Hlynur - 15.02.1975, Blaðsíða 20
Árshátíö
Sf. SÍS
Akureyri
Jóhann SigurSsson
setur hátíöina.
Asgrimur Stefánsson
afhenti heiöursmerkin.
Páll Helgason
flytur minningar-
orö um
Harry Frederiksen.
Starfsmannafélag SÍS á Akur-
eyri hélt árshátið sína í Sjálfstaað-
ishúsmu þann 22. febrúar s.l. Var
þar fjölmennt að vanda. Veislu-
stjóri var Jóhann Sigurðsson, for-
maður félagsins og var hann í
alla staði hinn röggsamasti.
Áður en hin eiginlega dagskrá
hófst, flutti Páll Helgason nokkur
minningarorð um Harry Frederik-
sen, en síðan var tekið til við mat-
inn, sem var allur hinn kræsileg-
asti og voru borð hroðin hvað eftir
annað, en jafnan iþó fyllt í skörð-
in. Er fólk var sæmilega satt orð-
ið, upphófust ýmis skemmtiatriði
með því að Ásgrímur Stefánsson,
verksmiðjustjóri Heklu, afhenti
starfsaldursmerki SlS, en Þau
hlutu óvenju margir að þessu sinni.
GULLMERKI HLUTU:
Herbert Tryggvason, Gefjun
Jóhann Guðmundsson, Gefjun
Þórir Björnsson, Gefjun
Jóhannes Wæhle, Sútun
SILFURMERKI HLUTU:
Baldur Árnason, Gefjun
Bernharður Jósefsson, Ullarþv.st.
Freyja Jóhannsdóttir, Heklu
Gunnar Stefánsson, Gefjun
Hjörtur Eiriksson, Gefjun
Jenny Guðlaugsdóttir, Skógerð
Ólafur Stefánsson, Ullarþv.stöð
Stefán Pétursson, Skógerð
Jóhann Sigurðsson, Sútun.
Að afhendingu lokinni flutti einn
„júbiiantanna", Jóhann Sigurðs-
son snjalit frumort kvæði en síðan
voru þeir allir hylltir vel og lengi.
Þá flutti Birgir Marinósson, sem
er gamall starfsmaður verksmiðj-
anna, annál ársins í léttum stíl.
iKom hann víða við og hlaut hinar
bestu viðtökur.
Minni kvenna flutti Ingólfur
Ólafsson og minni karla Ásta Ax-
elsdóttir, en það var eftir Jóhönnu
Tryggvadóttur, sem ekki gat kom-
ið við að flytja það sjálf. Því naest
kom fram söngflokkur (aðfeng-
inn) og söng nokkur lög úr ýmsum
áttum, en síðast birtust tvær dans-
meyjar, létt klæddar og léttar á
fæti.
Á milli atriða söng þingheimur
af skörungsskap undir stjórn Ingi-
mars Eydais, en þak hússins er hið
traustasta og lét sig hvergi. Að
þessu loknu upphófst dans af mikl-
um móði á tveim hæðum, og stóð
fram eftir nóttu.
Yfir samkomunni í heild ríkti
ánægjulegur andi og fór hún í
alla staði vel fram.
Merkishafar allir, taliö frá vinstri: Bernharö, Báldur, Söngkvintettinn.
Jóhann G., Hulda, Stefán, Freyja, Hjörtur, Birna,
Jenny, Gunnar, Herbert, ólafur og Jöhann S.
20 HLYNUR