Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 17

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 17
Janus heilsuefling er ráðgjafa- og þjónustu- fyrirtæki, sem sérhæfir sig í bættum lífs- gæðum eldri borgara. Frumkvöðullinn, Dr. Janus Guðlaugsson, stofnaði fyrirtækið árið 2016 á grunni doktorsrannsóknar sinnar, en niðurstöður hennar á tengslum hreyfingar, mataræðis og öldrunar eru sláandi. Stefnir í 61% fjölgun Janus er með PhD gráðu í íþrótta- og heilsufræði og er mörgum að góðu kunnur fyrir skelegga framgöngu í heilsueflingu fólks 65 ára og eldra. Sveitarfélög eru á meðal þeirra sem lagt hafa hlustir við málflutningi Janusar, en ör fjölgun í aldurshópnum 65+ er á meðal helstu lýðfræðilegra breytinga sem stjórnvöld 21. aldarinnar standa frammi fyrir. Áætlar Hagstofan, að eldri borgurum muni fjölga um 61% á næstu 15 árum eða úr liðlega 42 þúsund manns í 68 þúsund, ef fram heldur sem horfir. Forvarnir eru orðið Þeir sem hafa kynnt sér heilsueflingar- verkefni Janusar vita, að þau snúast ekki aðeins um betri líðan þeirra sem taka þátt í þeim heldur breytta og bætta meðferð fjármuna. Heilsueflingarverkefni sem Janus hefur unnið að í samstarfi við m.a. Hafnarfjarðarkaupstað og Reykjanesbæ sýna fram á , að spara má stórfelldar fjárhæðir á forvörnum. Sýna mælingar fram á nánast ótrúlegar framfarir hjá fólki sem komið er jafnvel að fótum fram. Aukin hreyfing og bætt mataræði reynast vera réttu breyturnar sem koma fólki aftur á ról og gerir því kleift að lifa innihaldsríku lífi á ný á eigin forsendum. Allir græða Í krónum talið bendir Janus m.a. á kostnaður vegna 80-100 einstaklinga í heilsueflingu sé um 12 til 14 m.kr. á ári. Til samanburðar má nefna að kostnaður við ársdvöld einstaklings á dvalar- og hjúkrunarheimili er um 13-15 m.kr. Hvert ár skiptir þannig verulegu máli, ekki bara fyrir einstaklinginn heldur einnig ríki og sveitarfélög. Þá er ekki síður eftir verulegum fjárhæðum að slægjast með bættu heilbrigði hjarta- og æðakerfis, en kostnaður við hverja hjáveituaðgerð ásamt eftirfylgni er um 3 m.kr. Samstilltar aðgerðir ríkis og sveitarfélaga Aukin notkun eldri borgara í líkamsræktarstöðvum eða íþróttahúsum er einnig jákvæð með tilliti til nýtingar aðstöðunnar. Virknin á þessum stöðum er í flestum tilvikum í lágmarki yfir daginn, sem er á hinn bóginn sá tími sem hentar eldri borgurum hvað best. Þá er ótalinn sá félagslegi gróði sem felst í því fyrir eldri borgara að geta tekið þátt í reglubundnu heilsueflingarprógrammi og þannig má lengi telja. Í kynningu Janus heilsueflingu á samstarfsverkefnum við sveitarfélög er m.a. kallað eftir sameiginlegum aðgerðum ríkis og sveitarfélaga varðandi heilsueflingu eldir aldurshópa. Talið er m.a. brýnt að mótuð verði stefna í forvörnum og fjármögnun og þjónusta endurskipulögð með tilliti til markvissar heilsueflingar. Leið að farsælli öldrun Aukin hreyfing og bætt mataræði reynast vera réttu breyturnar til að koma fólki aftur á ról og gerir því kleift að lifa innihaldsríku lífi á ný á eigin forsendum.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.