Nesfréttir - jun. 2019, Qupperneq 8
8 Nesfrétt ir
Viðtal við Walter Lentz
Walter Lentz sjón-tækjafræðingur er fæddur 1934 og uppalinn í Köln
í Þýskalandi. Köln er meira en
tvö þúsund ára gömul borg sem
rómverska keisaradrottningin
Colonia Aggripaninsis lét byggja.
Walter kom til Íslands árið
1955 og lifði því öll stríðsárin í
Þýskalandi og þær hörmungar
sem þeim fylgdu. Á síðustu árum
heimsstyrjaldarinnar fór hann
og fjölskyldan á hverjum degi
eða nóttu í kjallarann eða næsta
loftvarnarbyrgi. Fólk varð mjög
óttaslegið þegar það heyrði í fleiri
en 100 sprengiflugvélum og ískrið
í sprengjunum út um allt.
Um 80% af Köln var eyðilögð og
um 40 þúsund óbreyttir borgarar
létu lífið. Árið 1944 fór Walter
með móður sinni til Austur
Þýskalands þar sem allt var rólegra
í sveitinni. Faðir Walters vann hjá
Ford bílaverksmiðjunum í Köln
sem deildarstjóri og slapp við
hermennsku. Walter og móðir hans
upplifðu aðrar hörmungar þegar
stríðinu lauk og Rússar hertóku
svæðið. Þar voru Mongólar og
Kósakkar á ferðinni og var mikið
ráðist á konur. Brátt var öllu fólki
sem áttu ekki lögheimili á svæðinu
skipað að fara burt. Walter og
móðir hans fóru meira og minna
fótgangandi um 400 kílómetra leið
til Kölnar. Fóru þau oft fram hjá
rústum og föllnum hermönnum.
Þetta var ótrúleg reynsla. Það tók
þau um sex mánuði að komast
til Kölnar þar sem faðir Walters
og eldri bróðir voru heilir á húfi.
Þessi reynsla kenndi þeim að vera
nægjusöm og ánægð með að lifa af
allar hörmungarnar.
Hafði lesið Nonnabækurnar
Eftir skólagöngu fór Walter árið
1949 að læra sjóntækjafræði sem er
þriggja og hálfs árs nám samhliða
tækniskóla sem lauk með prófi
í faginu. Eftir tveggja ára vinnu
hitti Walter skólabróðir sinn sem
vann á Íslandi og útvegaði honum
starf hér á landi og tækifæri til að
víkka sjóndeildarhringinn. Walter
vissi lítið um Ísland en hann hafði
aðgang að kaþólsku bókasafni og
var búinn að lesa Nonnabækurnar.
Árið 1955 kom hann með
Gullfossi til Íslands.
Kynntist konunni minni
Eftir eins árs vinnu í
gleraugnaverslun ætlaði Walter
að fara til Ameríku. En úr því varð
ekki. Walter kynntist konunni
sinni Ragnheiði. Foreldrar
hennar voru Kristjana Hafstein
dóttir Hannesar Hafstein og
Sigurður Jónsson verkfræðingur
og forstjóri Slippfélagsins.
Ragnheiður og Walter giftu sig
1957. Þau eiga tvo syni Hannes
sem er tryggingaráðgjafi og Pétur
sem er flugstjóri. Barnabörnin
eru sex, Kristína sem er
alþjóðalögfræðingur, Kristófer
Páll viðskiptafræðingur, Eva
María verðandi atvinnuflugkona,
Davíð Walter, Linda Ragna og
Tómas öll nemendur.
Stofnaði gleraugnaverslun
Árið 1961 stofnaði Walter
gleraugnaverslun á Laugarvegi 12.
Þar var mjög rólegt til að byrja með
og þurfti Walter að hafa mikið fyrir
því að vinna hana upp. Hann gerði
allt sjálfur og vann mikið, stundum
fram á nótt. Hann fórnaði ýmsu
fyrstu árin til að sjá bjartari framtíð.
Árið 1968 keypti hann húsnæði að
Laugavegi 65 og árið 1973 opnaði
hann glæsilega gleraugnaverslun
þar, verslun sem enn er starfandi.
Sjónmælingarnar breyttu
starfinu
Eftir að hafði rekið Gleraugnasölu
í allmörg ár urðu nokkrar
breytingar á starfsumhverfinu.
Sjóntækjafræðingar vildu fá réttindi
til þess að gera sjónmælingar. Þetta
kom til vegna þess að biðtími hjá
augnlæknum var oft mjög langur.
Hingað kom enskur prófessor til
Nauðsynlegt að nýta það fallega
sem landið hefur að bjóða
Walter Lentz ásamt eiginkonu sinni Ragnheiði Sigurðardóttur.
Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is