aðal- fundi sínum að gefa Hamra- görðum mjög vandaða kvik- myndasýningarvél af Victor- gerð, 16 mm. aO nýfarnir eru utan til náms um nokkura mánaða skeið þeir Hermann Hansson, aðstoðar- kaupfélagsstjóri KASK á Höfn i Hornafirði og Þórir Þorvarð- arson, deildarstjóri hjá Kaupfé- lagi Borgfirðinga í Borgarnesi. Hermann nemur við Standford Hall, samvinnuskólann breska en Þórir verður við verslunar- nám í Danmörku. aO Hjörtur Guðmundsson kaup- félagsstjóri á Djúpavogi sagði starfi sínu lausu í vetur en mun verða áfram kaupfélags- stjóri vegna tilmæla heima- manna, sem létu fara fram al- menna undirskriftasöfnun um það, að Hjörtur veitti kaup- félaginu áfram forstöðu. aO á siðasta aðalfundi Starfs- mannafélags Sambandsins var kjörin ný orlofshúsanefnd og í henni eru: Sigurður Jónsson formaður SFS, Jónas Jónsson gjaldkeri SFS, Baldvin Gests- son, Guðrún Hallgrímsdóttir og Óskar Einarsson. aO Félag starfsmanna Samvinnu- trygginga og Andvöku (FSSA) mun verða kaupandi að einu húsi í næsta byggingaráfanga orlofshúsa að Bifröst og taka við húsi, sem Starfsmannafé- lag Kf. Hafnfirðinga hafði pantað . aO á starfsmannafundi hjá KASK nýlega skýrði Ásgrimur Hall- dórsson kaupfélagsstjóri frá þvi, að hann mundi láta af starfi sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags A-Skaftfellinga þann 1. ágúst n. k. Við tæki Hermann Hansson, sem verið hefur aðstoðarkaupfélagsstjóri og væri hann ráðinn til eins árs. Ekki er þó hugmyndin að Ásgrímur hætti störfum hjá KASK því hann mun taka við stjórn fiskvinnslu og útgerðar en eins og kunnugt er, þá er á Homafirði að risa eitt stærsta og fullkomnasta frystihús lands ins. Þá er fyrirhuguð sú breyt- ing hjá kaupfélaginu að ráða sérstakan mann til að stjórna öllum búðarekstri félagsins.

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.