Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 35

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 35
35 SVEITARSTJÓRNARMÁL Mín framtíð fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 14. til 16. mars sl. og var opnunarhátíðin að venju glæsileg. Flutti Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra ávarp og að því loknu fékk forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, leiðsögn um svæðið. Mín framtíð er þriggja daga viðburður sem fer fram annað hvert ár í samstarfi Verkiðnar og allra framhaldsskóla landsins. Skólarnir kynna fjölbreytt námsframboð og keppni fer fram á Íslandsmóti iðn- og verkgreina, en um 7.000 grunnskólanemendum af öllu landinu býðst að koma og taka þátt. Myndirnar í opnunni eru frá opnunarhátíðinni en þær tók skólateymi Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og var eins og sjá má kátt í höllinni. Boðið var upp á fjölbreytta viðburði og kynningar og mega allir prófa, fikta, snerta og smakka á því sem fyrir augu ber. Kátt í höllinni Af vettvangi sambandsins 28. mars 29. mars 2.-5. apríl 20. maí Sveitarfélögin og loftslagsmál XXXIII. landsþing sambandsins Ráðstefna um snjóflóðavarnir Málþing um skólaforðun Hótel Reykjavík Natura Grand hótel Reykjavík Sigló hótel Siglufirði kl. 10:00-16:00 kl. 10:00-15:45 www.samband.is/ um-okkur/fundir- og-radstefnur/ malthing-um- loftslagsmal/ www.samband. is/um-okkur/ landsthing- sambandsins/ landsthing-2019/ www.snow2019.is www.samband.is/ um-okkur/fundir- og-radstefnur/ malthing-um- skolafordun Nýtt fjarfundamet slegið Föstudaginn 22. mars sl. funduðu sérfræðingar kjarasviðs Margrét Sigurðardóttir og Berglind Eva Ólafsdóttir með 35 launafulltrúum um land allt. Þær stöllur voru þó einar í fundarherbergi sambandsins, Allsherjarbúð, en launafulltrúarnir tengdust fundinum í gegnum Skype for Buisness forritið. Er þetta mesti fjöldi sem tengst hefur í einu inná fund hjá sambandinu. Það er ljóst að fjarfundum sem þessum mun fjölga jafnt og þétt og sambandið vinnur að því að efla fjarfundabúnað sinn og bæta með því þjónustu við öll sveitarfélög landsins enn frekar. Margrét og Berglind á fundi með 35 launafulltrúum, sem tengdust fundinum með Skype for Buisness forritinu.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.