Sveitarstjórnarmál - 2019, Page 29
Samfellt þjónustukort
fyrir allt landið
Eitt athyglisverðasta verkefnið sem
Byggðastofnun vinnur nú að, er
gagnvirkt yfirlitskort með upplýsingum
um aðgengi landsmanna að almennri
þjónustu á vegum bæði stjórnvalda
og einkaaðila. Verkefnið er skilgreint í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem eitt
af samstarfsverkefnum ríkis og sveitarfélaga
á kjörtímabilinu og er langt á veg komið.
Aðeins vantar lokahnykkinn, þar á meðal
upplýsingar frá sveitarfélögunum sem nú er
leitað eftir.
Einstakt frumkvöðlaver
Markmiðið er að upplýsingar um þá
þjónustu sem er fyrir hendi um land allt
verði aðgengilegri og áreiðanlegri en
nú er. Með því móti er ætlunin að vekja
upp aflvaka nýsköpunar og skilvirkari
stefnumótunar í byggðamálum, sem getur
svo aftur skilað sér í betri þjónustu, auknu
þjónustuframboði og notendavænni
þjónustulausnum svo að einhverjir
möguleikar séu nefndir.
Ráðgert er að lokið verði við að skrá um
65 þjónustuflokka á þjónustukortið,
thjonustukort.is, fyrir árslok og þá
verður það fyrsta kort sinnar tegundar,
sem veitir aðgang að heildstæðum
þjónustuupplýsingum um land allt. Er
þjónustukortið að þessu leyti einstakt
frumkvöðlaverk. Mikilvægt er síðan að
upplýsingar sem til grundvallar liggja verði
sífellt uppfærðar.
Samstarfið við sveitarfélögi
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fékk
Byggðastofnun málið í hendur á síðasta
ári. Byggðastofnun hefur sótt ráðgjöf til
Alta ráðgjafarstofu, Landmælinga Íslands
og Capacent og samstarf við ráðuneyti og
ríkisstofnanir. Hefur kortagerðinni miðað vel
og í sumar sem leið kynnti Byggðastofnun
nýja vefsjá. Með því að opna sjána þegar á
fyrstu stigum verksins, gafst öllum kostur
á að koma ábendingum tímanlega til
Byggðastofnunar varðandi þróun kortsins
og notkun. Á síðasta ári var komið á fót
verkefnishópi ráðuneyta og Sambands
íslenskra sveitarfélaga til aðstoðar
Byggðastofnun í verkefninu.
Auk þess sem hönnun vefsjárinnar á þó
eftir að taka einhverjum breytingum,
vantar enn mikilvæga upplýsingaflokka á
kortið, eins og áður hefur verið vikið að.
Verkefninu hefur verið skipt upp í tölusetta
áfanga og ráðgert er að þeim áfanga sem að
sveitarfélögunum snýr verði lokið 1. október
nk. Hagur sveitarfélaganna af verkefninu
er verulegur, s.s. hvað kynningarstarf þeirra
snertir, stefnumótunar- og þróunarstarf
og einnig svæðisskipulagsgerð og önnur
samstarfs- og þróunarverkefni á svæðisvísu,
svo að dæmi séu nefnd. Sveitarfélögin hafa
mikilvæga þjónustuþætti með höndum og
því líka mikilvægt fyrir gildi þjónustukortsins
að þær verði birtar þar.
Staðlaður samningur einfaldar málið
Til að greiða fyrir aðkomu sveitarfélaga,
hefur verið útbúið einfalt samningsform
sem skilgreinir í hverju samstarfið við
Byggðastofnun felst. Um afhendingu á
upplýsingum er að ræða, sem ætti að vera
fljótlegt fyrir sveitarfélög að taka saman
og uppfæra á reglubundnum grunni. Þá er
einnig opnað á samstarf að frekari þróun
þjónustukortsins, standi vilji almennt til þess
síðar meir.
Skjáskot af þjónustukorti Byggðastofnunar á www.thjonustukort.is.