Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 12

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 12
12 SVEITARSTJÓRNARMÁL stíga fram á völlinn, og vel má merkja þá góðu samheldni og þann góða anda sem skapast í þessum stóra og fjölbreytta hópi. Allir starfa saman á jafnréttisgrundvelli. Þeir eldri tala ekkert meira en nýliðarnir og hlustað er á öll sjónarmið. Það er því yfirleitt mjög gaman að fylgjast með því hve landsþingshópurinn er samstilltur og áhugasamur um að skilgreina sameiginleg markmið sem miða að því að efla sveitarfélögin og sveitarstjórnarstigið í heild. „Hjá sambandinu, vinnum við þetta ekki ofan frá heldur undirbúa starfsmenn málefnavinnuna eins vel og kostur er. Síðan fer af stað þetta skemmtilega samtal sveitarstjórnanna um allt land. Sú sameiginlega niðurstaða sem samtalið leiðir af sér mótar síðan allt starf sambandsins. Þetta er lykillinn að þeirri sátt sem ríkir innan sambandsins. Við starfsmennirnir erum þjónar sveitarfélaganna en komum aldrei fram sem yfirvald. Það er lögbundið hlutverk okkar og stjórnar sambandsins að koma fram fyrir hönd 72 sveitarfélaga gagnvart ríkinu. Þess vegna þurfum við að vita nákvæmlega hverju þau vilja ná fram. Stefnumörkunin er sú leið sem við höfum þróað til þess,“ segir Karl. Mikil skilvirkni Hann segir jafnframt að í því felist mikið hagræði að starfsfólk sambandsins geti stuðst við stefnumörkunina, eins víðtæk og hún er, sem fastan útgangspunkt í störfum sínum. „Það reynist okkur til dæmis afar vel að hafa skýra og vel útfærða stefnu þegar við veitum umsagnir um lagafrumvörp og reglugerðardrög. Við veitum 240-360 slíkar umsagnir á hverju kjörtímabili og oft er lítill tími til stefnu að skila umsögnum svo þá kemur sér vel að vita nákvæmlega hvernig á að bregðast við. Þetta tryggir mikla skilvirkni og oftast getum við brugðist skjótt og vel við umsagnarbeiðnum.“ Hann segir að hið sama gildi um fulltrúa í hinum ýmsu nefndum og starfshópum. Sambandið og sveitarfélögin eiga fulltrúa í um 200 opinberum nefndum, ráðum, stjórnum og starfshópum. „Fulltrúar okkar geta þar alltaf sótt styrk í stefnumörkunina. Ef um er að ræða aðra fulltrúa en starfsmenn sambandsins í slíku nefndarstarfi hafa þeir tengilið hjá okkur svo við getum alltaf haft hönd í bagga. Þannig hríslast stefnumörkunin í gegnum allt starf sambandsins. Um hana og sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna ríkir mikil samheldni.“ Traust til starfsfólksins Karl segir að starfsmenn sambandsins hafi frjálsar hendur með útfærslu og leiðir svo lengi sem þeir vinni á grundvelli stefnumörkunarinnar. „Starfsmenn eru ánægðir með þetta frelsi sem þeir hafa. Þeim er treyst. Það er enginn að horfa yfir öxlina á þeim í þeirra störfum, við vitum öll hvert á að stefna. Því sama er ekki alltaf að heilsa til dæmis í samskiptum við ráðuneyti. Þar er miklu algengara að starfsfólk sem við eigum samskipti við þurfi að bera hluti undir yfirmenn áður en unnt er að fá niðurstöðu í mál og allt of oft tekur það mikinn tíma og dregur verulega úr skilvirkni starfa í ráðuneytunum,“ segir Karl. Hann sparar ekki hrósið þegar talið berst að starfsfólki sambandsins. Svipmynd frá landsþingi sambandsins 2018. Daníel Jakobsson, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson skjóta saman nefjum á landsþingi sambandins 2108.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.