Sveitarstjórnarmál - 2019, Side 19
19
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Ekki gleyma áskriftinni
Sveitarstjórnarmál eru málið. Fáðu fréttir, fróðleik og sveitarstjórnarmálin inn um
lúguna fyrir aðeins kr. 4.000 á ári. Einstakt tímarit fyrir áhugafólk eins og þig um
sveitarstjórnarmál og sveitarfélög landsins. Tryggðu þér áskrift með því að senda póst á
netfangið samband@samband.is eða hringja í síma 515 4900.
„Áður var meðferð fjármuna mun
tilviljunarkenndari og menn höfðu
ekki sömu yfirsýn yfir verkefnin og nú.
Opinbert fé er í eigu okkar allra og því
mikilvægt að það sé nýtt skynsamlega og
hafi áhrif til vaxtar. Eitt af markmiðunum
með sóknaráætlunum var að færa
ráðstöfunarvaldið til svæðanna og það hefur
tekist. Frá því fyrstu sóknaráætlanir litu
dagsins ljós hafa nýjar ríkisstjórnir sem betur
fer viðhaldið verkefninu og frekar nært það
en hitt. Það var mikið gæfuspor að færa
þetta verklag í lög og festa verkefnið þannig
í sessi,“ segir Pétur.
Stoltur
Hann lítur stoltur yfir farinn veg þegar
kemur að svæðasamstarfinu á Vestfjörðum.
Hið sama gildir um störf hans sem
sveitarstjóri í Súðavík.
„Það hafa ýmis verkefni sprottið upp í
kringum mann á þessum fimm árum. Það
er gaman að fara frá þessu á réttum tíma og
skilja eftir sig grósku og uppbyggingu sem
skiptir máli, eitthvað sem mun lifa þótt ég
fari frá því. Vestfjarðastofa er gott dæmi um
það,“ segir hann.
Þegar Pétur er spurður hvað standi uppúr
í störfum hans sem sveitarstjóri í Súðavík
nefnir hann fyrst kalkþörungaverksmiðjuna
sem hefur verið í undirbúningi síðan 2014
en verður senn að veruleika og mun skapa
35-40 heilsársstörf auk afleiddra starfa.
„Ef laxeldið er undanskilið er þessi nýja
verksmiðja stærsta atvinnuþróunarverkefnið
á Vestfjörðum um þessar mundir. Þetta er
risastórt verkefni á vestfirska vísu og mun
hafa mikil áhrif. Ekki bara í Súðavík heldur
einnig á Ísafirði og í Bolungarvík. Við lítum
á þessar byggðir sem eitt atvinnusvæði
og þetta verkefni setur umræðu um
jarðgöng á svæðinu í raun og veru í nýtt
samhengi. Við höfum gefið okkur góðan
tíma til undirbúnings. Verkefnið hefur verið
kynnt mjög ítarlega fyrir íbúum og um það
ríkir mikil sátt. Það er mikilvægt að hafa
íbúana með í ráðum þegar unnið er að
svo umfangsmiklu verkefni. Í mínum huga
skiptir meginmáli að þetta verkefni tryggir
atvinnu hér í þorpinu og þar með tilvist
þorpsins til framtíðar.“
Björt framtíð byggðarinnar
Pétur rifjar í þessu sambandi upp orð
Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra, á landsþingi
sambandsins síðastliðið haust um að
sveitarfélögum muni fækka á næstu tíu
árum. Spurningin væri aðeins um hvernig
það myndi gerast.
„Sigurður Ingi sló hárréttan tón með þessum
orðum. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur
að tryggja tilvist byggðarinnar til framtíðar,“
segir hann.
Annar liður í því að efla byggðina í Súðavík
er að sögn Péturs að alger viðsnúningur
hefur orðið í fjármálum sveitarfélagsins á
undanförnum árum.
„Okkur hefur tekist að nýta góðærið
undanfarin ár til þess að styrkja fjárhagslega
stöðu sveitarfélagsins verulega.
Súðavíkurhreppur er lítið sveitarfélag.
Góður fjárhagslegur grunnur styrkir stöðu
þess og sjálfstæði og auðveldar okkur að
standa við skyldur sveitarfélagsins við
íbúana. Við höfum á sama tíma unnið að
endurskoðun aðalskipulags hreppsins.
Það er kostnaðarsamt verkefni og auðvelt
að humma það fram af sér en við tókum
þá ákvörðun 2015 að vinda okkur í þetta
verkefni og það er nú á lokametrunum.
Ég er mjög stoltur af því. Nýtt skipulag
tekur væntanlega gildi nú í sumar eða með
haustinu.
Þessi ár hér í Súðavík hafa verið afar
annasöm og ég tel að okkur hafi tekist vel til
í því að búa sveitarfélagið undir framtíðina.
Hún er björt að mínu mati.“
Að velja næstu verkefni
En hvers vegna sagði Pétur starfi sínu lausu
og hvað tekur þá við?
„Konan mín er í magisternámi í guðfræði
og það kallar á að við flytjum suður með
börnin okkar þrjú. Ég hef verið hér í fimm
ár, hef beitt mér af alefli og átt velgengni
að fagna en nú er góður tímapunktur til að
takast á við eitthvað annað. Það er algerlega
óákveðið hvað ég tek mér næst fyrir hendur.
Ég sótti að vísu um og fékk þann starfa
að vera með átta mánaða gamalli dóttur
minni í fæðingarorlofi en annað liggur ekki
fyrir. Kannski er ég bara af nýrri kynslóð
sem starfar ekki lengi í senn hjá sama
vinnuveitanda, velur sér ekki ævistarf. Ég
ætla að leyfa mér að velja næstu verkefni.
Maður á að leyfa sér þann munað ef það
er hægt. Það þarf stundum hugrekki til
en maður á að nýta sér þessi forréttindi ef
maður getur,“ segir Pétur.