Nesfréttir - jún. 2019, Blaðsíða 8

Nesfréttir - jún. 2019, Blaðsíða 8
8 Nesfrétt ir Viðtal við Walter Lentz Walter Lentz sjón-tækjafræðingur er fæddur 1934 og uppalinn í Köln í Þýskalandi. Köln er meira en tvö þúsund ára gömul borg sem rómverska keisaradrottningin Colonia Aggripaninsis lét byggja. Walter kom til Íslands árið 1955 og lifði því öll stríðsárin í Þýskalandi og þær hörmungar sem þeim fylgdu. Á síðustu árum heimsstyrjaldarinnar fór hann og fjölskyldan á hverjum degi eða nóttu í kjallarann eða næsta loftvarnarbyrgi. Fólk varð mjög óttaslegið þegar það heyrði í fleiri en 100 sprengiflugvélum og ískrið í sprengjunum út um allt. Um 80% af Köln var eyðilögð og um 40 þúsund óbreyttir borgarar létu lífið. Árið 1944 fór Walter með móður sinni til Austur Þýskalands þar sem allt var rólegra í sveitinni. Faðir Walters vann hjá Ford bílaverksmiðjunum í Köln sem deildarstjóri og slapp við hermennsku. Walter og móðir hans upplifðu aðrar hörmungar þegar stríðinu lauk og Rússar hertóku svæðið. Þar voru Mongólar og Kósakkar á ferðinni og var mikið ráðist á konur. Brátt var öllu fólki sem áttu ekki lögheimili á svæðinu skipað að fara burt. Walter og móðir hans fóru meira og minna fótgangandi um 400 kílómetra leið til Kölnar. Fóru þau oft fram hjá rústum og föllnum hermönnum. Þetta var ótrúleg reynsla. Það tók þau um sex mánuði að komast til Kölnar þar sem faðir Walters og eldri bróðir voru heilir á húfi. Þessi reynsla kenndi þeim að vera nægjusöm og ánægð með að lifa af allar hörmungarnar. Hafði lesið Nonnabækurnar Eftir skólagöngu fór Walter árið 1949 að læra sjóntækjafræði sem er þriggja og hálfs árs nám samhliða tækniskóla sem lauk með prófi í faginu. Eftir tveggja ára vinnu hitti Walter skólabróðir sinn sem vann á Íslandi og útvegaði honum starf hér á landi og tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn. Walter vissi lítið um Ísland en hann hafði aðgang að kaþólsku bókasafni og var búinn að lesa Nonnabækurnar. Árið 1955 kom hann með Gullfossi til Íslands. Kynntist konunni minni Eftir eins árs vinnu í gleraugnaverslun ætlaði Walter að fara til Ameríku. En úr því varð ekki. Walter kynntist konunni sinni Ragnheiði. Foreldrar hennar voru Kristjana Hafstein dóttir Hannesar Hafstein og Sigurður Jónsson verkfræðingur og forstjóri Slippfélagsins. Ragnheiður og Walter giftu sig 1957. Þau eiga tvo syni Hannes sem er tryggingaráðgjafi og Pétur sem er flugstjóri. Barnabörnin eru sex, Kristína sem er alþjóðalögfræðingur, Kristófer Páll viðskiptafræðingur, Eva María verðandi atvinnuflugkona, Davíð Walter, Linda Ragna og Tómas öll nemendur. Stofnaði gleraugnaverslun Árið 1961 stofnaði Walter gleraugnaverslun á Laugarvegi 12. Þar var mjög rólegt til að byrja með og þurfti Walter að hafa mikið fyrir því að vinna hana upp. Hann gerði allt sjálfur og vann mikið, stundum fram á nótt. Hann fórnaði ýmsu fyrstu árin til að sjá bjartari framtíð. Árið 1968 keypti hann húsnæði að Laugavegi 65 og árið 1973 opnaði hann glæsilega gleraugnaverslun þar, verslun sem enn er starfandi. Sjónmælingarnar breyttu starfinu Eftir að hafði rekið Gleraugnasölu í allmörg ár urðu nokkrar breytingar á starfsumhverfinu. Sjóntækjafræðingar vildu fá réttindi til þess að gera sjónmælingar. Þetta kom til vegna þess að biðtími hjá augnlæknum var oft mjög langur. Hingað kom enskur prófessor til Nauðsynlegt að nýta það fallega sem landið hefur að bjóða Walter Lentz ásamt eiginkonu sinni Ragnheiði Sigurðardóttur. Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.