Sveitarstjórnarmál - 2019, Side 37
37
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Breytingar eru óhjákvæmilegar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og formaður borgarráðs
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir tók í fyrsta sinn
sæti í borgarstjórn í fyrravor. Segja má að
hún hafi byrjað á toppnum, en Þórdís Lóa
hafði vart náð kjöri fyrr en hún var orðin
formaður borgarráðs í nýjum meirihluta
Viðreisnar, Samfylkingar, Vinstri grænna og
Pírata.
Henni finnst gaman að vera komin í
sveitarstjórnarmálin og segir að margt hafi
komið sér skemmtilega á óvart. „Sérstaklega
hve borgarlífið hefur þróast á undanförnum
árum. Þetta er sannarlega ekki sama borgin
og fyrir nokkrum áratugum og það er
frábært að sjá hvernig Reykjavík hefur þróast
í fallega borg með þorpslegum blæ, ef svo
má segja. Hún bendir jafnframt á að lýðfræði
samfélaga sé að taka miklum breytingum
og mikilvægt sé að vera vel á verði í þeim
efnum. „Svo verðum við að passa að
fylgja tækniþróun og alþjóðaþróuninni
eftir og ekki síst að mæta fjölbreyttum
þörfum borgaranna. Eitt af því fyrsta sem
ég lærði, þegar ég starfaði sem yfirmaður
öldrunarþjónustu Reykjavíkur á sínum
tíma, var að það sem er í dag verður ekki
á morgun. Breytingar eru óhjákvæmilegar
og því verðum við að hafa kjark og þor til
að standa andspænis því og taka góðar
ákvarðanir fyrir nútíð og framtíð.“
Enda þótt Þórdís Lóa sé ný í borgarstjórn,
er hún langt í frá nýliði í stjórnmálum. „Ég
hef lengi verið í einhvers konar pólitík, s.s.
stúdentapólitík og fagpólitík. Undanfarin
15 ár var ég aðallega í atvinnulífstengdri
hagsmunapólitík, m.a. sem formaður
Félags kvenna í atvinnulífinu á árunum
2013-2017 og formaður Finnsk-Íslenska
viðskiptaráðsins 2009-2017,“ segir Þórdís
Lóa um aðkomu sína að stjórnmálum. „Þá
þekkti ég nokkuð vel til borgarmálanna, en
ég starfaði um árabil hjá Reykjavíkurborg
fyrst á íþrótta- og tómstundasviði og síðar
sem framkvæmdastjóri á velferðarsviði.
Einnig kenndi ég um sjö ára skeið við
Háskóla Íslands m.a. rekstur, stjórnun,
þjónustu og laga- og reglugerðarumhverfi í
félagsþjónustu sveitarfélaga.”
Um megináherslur sínar í stjórnmálum segir
Þórdís Lóa, að þær hafi lengi verið frjálslyndi,
jafnrétti og alþjóðamál. „Þessar áherslur
tek ég auðvitað með mér í stjórnmálin. Þá
hef ég mikinn áhuga á þróun samfélaga,
allri þeirri dýpt og þeim fjölbreytileika
sem því tengist og mér finnst ómetanlegt
að hafa fengið þetta tækifæri til að móta
framtíðarsýn fyrir stærsta sveitarfélag
landsins,“ segir hún af einlægni. Reynslan
af því að stjórna fyrirtækjum á Íslandi og í
Finnlandi hafi í þessu sambandi reynst sér
dýrmæt. „Ég kynntist þannig vel ólíkum
efnahagslegum þáttum og alþjóðastarfi
fyrirtækja. Ætli það hafi ekki ýtt enn frekar
undir skilning minn á mikilvægi opins og
fjölbreytts samfélags.”
Sveitarstjórnarkosningar á síðasta ári voru
þær fyrstu sem Viðreisn tók þátt í og liggur
beint við að spyrja hvort Þórdís Lóa og
félagar hafi átt von á því að komast inn? „Við
fundum strax fyrir góðum stuðningi, bæði
í Reykjavík og annars staðar á landinu. Ég
ákvað að halda í bjartsýnina enda sýndu
kannanir svo að segja frá upphafi, að okkar
fólk kæmist inn. Í raun var spurningin
bara hve margir. Í mínum huga voru tveir
borgarfulltrúar markmiðið og miðað við
kosningabaráttuna, sem var um margt
sérstök enda með 16 flokka í framboði, held
ég að við getum vel við unað – sem þriðji
stærsti flokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur.“
Hvernig kann svo atorkukonan
Þórdís Lóa við sig í nýja hlutverkinu?
„Með starfsreynsluna úr velferðar- og
tómstundamálum í farteskinu finnst mér
svolítið eins og núna sé ég komin aftur
heim,“ segir hún og brosir. „Auðvitað
hefur ýmislegt breyst, samfara fjórðu
iðnbyltingunni og nýjum áherslum í
borgarþróun nútímans. Það eru forréttindi
að fá að taka þátt í að móta samfélagið
og þróa mikilvæga þjónustu á þeim
tæknivæddu tímum sem við lifum,“ segir
hún með áherslu. „Sem rekstrarhagfræðingi
finnst mér efnahagsumhverfið og fjármálin
óneitanlega skemmtileg og á því sviði eru
margir afar spennandi hlutir að gerast.“
Sem dæmi um það nefnir hún tengingu
fjármála og umhverfismála í borgarþróun.
„Reykjavíkurborg varð á dögunum fyrsti
aðilinn til að gefa út græn skuldabréf í
íslenskum krónum og byggir sú útgáfa á
alþjóðlegum grænum ramma og staðfestir
grænar áherslur borgarmeirihlutans.“
SÍÐASTA ORÐIÐ
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir borgarfulltrúi.