Sveitarstjórnarmál - 2019, Side 32
Dagana 3. til 5. apríl leggur alþjóðlega
ráðstefnan Snow 2019 Siglufjörð undir sig.
Á meðal aðalfyrirlesara er Stefan Margreth,
yfirmaður varnarvirkjateymis hjá Svissnesku
snjóflóðastofnuninni, SLF, í Davos, en
hann hefur unnið sem sérfræðingur við
snjóflóðavarnir á Íslandi í meira en tvo
áratugi. Viðtalið hér á eftir við Stefan er birt
með góðfúslegu leyfi Verkfræðingafélags
Íslands, skipuleggjanda ráðstefnunnar.
Byrjaði á Ísafirði
Fyrsta verkefnið sem Stefan tók að sér hér
á landi var árið var árið 1994 og laut það að
ráðgjöf við hættumat fyrir Ísafjarðarbæ eftir
að lyftur og annar búnaður á skíðasvæði
þeirra hafði eyðilagst að mestu í snjóflóði.
Í framhaldi af því fór verkefnunum
fjölgandi. Má þar nefna heildaráætlun
um varnaraðgerðir á Íslandi árið 1997,
frumhönnun að vörnum víða um land,
yfirumsjón með hönnun upptakastoðvirkja
og margt fleira. „Á Ísafirði Þar kynntist
ég Oddi Péturssyni, hinum kunna
snjóaeftirlitsmanni og skíðagöngugarpi, sem
kom með mörg góð og skynsamleg innlegg
í hættumatsvinnuna. Eftir vinnuferðina
gafst mér og eiginkonu minni færi á að fara í
yndislega gönguferð á Hornstrandir þar sem
við m.a. gistum í bústað Odds á Hesteyri,“
rifjar Stefan upp.
Eftir snjóflóðin hörmulegu á Súðavík og
Flateyri var Stefan fenginn í hóp sérfræðinga
til þess að meta þörf á snjóflóðavörnum
á Íslandi. „Í þeirri vinnu var mikilvægt fyrir
mig að heimsækja öll þorp á Íslandi sem
bjuggu við snjóflóðahættu og meta hættu
þar ásamt íslenskum og norskum samstarfs-
mönnum. Þessi vinna hjálpaði mér að
skilja betur snjóflóðaaðstæður á Íslandi og
vandamál sem þeim tengjast og var góður
Munar mest um skógana
Viðtal við Stefan Margreth, yfirmann varnarvirkjateymis hjá Svissnesku snjóflóðastofunni SLF, í
Davos, en hann hefur unnið sem sérfræðingur við snjóflóðavarnir á Íslandi í meira en tvo áratugi.
Stefan Margeth er sérfræðingur í
snjóflóðavörnum.
Hnífsdalur og Skutulsfjörður blasa hér við ofan af Eyrarfjalli en þar hafa verið settar upp miklar snjóflóðavarnir.