Breiðholtsblaðið - nov. 2018, Síða 14

Breiðholtsblaðið - nov. 2018, Síða 14
14 Breiðholtsblaðið NÓVEMBER 2018 Stefán Gíslason er nýr þjálfari meistaraflokks Leiknis en hann gerði tveggja ára samning við Leikni. Stefán er flestum knattspyrnu áhugamönnum ku n n u gu r . Han n á að bak i f a r sælan atvinnumannaferill með liðum á borð við Bröndby, Lyn og Viking Stavanger. Stefán hefur einnig leikið rúmlega 30 A-landsleiki fyrir Ísland auk þess að eiga fjöldann allan af yngri landsleikjum. Árið 2014 kom Stefán heim til Íslands þar sem hann lék eitt tímabil með Breiðablik í Pepsi-deildinni. Eftir það þjálfaði hann 2. flokk Breiðabliks áður en hann tók við Haukum í Inkasso-deildinni og stýrði þeim í 7. sæti deildarinnar árið 2017 en hætti störfum eftir tímabilið. Við bjóðum Stefán innilega velkominn í Breiðaholtið og óskum honum góðs gengis á komandi tímabili. Stefán Gíslason. Stefán Gíslason þjálfar meistaraflokk Leiknis √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ Mínar síður √ Húsbók þjónustusaga húss √ Auk annarrar þjónustu Húsfélagaþjónusta Eignaumsjón leiðandi í 17 ár www.eignaumsjon.is Tilvalin sumargjöf fyrir dömur á öllum aldri Fáanleg í 12 litum í fullorðins- og barnastærð. Nánar um sölustaði á facebook Helstu útsölustaðir í Reykjavík Allar sundlaugar, Apótekarinn Mjódd og Breiðhöfða, Lyf og heilsa; Granda, Kringlu og Austurveri, Snyrtivöru- búðin Glæsibæ, Mistý, Lyfjaver, Reykjavíkur Apótek, Árbæjarapótek, Urðarapótek. Netverslanir Aha.is, Heimkaup og Krabbameinsfélagið. Tilvalin gjöf fyrir Leiknir mun tefla fram meistaraflokki kvenna á komandi tímabili. Fyrsta æfing hefur þegar farið fram og voru um tuttugu stelpur mættar á æfingar og nokkrar af þeim uppaldar í yngri flokkum Leiknis. Garðar Gunnar Ásgeirsson er þjálfari liðsins en hann þarf vart að kynna fyrir Leiknisfólki enda uppalinn Leiknismaður og hefur komið að þjálfun meistaraflokks og yngra flokka Leiknis þó nokkrum sinnum. Stefnan er að liðið keppi í 2. deild kvenna í sumar og í Lengjubikarnum í vetur og er mikill tilhlökkun bæði hjá Leikmönnum og félaginu. Svo sannarlega gleðiefni og vonumst við til að stelpurnar fá góðar móttökur í sumar. Garðar Gunnar Ásgeirsson. Leiknir með meistaraflokk kvenna Þangbakka 10 (MJÓDD) • Sími: 557-2053 Blóðsykursmæling og basar í göngugötunni í Mjódd Í dag fimmtudaginn 15. nóvember kl. 12-16 býður Lionsklúbburinn Engey upp á ókeypis blóðsykursmælingar, í göngugötunni í Mjódd, sem hjúkrunarfræðingar í klúbbnum annast. Á sama tíma er klúbburinn einnig með basar í göngugötunni til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Á basarnum verða til sölu ljúffengar heimabakaðar kökur og brauð. Lionsklúbburinn Engey

x

Breiðholtsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.