Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 2019, Qupperneq 16

Sveitarstjórnarmál - 2019, Qupperneq 16
16 SVEITARSTJÓRNARMÁL Fjölbreytt verkefni uppbyggingarsjóða Alls hlutu 594 verkefni styrki úr uppbyggingarsjóðum landshlutanna á árinu 2017. Hér á eftir eru nokkur dæmi um þau fjölbreyttu verkefni sem hlutu styrki. Félag um lýðháskóla á Flateyri, 3.500.000 kr. Styrkþegi: Runólfur Ágústsson/Óttar Guðjónsson. Félag um lýðháskóla á Flateyri er stórhuga atvinnu- og menntaþróunarverkefni sem miðar að því að koma lýðháskóla á laggirnar á Flateyri. Verkefnið er mjög stórt í sniðum og gæti haft verulega þýðingu fyrir samfélagið í Önundarfirði og sennilega um alla norðanverða Vestfirði. Sjómannagarðurinn Hellissandi, 600.000 kr. Styrkþegi: Sjóminjasafnið á Hellissandi. Safnið hefur verið starfrækt um árabil. Fjöldi einstaklinga hefur lagt safninu lið í gegnum árin og unnið óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf. Undanfarið hefur verið unnið að því að efla safnið með því að bæta aðstöðu og aðgengi, auk þess sem settar hafa veriðu upp tvær nýjar sýningar. Annars vegar er það sýningin Sjósókn undir jökli og hins vegar sýningin Náttúra. Stuðningur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands við verkefnið er til þess fallinn að gera safninu kleift að lengja opnunartíma og auka þjónustu. Vinlandssetur, 1.200.000 kr. Styrkþegi: Eiríksstaðanefnd. Að undanförnu hefur verið unnið að uppbyggingu Vínlandsseturs í Búðardal. Að verkefninu koma Eiríksstaðanefnd, sveitarfélagið Dalabyggð og hjónin Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, eigendur Landnámssetursins í Borgarnesi. Vínlandssetur verður staðsett í Leifsbúð. Á jarðhæð hússins verður veitingasala. Á efri hæðinni verður sögusýning af landnámi íslenskra/norrænna manna á Grænlandi og af fundum þeirra og ferðum til Ameríku. Búið er að hanna sýninguna. Vinna við hönnun á breytingu húsnæðis er á lokametrum og verkefnið því komið á framkvæmdastig. Listasafn Samúels, 1.200.000 kr. Styrkþegi: Félag um Listasafn Samúels. Listasafn Samúels miðar að endurgerð verka Samúels Jónssonar í Selárdal. Verkinu miðar vel og hefur mikið starf verið unnið í sjálfboðavinnu. Listasafnið hefur vakið talsverða athygli fyrir óvanalega og barnslega einlægni listamannsins, sem hrífur safngesti. Árið 2017 var gerður þriggja ára samningur um stuðning við verkefnið þar sem verkefnið er í eðli sínu langtímaverkefni. Í umsókn skín í gegn einlægur áhugi á verkefninu og stendur öflugur hópur áhugamanna að baki uppbyggingu safnsins. Galdrasýning á Ströndum, 3.500.000 kr. Styrkþegi: Strandagaldur ses. Galdrasýningu á Ströndum var komið upp um aldamótin og hefur hún verið í stöðugri uppbyggingu og þróun síðan. Árlega dregur sýningin að sér þúsundir ferðamanna. Í tengslum við sýninguna er rekið lítið en afar vel heppnað veitingahús. Galdrasýning á Ströndum hefur haldið Hólmavík á kortinu um árabil. Sýningin hefur jafnan hlotið stofn- og rekstrarstyrk úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Gúmmísökka, 500.000 kr. Styrkþegi: Steinþór Bragason. Gúmmísökka er gott dæmi um vel heppnað einstaklingsverkefni í atvinnu- og vöruþróun. Sökkur eru notaðar við handfæraveiðar til að sökkva önglinum til botns. Þær hafa jafnan verið úr blýi og því skapað hávaðamengun og óþægindi fyrir starfsfólk og hugsanlega fælt frá fiska sem hafa vissulega heyrn og heyra háa hvelli er sakkan slæst utan í bát eða harðan sjávarbotn. Því voru þróaðar gúmmíhúðaðar sökkur úr galvaníseruðu járni, sem gera sama gagn, en eru hljóðlátari, hlífa bátunum og eru þægilegri í notkun. Verkefnið fékk styrk úr Uppbyggingarsjóði og er því lokið og telst hafa heppnast mjög vel. Fyrir dyrum stendur að leita leiða til að lækka framleiðslukostnað sem er enn nokkru hærri en á hefðbundnum blýsökkum. Söngleikurinn Móglí, 600.000 kr. Styrkþegi: Tónlistarskóli Borgarfjarðar. Söngleikurinn Móglí var settur upp í tilefni af 50 ára afmæli Tónlistarskóla Borgarfjarðar árið 2017. Fjöldi nemenda tók þátt í uppfærslunni, kennarar skólans bæði léku og skipuðu hljómsveit og leikarar úr leikdeild Skallagríms voru í ýmsum hlutverkum. Leikstjóri var Halldóra Björnsdóttir. Haldnar voru 10 sýningar í mennta- og menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi og er áætlað að um 1.200 gestir hafi séð sýninguna.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.