Brautin - 15.12.1998, Qupperneq 6
BRAUTIN
6
Jólí
Vestmannaeyjum
Framhald
maður, sem Arnbjöm hét, besta
hjú, trúr og hollur og þrekmaður
hinn mesti. Eitt sinn, er Fúsi
hafði lengi elt ólamar við föður
minn, sagði faðir minn við
Bjössa, sem þar var nærstaddur:
“Það vildi ég, Bjössi, að þú
hefðir einhver ráð að losa mig
við hann Fúsa.” Bjössi brosti tók
Fúsa undir handarkrika sinn og
labbaði með hann út. Við strákar
vorum forvitnir og langaði að
sjá hvaðe Fúsi yrði einangraður,
og fylgdum því eftir. Bjössi fór
með Fúsa að fiskikró, sem faðir
minn átti niður við sjó,
strönglaði hann þar í bátssegli
og batt að, lagði hann þar á
þægilegan stað, og þar í þessum
umbúðum svaf Fúsi úr sér. Sótti
Bjössi hann undir kveld og var
Fúsi dálítið sneyptur, er heim
kom.
Unglingarnir neyttu yfir höfuð
ekki áfengis og kvenfólk heldur
ekki, svo teljandi væri. Þó vom
hér í þann mund nokkrar eldri
konur frá svörtustu brennivíns-
öldnni, fyrri hluta aldarinnar,
sem voru vínhneigðar og sáust
stundum ölvaðar. Ein þessara
kvenna var gömul kona,
niðursetningur hjá foreldrum
mínum, Þóra að nafni, ekkja
eftir Bjarna, nefndan “knálega”.
Sumir af vinnumönnunum
höfðu gaman af að gefa henni
viðbragð um jólin. Varð það
stundum og mikið. Kerling svaf
í lokrekkju á miðlofti. Gekk hún
flest kvöld snemma til hvílu. Jól
nokkur var hún við vín, svo að
ekki var á bætandi, en þá hafði
einn af piltunum gefið henni
drjúgan ábæti af sterku rommi,
en þegar kerling hafði sopið út,
heyrðum við að hún hrópaði
”Það logar upp úr mér!” Hljóp
þá til maður sá, er gefið hafði
henni rommið og greip þar af
diski kerlingar kaldan gulrófu-
kolfing og tróð honum upp í
hana, til þess að kæla kokið.
Hægðist þá þeirri gömlu svo við
þessa einkennilegu aðgerð, að
hún sofnaði vonum bráðar.
Föður minn sá ég aldrei
bragða áfengi, enda var hann
ávallt í bindindisfélagi því, sem
hinn merki prestur og ágætis
maður, séra Brynjólfur Jónsson
á Ofanleiti, stofnaði hér árið
1864 og veitti til æviloka 1884.
Kom hann hingað þá þeim tíma,
þegar ofdrykkja var hér í
algleymingi, og tókst honum
með fádæma fórnfýsi, samfara
einbeittum vilja á því að bæta úr
þessu böli að brjóta hér hinn
bitrasta brodd þessa þjóðar-
ósóma. I félagi þessu voru oft
50-70 manns. Lagði Brynjólfur
fyrst aðaláhersluna á það að fá í
þennan félagsskap ráðandi menn
héraðsins og bændur, en síðan
unglinga, jafnóðum og fermdir
höfðu verið. Starf hans hér,
bæði utan kirku og innan, mun
seint metið að verðleikum, enda
var hér almenn héraðssorg og
söknuður, er hann féll frá
Jólafriður
Ég hef nú lokið að mestu
þessum pistli mínum og á aðeins
eftir kveðjuorðin: -A jólunum
verða eflaust allir eða flestir á
einhvern hátt varir þess, að það
er hönd friðar og blessunar. sem
að okkur er rétt. Við, hinir eldri,
erum margir tregir og hikandi að
taka í þessa framréttu
friðarhönd, en börnin þau rétta
fram hendur sínar til þess að ná í
þessa hönd, með þá hugsun eina
að halda í hana - ævilangt. Þess
vegna njóta þau einnig í dimm-
asta skammdeginu birtunnar frá
jólaljósinu, hugsa hinar fegurstu
og hreinustu jólahugsanir og
leggjast út af og sofna í sælum
friði, von og gleði jólanna.
Gjafahfkitt
kr. 6.900,-
Gildir fyrir tvo>
Sœtutykitt
(Ein nótt)
Kr. 12.500,-
Gildir fyrir tvo
Sparitykill
(Fjórar nætur í miðri viku)
Kr. 29.800,- Gildir fyrir tvo
HetgartykHt
(fostudagur til sunnudags 2 nætur)
kr. 22.800,- Gildir fyrir tvo*
HVunndaqstykHl
(Tvær nætur í miðri viku)
Kr. 19.600,- Gildir fyrir tvo-
*Innnifalið í öllum lyklum öðrum en Gjafalykli: Gisting, morgunverður af hlaðborði og þríréttaður kvöldverður hússins.
**Innifalið: Gisting og morgunverður af hlaðborði.
SencCum 'Vevtmannaeyíngum 6estu óskír um gCeðíCeg jóCog
farsæCt komancCí dr með fökkýyrír víðskíptín á Cíðnum árum.
TCcCrí óorgarar úr Tyjum,
sjáumst firess og kát á sparícCögum í Vor
Bjóðum uppá raðgreiðslur, póstkröfur og viðskiptanet
Sölustaðir:
Reykjavík: Lykilhótel Cabin sími: 511 6030 og fax: 511 6031
Hveragerði: Lykilhótel Örk sími: 483 4700 og fax: 483 4775
Hótet Örk, Hótet Norðurtand, Hótet Uathött, Hótet Cabin,
Hótet Garður oq Hótet Mýóatn
lítum viðyfir árið sem er að líða
1
I febrúar var heimasíða |
Sparisjóðsins opniiö, slóðin er 1J
www.eyjar.is/sparisjodur/ \ s
I apríl opnuðum við hraðbanka
í fÉÁ í Goðahrauni, sem er til (y?
mikils hægðarauka fyrir alla
korthafa.
í júlí beintengdist
Sparisjóðurinn
Verðbréfaþingi íslands,
sem gerir öll kaup og sölu ,
hlutabréfa mun auðveldari.
í desember tökum við í notkun nýtt
afgreiðslukerfi hjá Sparisjóðnum.
IJpgl |
Gott ogfarsœlt komandi ár
Starfsfólk og stjórn
Sparisjóðs Vestmannaeyja
Góð heilsa gulli betri
Sendum Vestmannaeyingum
bestu óskir um
gleðileg jól
farsælt komandi ár
HEILSUSTOFNUN
N.F.L.Í. HVERAGERÐI