Breiðholtsblaðið - nov 2018, Blaðsíða 15
15BreiðholtsblaðiðNÓVEMBER 2018
GETRAUNANÚMER
ÍR ER 109
Fréttir
Íflróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Tölvu póst ur: ir@ir.is
Heimasíða: ir.is
Fimm leikmönnum í 2. flokki
karla hjá knattspyrnudeild ÍR
hefur verið boðið að skoða
aðstæður hjá stórliðnu Malmö FF
í lok nóvember. Þessir leikmenn
hafa allir tekið þátt í verkefnum
á vegum KSÍ á síðastliðnu ári og
vill sænska liðið fá þá í viku til
sín í reynslu.
ÍR hefur verið í samstarfi
við Malmö FF eftir æfingaferð
sem farin var vorið 2017. Þá
sýndu Svíarnir ÍR-liðinu mikinn
áhuga og í kjölfarið buðu þeir
leikmönnunum fimm, Adam Thor-
steinssyni, Braga Karli Bjarka-
syni, Ívani Óla Santos, Kristjáni
Jóhannessyni og Róberti Andra
Ómarssyni, að koma og skoða
aðstæður. Knattspyrnudeild ÍR
óskar strákunum velgengni úti
og er stolt af sínum mönnum.
Deildin vonar að þetta samstarf
verði hvatning fyrir iðkendur sína.
Þessir fimm strákar frá ÍR eru að fara að skoða aðstæður hjá Malmö FF.
Borgarráð samþykkti þann 8. nóvember sl. að gengið yrði að
besta tilboðinu í fjölnota íþróttahús sem mun rísa á ÍR-svæðinu.
Í kjölfar samþykktar borgarráðs verður gengið frá samningi við
verktaka sem ljúka mun hönnun og hefja framkvæmdir. Þessi
mikilvægi áfangi í uppbyggingu ÍR-svæðisins er með öðrum
orðum að skila sér í höfn.
Húsið samanstendur af fjölnota íþróttasal þ.e. hálfum
knattspyrnuvelli auk æfingasvæðis fyrir frjálsar íþróttir í vesturenda
hússins. Tveggja hæða hliðarbygging meðfram eystri langhlið salar.
Í hliðarbyggingu er meðal annars gert ráð fyrir búningsaðstöðu,
lyftingasal, geymslurýmum, tæknirými, salernisaðstöðu, aðstöðu
fyrir áhorfendur og lyftu. ÍR fagnar þessum fréttum og gaman
verður að fylgjast með uppbyggingu svæðisins.
Fjölnota íþróttahús
rís á ÍR-svæðinu
Fimm leikmenn frá ÍR til Malmö FF.
Ástrós Pétursdóttir úr ÍR náði
frábærum árangri á Evrópumóti
landsmeistara í keilu sem
haldið var í Langen í Þýskalandi
dagana 22. til 29. október.
Ástrós komst í 16 kvenna úrslit
en hún er fyrsta íslenska konan
sem nær þeim árangri.
Ástrós var í 19. sæti eftir fyrri
keppnisdag en spilaði sig upp í
15. sæti á seinni keppnisdegi
og inn í 16 kvenna úrslit þegar
seinn 8 leikirnir voru leiknir í
forkeppninni. Ástrós náði 1.499
seríu eða 192,6 í meðaltal í fyrri
8 leikjunum en náði að spila sig
upp með góðum endaspretti
í seinni 8 leikjunum með 1.582
seríu eða 197,8 í meðaltal en
síðustu þrír leikirnir hjá henni
voru 223 – 226 og 240 en besti
leikur hennar var þó 268. Ástrós
náði því miður ekki að komast
áfram í úrslitakeppnina en 8 efstu
komust áfram.
Alls tóku 37 konur þátt frá 36
löndum. Sigurvegari mótsins
í kvennakeppninni var Mai
Ginge Jensen frá Danmörku en
hún sigraði Eliisa Hiltunen frá
Finnlandi í úrslitum.
Ástrós Pétursdóttir.
Ástrós í úrslit á ECC18
Árlegt Þorrablót ÍR verður haldið í íþróttahúsi Seljaskóla
laugardagskvöldið 19. janúar nk. Veislustjóri kvöldsins verður
Gísli Einarsson og hljómsveitin Bandmenn mun leika fyrir dansi.
Miðasala hefst í ÍR-heimilinu mánudaginn 3. desember kl. 16:00.
Seld verða heil tólf manna borð og hámark tvö borð seld til sama
einstaklings. Verð fyrir mat og ball kr. 9.700.-
Undirbúningur þessa stórviðburðar í hverfinu sem nú verður
haldinn í áttunda skipti er í fullum gangi og stefnt á mikla stemmingu
og gleði. Undirbúningsnefnd Þorrablóts ÍR skipa: Reynir Leví
Guðmundsson formaður, Brynja Guðmundsdóttir, Brynjar Már
Bjarnason, Fríða Rún Þórðardóttir, Hrannar Máni Gestsson, Matthías
P. Einarsson og Rúnar G. Valdimarsson. Auk nefndarmanna koma
á annað hundrað sjálfboðaliðar ÍR að undirbúning og framkvæmd
blótsins eins og undanfarin ár.
Þorrablót ÍR í undirbúningi
ÁfRAM ÍR
ALLTAF FULLT BORÐ
AF FERSKUM FISKI
OG FISKRÉTTUM
Opið alla virka daga kl. 9 – 18:30.
Tölvur og gögn ehf.
þ e k k i n g o g r e y n s l a
T& G PC & Mac
Þarabakki 3, Mjódd
109 Reykjavík
Sími: 696-3436
www.togg.is
• Office 365 þjónusta
• Gagnabjörgun og afritun
• Umsjón tölvukerfa
• Vefsíðugerð og umsjón
• Tölvuviðgerðir
• Tölvur og jaðarbúnaður
HEiMASÍðA ÍR www.ir.is