Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 28
28
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Í ályktun svæðanefndar Evrópusambandsins
vegna loftslagsstefnu Evrópusambandsins
er af þessum sökum, lögð megináhersla á
mikilvægi sveitarstjórnarstigsins fyrir alla
stefnumótun og aðgerðir í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum.
Mikilvægi sveitarstjórnarstigsins snýr ekki
hvað síst að framkvæmdarþættinum,
en aðgerðir verða í hverju tilviki fyrir
sig að henta þeim aðstæðum sem eru
fyrir hendi. Hér skiptir svæðisbundin
þekking miklu máli; staðgóð þekking á
aðstæðum og samfélagsgerð. Í ályktun
sveitarstjórnarvettvangs EFTA er áréttað
að sveitarfélög búi yfir þessari staðbundnu
þekkingu. Þá er einnig bent á mikilvægi þess
að sveitarfélögum sé tryggt það fjármagn
sem þarft til þess, að þau þjóðarmarkmið
sem hvert ríki hefur sett sér, nái fram að
ganga.
Mikilvægustu skilaboð dagsins eru að
loftslagsmálin kalli á hugarfarsbreytingu
hjá okkur öllum. Um það eru flestir
sammála. Það er hins vegar hægara sagt
en gert. Nálægð sveitarstjórnarstigsins
við nærsamfélagið skiptir miklu máli í
þessu sambandi. Verði baráttan gegn
loftslagsbreytingum háð í nánu samstarfi
við íbúa á hverjum stað, deilum við þeirri
ábyrgð sem við stöndum frammi fyrir og
eignumst hlutdeild í þeim aðgerðum sem
gripið er til. Þannig tryggjum við að sú
hugarfarsbreyting sem þarf að eiga sér
stað nái fram að ganga. Hún hefst hjá okkur
sjálfum, í nærumhverfi okkar og færist
þaðan út á við.
Þetta leiðir okkur að slagorðinu sem áður
var nefnt og á upphaf sitt í heimsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um umhverfi
og þróun, sem fram fór í Ríó 1992 og
markaði tímamót í alþjóðlegu samstarfi að
umhverfismálum. Eitt af helstu slagorðum
ráðstefnunnar var Think Globally Act Locally
eða má kannski íslenska sem Hugsaðu
hnattrænt, breyttu staðrænt.
Vert er að rifja upp, að þrátt fyrir þau tæpu
30 ár sem eru liðin frá Ríó, þá er þetta
slagorð enn jafn viðeigandi og það var þá.
Hugsum hnattrænt, breytum staðrænt.
Óttar Freyr Gíslason,
forstöðumaður Brussel-skrifstofu Sambands
íslenskra sveitarfélaga