Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 18

Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 18
18 Með stofnun Vestfjarðastofu tekst okkur að samnýta þekkingu og hugvit starfsmanna og skapa miklu betra flæði milli verkefna á sviði atvinnu- og byggðamála. Nú fer þessi vinna fram undir einum hatti en að mínu viti var allt of langt á milli atvinnumála og byggðamála þegar atvinnumálin voru undir Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða og menn voru dálítið að vinna að þessum málum hver í sínu horni. Ég var mikill talsmaður þess að við Vestfirðingar völdum þessa leið og að mínu mati hefur hún þegar sannað gildi sitt á þessu rúma ári sem liðið er síðan Vestfjarðastofa var sett á laggirnar Þetta segir Pétur Markan, fyrsti formaður stjórnar Vestfjarðastofu sem stofnuð var í byrjun desember 2017. Við það sameinuðust atvinnuþróunarfélagið og Markaðsstofa Vestfjarða en stofnaðilar að Vestfjarðastofu eru nokkrir tugir sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Vestfjörðum. Pétur hefur látið til sín taka í sveitarstjórnar- og atvinnumálum á Vestfjörðum síðan hann gerðist sveitarstjóri í Súðavík eftir kosningarnar 2014. Hann stendur hins vegar á tímamótum um þessar mundir. Hann lét nýverið af embætti stjórnarformanns Vestfjarðastofu og sagði starfi sínu sem sveitarstjóri lausu nú í ársbyrjun. Hann gegnir starfinu fram á vor eða uns nýr sveitarstjóri verður ráðinn en síðan hefst nýr kafli í lífi hans suður í Reykjavík. Víðtækur tilgangur „Ég hef verið virkur þátttakandi í samstarfi sveitarfélaganna hér á Vestfjörðum. Þegar ég var formaður Fjórðungssambands Vestfjarða varð mér ljóst að við yrðum að gera breytingar sem síðan leiddu til stofnunar Vestfjarðastofu. Mín sannfæring var sú að atvinnumálin og byggðamálin almennt gætu ekki verið aðskilin. Við yrðum að vinna að þessum málum undir einum hatti. Sem dæmi um hverju þetta hefur skilað er að nú hafa sveitarfélögin ákveðið að vinna sameiginlegt svæðisskipulag og það verður ekki gert nema í nánu samhengi við þá atvinnuþróun sem rúmast á innan svæðisins. Þessi vinna hefði áður verið á vegum fjórðungssambandsins en verður miklu skilvirkari nú undir umsjón Vestfjarðastofu“, segir Pétur. Vestfjarðastofa er sjálfseignarstofnun með ákaflega víðtækan tilgang. Hann er að vinna að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Vestfjörðum og veita samræmda og þverfaglega ráðgjöf og þjónustu tengda atvinnu- og byggðaþróun, frumkvöðlastarfsemi og menningu í víðum skilningi. Markmið Vestfjarðastofu er að efla atvinnulíf á Vestfjörðum, stuðla að velferð íbúa og styrkja Vestfirði sem búsetukost og áfangastað ferðamanna. Markmiði sínu hyggst Vestfjarðastofa ná með öflugu samstarfi atvinnulífs, sveitarfélaga, ríkisvalds og stoðkerfis hins opinbera. Framfaraspor „Já, Vestfjarðastofa vinnur á mjög breiðum grunni. Þarna hefur verið búinn til fyrirmyndar vettvangur fyrir skapandi fólk sem getur með krafti sínum haft mikil áhrif á umhverfi sitt. Þetta er að mínu mati einn mest spennandi starfsvettvangur á Vestfjörðum og þótt víðar væri leitað. Nú er það mín ósk að sveitarfélögin kveiki betur á þeim möguleikum sem felast í samvinnu á vettvangi Vestfjarðastofu til að bæta mannlíf og þjónustu á svæðinu,“ segir Pétur. Fjórðungssambandið, samtök sveitarfélag- anna í fjórðungnum, verður eftir sem áður samningsaðili við ríkisvaldið vegna sóknaráætlunar fyrir Vestfirði en verkefnin verða unnin hjá Vestfjarðastofu. Pétur telur að tilkoma sóknaráætlana hafi verið mikið framfaraspor í stjórnsýslu og meðferð opinbers fjár. Þær hafi leitt til mun skilvirkari aðgerða en fyrra fyrirkomulag. Pétur Markan, sveitarstjóri og fyrrverandi formaður Vestfjarðarstofu Samnýtum þekkingu og hugvit í Vestfjarðarstofu - Eftir Garðar H. Guðjónsson. Pétur Markan, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.