Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 26

Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 26
26 SVEITARSTJÓRNARMÁL Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París árið 2015 tilkynntu íslensk stjórnvöld aðild að sameiginlegri framkvæmd Evrópusambandsins vegna Parísarsamkomulagsins. Með þessu fyrirkomulagi urðu Ísland, ásamt Noregi, hluti af því sameiginlega markmiði 28 aðildarríkja Evrópusambandsins að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2030 um samtals 40%. Um hlutdeild hvers ríkis og skyldur gildir sérstakur samningur, en gagnvart Parísarsamkomulaginu standa þessi 30 ríki fyrir einu sameiginlegu framlagi. Þetta fyrirkomulag felur í sér, að Ísland innleiði tvær af meginreglugerðum Evrópusambandsins um losun gróðurhúsalofttegunda, til viðbótar við reglugerð um viðskiptakerfi vegna losunarheimilda (ETS), en Ísland á nú þegar aðili að því kerfi í gegnum EES-samninginn. Reglugerðirnar eru vegna sameiginlegrar ábyrgðar og taka annars vegar á losun utan ETS-kerfisins og hins vegar á landnotkun og skógrækt tengdri losun og kolefnisbindingu. Hvað skuldbindingar snertir af Íslands hálfu um losun, þá gerir samkomulagið ráð fyrir 29% samdrætti utan ETS-kerfisins (frá samgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi o.fl. uppsprettum) á samningstímanum. Er sú krafa nokkuð lægri en það 40% markmið, sem stefnt er að í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og kynnt var í september 2018. Aðildarríkjum er enda frjálst að setja sér hærri mörk en regluverkið gerir ráð fyrir. Hvað eru evrópsku sveitarfélögin að gera? Aðild Íslands að sameiginlegri framkvæmd Evrópusambandsins vegna Parísarsamkomulagsins setur sveitarfélög á Íslandi á bekk með evrópskum sveitarfélögum. Því er vert að skoða það sem er á döfinni hjá evrópskum sveitarfélögum vegna baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Sáttmáli sveitarfélaga um sjálfbæra orku (Covenant of Mayors) Markmið sáttmálans er að færa evrópskar borgir á sjálfbæra braut með aukinni notkun endurnýjanlegra orkugjafa og umhverfisvænni neyslu. Kallað er eftir breyttum áherslum í stefnumótun og skipulagningu þéttbýlis og aukinni og virkari þátttöku almennings. Meira en Sveitarfélögin og loftslagsbreytingar – Hugsum hnattrænt, breytum staðrænt. 7.600 borgir og bæir með samtals 240 milljónir íbúa eru aðilar að sáttmálanum. Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið hér á landi sem hefur skrifað undir sáttmálann. Hefur Reykjavíkurborg skuldbundið sig til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030. Sáttmálinn var upphaflega gerður að frumkvæði framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, svæðanefndar Evrópusambandsins og Evrópuþingsins. Áætlun Evrópusambandsins um kolefnisjafnaða Evrópu 2050 Langflestir Evrópubúar búa í bæjum og borgum eða um 75%. Þéttbýli ber ábyrgð á 60-80% af heildarorkunotkun og 60-80% af losun CO2 og því er ljóst að athafnir okkar hafa áhrif á loftslagslagið, sem aftur hafa mikil áhrif á okkur og þá þjónustu sem við höfum aðgang að. Hitabylgjur, þurrkar og flóð eru á meðal afleiðinga loftslagsbreytinga og má þegar sjá áhrifa þeirra stað í versnandi heilsufari fólks, vaxandi vatnsskorti og minnkandi orkuöryggi, svo að dæmi séu tekin. Kolefnisjöfnuð Evrópa skiptir sveitarfélög gríðarlega miklu ásamt markvissum aðgerðum á sveitarstjórnarstigi. Það er því ekki af tilefnislausu sem að loftslagsmál

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.