Hlynur - 15.06.1995, Síða 25

Hlynur - 15.06.1995, Síða 25
f"llyrvur <yv\n\r ís ervs <a ■ 'mmleiðs u Kaupfélag Þingeyinga Húsavík Kjötiðja KÞ er í fremstu röð kjöt- vinnsla á landinu og hefur unnið til fjölda verðlauna á matvæla- sýningum, bæði hér á landi og erlendis fyrir gæði og athyglis- verðar nýjungar. Meðal fram- leiðsluvara KÞ er hið landsfræga Húsavíkurhangikjöt sem notið hef- ur mikillar hylli hér á landi. Að undanförnu hefur verið lögð rík áhersla á vörujaróun hjá Kjötiðju KÞ. Mest áhersla hefur verið lögð á vöruþróun úr lambakjöti. I sam- starfi við Rannsóknarstofnun land- búnaðarins hefur Kjötiðjan þróað nýja afurð sem nú er verið að markaðssetja á innanlandsmark- aði. Varan sem hér um ræðir hef- ur hlotið vinnuheitið formaþ kjöt og er unnið úr framparti. Á þessu stigi í vöruþróunarferlinu má vinna þrjár afurðir með þessari vinnslutækni. Naggar sem eru formaðir lambakjötsbitar, raspað- ir og forsteiktir. Onnur afurð er formaðir kjöthleifar sem hafa svipaða eiginleika og vöðvar, loks er það formaðar steikur sem unnar eru úr hakkefni og vöðvum sem binst saman með náttúruleg- um bindiefnum og er verulega þétt í sér án þess að vera seig. Markmið þessa vöruþróunarverk- efnis er að auka verðmæti lambakjötsafurða og um leið leit- ast við að snúa vörn í sókn gagn- vart minnkandi lambakjötsneyslu. Ofnagreindar afurðir eru þróað- ar með þarfir neytenda í huga sem mjög auðvelt er að mat- reiða, og eru tilbúnar til neyslu. Mjólkursamlag KÞ er í hópi stærri framleiðenda jógúrts og osta á Is- landi. Árið 1991 keypti Mjólkur- samlagið efnagerðina SANA og hóf framleiðslu á efnagerðarvör- um undir vörumerki SANA. Helstu framleiðsluvörur SANA eru djús, sósur og sultur. Helstu fram- leiðsluvörur Mjólkursamlagsins fyrir utan hefðbundnar mjólkuraf- urðir eru Húsavíkurjógurt, gouda- ostur, búri og mysuostur. Þessum framleiðsluvörum KÞ er dreift um allt land í samstarfi við Osta- og smjörsöluna og Mjólkursam- söluna. Brauðgerðin á mikilli vel- gengi að fagna á félagssvæði KÞ. Brauðgerð KÞ er mjög vel tækjum búin og er hvergi til spar- að í gæðum hráefnis til þess að búa til eins góð brauð og mögu- legt er. Rekstur brauðgerðarinnar gengur vel og er það ekki síst að þakka hinni miklu hagræðingu sem næst með fullkomnum fram- leiðslutækjum. Sendum samvinnufólki og öðrum landsmönnum bestu sumarkveðjur Kaupfélag Langnesinga Þórshöfn Sími 468 1200 Hlynur •

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.