Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 14

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 14
14 SVEITARSTJÓRNARMÁL Spurningin er ekki hvort heldur hvernig haldið verður áfram með sóknaráætlanir landshluta. Núgildandi samningar sem gerðir voru 2015 renna út í lok árs og því er hafinn undirbúningur að gerð nýrra samninga sem munu væntanlega gilda til 2024. Ég hef tekið þátt í þessu verkefni frá árinu 2012 og í mínum huga er ljóst að þetta fyrirkomulag hefur gefist vel. Markmiðið var að færa völd og ábyrgð til heimamanna á sviði byggðamála og það hefur tekist. Landshlutasamtök sveitarfélaga hafa eflst mjög í sínu hlutverki og samstarf milli ráðuneyta og við landshlutasamtökin er orðið mun meira. Í ljósi þess að mikil endurnýjun varð í sveitarstjórnum síðastliðið vor leggjum við nú áherslu á að kynna verkefnið fyrir sveitarstjórnarfólki, segir Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og formaður stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur verið virkur þátttakandi í verkefninu frá upphafi og er Karl Björnsson framkvæmdastjóri fulltrúi sambandsins í stýrihópi stjórnarráðsins. Auk þeirra Hólmfríðar og Karls er hópurinn skipaður Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og formaður stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál Unnið að gerð nýrra sóknaráætlana um allt land - eftir Garðar H. Guðjónsson. fulltrúum allra ráðuneyta. Byggðastofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga eiga auk þess áheyrnarfulltrúa á fundum hópsins. Öll mál eru byggðamál „Í okkar huga eru flest mál byggðamál,“ segir Hólmfríður og vísar til þess hvernig stýrihópurinn skilgreinir byggðamál. Byggðamál eru öll þau viðfangsefni sem hafa áhrif á lífsgæði og samkeppnisstöðu landshluta, svo sem búsetu, atvinnu og nýsköpun. Þau snúa að eflingu samfélaga, félagsauðs, atvinnulífs, menntunar, menningar, velferðarmála, samgangna og fjarskipta. Samkvæmt þessari skilgreiningu er litið svo á að byggðamál séu viðfangsefni allra ráðuneyta með einhverjum hætti og nái til landsins alls. Hólmfríður segir að sóknaráætlanirnar grundvallist á samningum milli ríkisins og landshlutasamtaka sveitarfélaga. Upphaf sóknaráætlana má rekja til ársins 2011 þegar ríkið óskaði eftir því að landshlutasamtök sveitarfélaga skiluðu inn tillögum að Frá undirritun um sóknaráætlanir landshluta 2015-2019 sem fram fór í Ráðherrabústaðnum 2015.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.