Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 6
6
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Árið 2016 var hafin vinna við gerð
áfangastaðaáætlana um land allt. Verkefnið
var sett í forgang í Vegvísi í ferðaþjónustu.
Markmiðið var að staðfesta mikilvægi
ferðaþjónustunnar sem grunnstoðar
byggðaþróunar og atvinnulífs. Einnig var
lagt upp með að efla samtal í hverjum
landshluta um aðgengi og umferð
ferðamanna til að dreifa álagi, vernda
náttúru og tryggja öryggi.
Hvað eru áfangastaðaáætlanir?
Áfangastaðaáætlun er stefnuyfirlýsing
sem hefur það að markmiði að stýra
uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu
á tilteknu svæði, skilgreina hlutverk
hagsmunaaðila, tiltaka beinar aðgerðir
sem hver og einn ber ábyrgð á og hvaða
auðlindir verði hagnýttar. Um er að ræða
heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags
og samhæfingar í þróun og stýringu allra
þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun
ferðamanna á viðkomandi áfangastað,
þar með talið þarfir gesta, heimamanna,
fyrirtækja og náttúru.
Tækifærin felast í
áfangastaðaáætlunum
Áætlanirnar eru unnar í samvinnu við
markaðsstofur landshlutanna sem fara
með verkefnisstjórn áætlanagerðar
á sínum svæðum, en við vinnuna var
landinu skipt upp eftir verkefnasvæðum
markaðsstofanna.
Hverju geta áfangastaðaáætlanir
skilað?
Áfangastaðaáætlanir landshlutanna hafa að
undanförnu verið birtar. Áætlun sem þessi
verður þó aldrei fullgerð heldur tekur mið af
aðstæðum á hverjum tíma og þeirri stefnu
sem mótuð er í byggðarlaginu.
Með markvissum áfangastaðaáætlunum
á að myndast samhljómur þeirra
hagaðila sem koma að ferðaþjónustu
á tilteknu svæði um hvernig þeir sjá
atvinnugreinina þróast til lengri tíma,
hvernig uppbygging og framkvæmdir auk
aðstæðna á hverju svæði leiða til hagkvæms
rekstrar til hagsbóta fyrir samfélagið.
Mikilvægt er að áfangastaðaáætlunin sé
í samræmi við þær áherslur sem koma
fram í annarri stefnumörkun opinberra
aðila og einkafyrirtækja. Með góðri
áfangastaðaáætlun er eftirsóknarverður
áfangastaður ferðamanna mótaður og
sterkari stoðum þannig skotið undir
ferðaþjónustuna.
Í þeim áætlunum sem hafa verið birtar er
lögð rík áhersla á að byggja upp sjálfbæra
ferðaþjónustu, auka hæfni og gæði og
draga úr neikvæðum áhrifum ferðaþjónustu
á náttúru og samfélög. Áhersla er á að fá
ferðamenn til að dvelja lengur á hverju
svæði og njóta alls þess sem hvert svæði
hefur upp á að bjóða. Í öllum áætlunum má
finna verkefni sem tengjast samgöngum,
merkingum og öryggi ferðamanna. Þá er
alls staðar kallað eftir betri svæðisbundnum
gögnum um stöðu greinarinnar til að gera
betri áætlanir í framtíðinni.
Við erum nú þegar farin að sjá árangur af
áfangastaðaáætlunum. Framkvæmdir eru
hafnar við nokkur verkefnanna sem þar
eru nefnd. Ferðamálastofa hefur styrkt
einstök þróunarverkefni með fjármagni.
Þá er umsóknum í Framkvæmdasjóð
ferðamannastaða talið til tekna ef verkefnin
eru í áfangastaðaáætlun síns svæðis. Einnig
er vinna hafin við að auka svæðisbundnar
rannsóknir og söfnun tölfræðigagna.
Verði rétt haldið á spilunum munu
áfangastaðaáætlanir hafa jákvæð áhrif á
byggðaþróun.
Hvert verður framhaldið?
Mikilvægt er að halda áfram vinnu við
áfangastaðaáætlanir. Ganga þarf lengra
í að forgangsraða áfangastöðum og
verkefnum innan hvers svæðis. Taka þarf
afstöðu til hvar innviða er helst þörf, í
hvaða verkefni er skynsamlegast að ráðast
strax og hvar ágangur á náttúru er orðinn
þannig að grípa þarf til aðgerða. Síðast en
ekki síst þarf að greina efnahagslega og
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri og Guðný Hrafnkelsdóttir, verkefnastjóri
hjá Ferðamálastofu.
Ferðamenn taka myndir við Námaskarð í júní 2018.