Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 2019, Side 31

Sveitarstjórnarmál - 2019, Side 31
31 Með samþykkt Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna árið 2015 stigu leiðtogar heimsins eitt stærsta skrefið sem stigið hefur verið í átt að betri heimi og bættum lífsgæðum. Með þessum 17 markmiðum er stefnt að því að minnka fátækt, berjast gegn ójöfnuði og óréttlæti og stoppa loftslagsbreytingar fyrir árið 2030. Með heimsmarkmiðunum er lögð fram stefna fyrir okkur öll. Það er mikilvægt að sem flestir geri sér grein fyrir því að sveitarfélögin gegna lykilhlutverki við að koma heimsmarkmiðum í framkvæmd. Vonandi vita allir að sveitarfélögin sinna mikilvægri nærþjónustu við alla íbúa landsins. Rætt hefur verið um að um það bil 65% af heimsmarkmiðunum sé að einu eða öðru leyti háð framgöngu sveitarfélaga. Staðreyndir sem þessar brýna okkur öll til dáða. Málþing um heimsmarkmiðin og sveitarfélögin var haldið á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga nýlega. Á málþingið mættu yfir 170 einstaklingar sem sýndi vel þann áhuga sem sveitarstjórnarmenn sýna þessu mikilvæga verkefni. Á málþinginu voru fluttar fjölmargar kynningar sem kveiktu bæði umræður og vöktu spurningar meðal fundargesta. Var það mál manna að vel hafi tekist til og að málþingið hafi kveikt áhuga og vakið jákvæða athygli á mikilvægi þess að heimsmarkmiðin verði innleidd í alla stefnumörkun sveitarfélaga. Tvö sveitarfélög, Kópavogur og Mosfellsbær, hafa vakið sérstaka athygli fyrir sína nálgun á heimsmarkmiðin. Í úttekt Nordregio, Norrænu byggðastofnunarinnar, sem gerð var á síðasta ári á norrænum sveitarfélögum og heimsmarkmiðunum kom í ljós að Kópavogur og Mosfellsbær voru að mörgu leyti gott dæmi um þá fjölbreyttu nálgun sem einkennir vinnu norrænna sveitarfélaga að heimsmarkmiðunum. Er vinna þessara sveitarfélaga okkur hinum til eftirbreytni. Megin niðurstaðan í Nordregio úttektinni er þó að sveitarfélög kalla eftir stefnu og mögulegu samstarfi. Fullyrða má að sambandið sem samstarfsvettvangur sveitarfélaga gegni lykilhlutverki fyrir sameiginlega nálgun okkar á heimsmarkmiðin. Tilgangurinn með málþinginu var að hrinda vinnu að heimsmarkmiðunum formlega af stað sem verkefni sveitarfélaganna. Sambandið mun í framhaldinu hafa frumkvæði að frekara kynningarstarfi og veita þeim sveitarfélögum aðstoð sem eftir því leita. Þá verður á næstu vikum kannað hvort setja megi á fót samstarfs- og samráðsvettvang sveitarfélaga sem hefði það hlutverk að marka sameiginlega stefnu eða sýn sveitarfélaganna á heimsmarkmiðin og innleiðingu þeirra. Sveitarfélög vítt og breitt um landið eru víða að gera virkilega góða hluti. Unnið er að fjölmörgum góðum verkefnum og mörg þeirra falla án efa lóðbeint að heimsmarkmiðunum án þess kannski að við gerum okkur grein fyrir því. Oft getur einungis þurft að formgera það sem verið er að gera, skrásetja árangur og láta síðan vita af því sem vel er gert. Það er óhætt að fullyrða að sveitarstjórnarmenn munu ekki láta sitt eftir liggja til að tryggja að Ísland geti með sem bestum hætti uppfyllt Heimsmarkmiðin. Það munum við gera með hagsmuni íbúa í nútíð og framtíð að leiðarljósi. Það er óhætt að fullyrða að sveitarstjórnarmenn munu ekki láta sitt eftir liggja til að tryggja að Ísland geti með sem bestum hætti uppfyllt Heimsmarkmiðin. Sveitarfélögin gegna lykil- hlutverki við að koma heims- markmiðunum í framkvæmd Ávarp Aldísar Hafsteinsdóttur, formanns sambandsins, á kynningarfundi um heimsmarkmiðin 15. febrúar2019 Fjölmennt var á kynningarfundi um heimsmarkmiðin í febrúar og myndaðist nokkur röð við innskráningu þátttakenda áður en fundurinn hófst.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.