Brautin - 15.12.1998, Síða 11

Brautin - 15.12.1998, Síða 11
BRAUTIN 11 „Það þekkti mig enginn - Ekki einu sinni eiginmaíurinn Heiðurshjónin Unnur og Sigfús á 80 ára afmæli Unnar Ekki er það á mínu færi að rekja lífshlaup Unnar, enda verður það heldur ekki gert í þessum skrifum. Fyrir jólin 1982 tók undirritaður viðtal við Unni, sem birtist í jólablaði Brautarinnar það ár. Langar mig meðal annars til að nota það við- tal í skrifum þessum. Viðtalið snérist um þátttöku Unnar í leiklistinni í tilefni þess að um þau jól ætlaði Leikfélag Vestmannaeyja að frumsýna Eldfærin, það kunna verk eftir H. C. Andersen. Þarna var ekki verið að tala um neinn smáviðburð, því um heimsfrum- sýningu var að ræða, enda hafði verkið aldrei fyrr verið sett á svið í leikritsformi. Þar sem svo var ekki, var ekki til neitt hand- rit fyrir slíka uppsetningu og var Unnur fengin til verksins, sem og að leikstýra því. Fyrsta hlutverkið árið 1950 Strax í sínu fyrsta hlutverki sló Unnur í gegn og varð engin breyting þar á í þeim hlut- verkum sem á eftir komu. Það eru eflaust margir sem muna eftir henni í þessu fyrsta hlut- verki sínu, en það var í Kinnahvolssystrum sem frum- sýnt var 22. september 1950. Þar lék hún Ulrikku. Síðan lék hún í hverju verkinu af öðru og oft fleiri en eitt hlutverk í sama verki. Ógjörningur er að halda tölu á öllum þeim verkum sem Unnur lék í, í gegnum tíðina, hvað þá hversu mörg hlutverk hún lék. Leikstjórinn Unnur Leikritið Eldfærin var sjötta leikritið sem Unnur leikstýrði á ferlinum og voru þá ekki með- talin þau smærri verk sem tilheyrðu Þjóðhátíð, afmælishá- tíðum félagasamtaka og kvöld- vökur svo eitthvað sé nefnt. Þau leikrit sem Unnur hafði áður leikstýrt voru: Hart í Bak eftir Jökul Jakobsson, Skjaldhamra eftir Jónas Arnason, Nornin Baba Jaga eftir Jewgeni Schwarts, Mjallhvít eftir M. Kaiser og Aumingja Hanna eftir Kenneth Horne. Fyrir 16 árum Ég læddi mér um daginn í kaffi- sopa til Unnar og vildi forvitnast örlítið um ætlan hennar að verða sú fyrsta og eina í heiminum sem færir Eldfærin í leikrits- form: Það fyrsta sem hljómaði þegar inn var komið var hin margfræga setningin, viltu kleinu. Þeim kosti var ekki hægt að neita, því hvergi gerast klein- umar betri. Unnur hefur orðið Já nú finnst þér náttúrulega að kerlingin sé komin með mikil- mennskubrjálæði, að ætla sér að ráðast í að semja handrit til uppsetningar á sviði upp úr Eldfærunum eftir H.C. Ander- sen... Þetta er búið að vera feikilega mikil vinna og má segja að það hafi tekið sex vikur að ganga frá handritinu, í stærst- um dráttum, upp úr sögu sem maður er tíu mínútur að lesa. Þau eru sennilega orðin vitlaus á mér, það þurfti alltaf að vera að breyta og lagfæra eftir að æfing- ar hófust. Þetta er ekki hægt nema með úrvalsfólki, eins og mannskapurinn er hjá Leikfélagi Vestmannaeyja. Ef ég væri að byrja verkið núna, er ég viss um að eitthvað yrði öðruvísi. Það er aldrei hægt að ná þessu alveg eins og manni hefði þótt best, svona eftir á. Þetta er búið að vera erilsamur tími, eins og sá tími ávallt er, sem fer í leiklist- ina, en honum er vel varið. Á bólakaf aftur Ég hef oft verið að hugsa það eftir hvert úthald, að nú sé rétt að draga sig í hlé og hætta, en sú skoðun hefur ávallt staðið stutt, því áður en vitað er af, þá er maður kominn á bólakaf í þetta aftur og sér ekki eftir einni einustu mínútu af þeim tíma sem í það fer. Jú ég leikstýri leikritinu, auk þess að leika nornina, en hún er nú drepin í fyrsta þætti, svo öllum ætti að létta. Það þekkti mig enginn, ekki einu sinni eigin- maðurinn Nú byrjaðir þú að leika fyrir 32 árum síðan, hvernig atvik- aðist það? Það var nú eiginlega þannig að ég kom fram árið áður en ég lék mitt fyrsta hlutverk hjá Leikfélagi Vestmannaeyja, á Árshátíð hjá Tý. Það tók nú reyndar nokkurn tíma að fá mig til þess að koma fram og þá með því skilyrði, að mín væri hvergi getið í leikskrá, og að ég yrði að vera illþekkjanleg. Þetta tókst svo vel að ekki einu sinni eigin- maðurinn þekkti hver ég væri. Þannig hófst það. Edie í Þokunni eftirminnilegust Þú ert búin að leika í ótal mörgum hlutverkum, áttu uppá- hald? Það er nánast útilokað að gera upp á milli margra hlut- verka sem ég hef leikið, það þarf þá ýmislegt fleira að koma til. Ég get þó ekki neitað því að mér er eftirminnilegast hlutverk Edie í Margt býr í þokunni. Við höfðum sett það stykki þrisvar sinnum upp og það merkilegasta við það er að kerlingamar þrjár eru leiknar af sömu leik- endunum í öll skiptin. Þær sem léku hinar tvær eru Marta Björnsdóttir, sem lék Joy og Ásta Bjartmars, sem lék Fredu. Það var stórkostlegt að vera með þeim, og satt best að segja þá er stóri draumurinn að fá þær í að setja Þokuna upp í fjórða sinn, það yrði meira fjörið. Já það er margt eftirminnilegt þegar maður hugsar um Þokuna. Við settum hana til dæmis upp í Gosinu og sýndum hana á Suðurlandi. Það var mikil uppli- fun í því að leika hana þá, vegna þeirra aðstæðna sem ríktu. Ég man hvað okkur þótti það tákn- rænt þegar kerlingarnar villtust og þær fundu kofann. Það var svo margt sem átti skylt við raunveruleikann á þessum tíma. Það var svo að Bjöm Tryggva- son hjá Rauðakrossinum bað okkur um að vera með sýningar fyrir þá sem unnið höfðu í sjálf- boðaliðsvinnu vegna gossins. Við sýndum fyrir fullu húsi í öll skiptin. Þessu má ég ekki missa af Undirtektir voru slíkar, að það varð til þess að við fómm sýningarferð um Suðurlandið. Það var margt brallað á þeim ferðum. Mér var falið það sérstaka verkefni að prútta um húsaleiguna og gekk það bara vel. Við höfðum farið víða með Þokuna, til dæmis sýndum við hana á Vestfjörðum og Snæ- fellsnesi vorið 1977. Þá gerðist nokkuð skemmtilegt atvik. Við vorum að sýna á Akranesi og þá kemur maður að miðasölunni, sem spyr hvort það séu sömu leikendur í hlutverkum kerling- anna og í hin tvö fyrri skiptin sem verkið hafði verið sett upp? Hann fékk jákvætt svar við því. Þá sagði maðurinn, elskan láttu mig hafa miða, ég má ekki fyrir nokkurn mun missa af þessu, þetta verður þá í þriðja skiptið sem ég sé þær. Svona hvatning verður til þess að maður á erfitt með að segja skilið við leiklist- ina. Ævinlega þakklát Það er margt eftirminnilegt úr starfinu. Mér er það sérstaklega minnistætt þegar Bæjarleikhúsið var formlega vígt árið 1970, með Gullna hliðinu. Það var stór stund. Aðstaðan sem við höfum er stórkostleg og vel metin. Við sem í þessu stöndum erum bæjaryfirvöldum ævinlega þakk- lát fyrir þann mikla og góða skilning sem vert er að þakka. Við höfum séð það á ferðum okkar um landið, að við búum við betri kost en flestir aðrir. Þakkir Lengra varð þetta ekki um jólin 1982 en þau 16 ár sem á eftir komu, sat Unnur ekki auðum höndum og lagði Leikfélagi Vestmannaeyja mikið til, Alþýðuflokknum sem og bæjarfélaginu sínu, meðal annars með vinnu sinni að málefnum þeirra sem minna máttu sín, svo og málefnum aldraðra, barnaheimilanna, svo eitthvað sé nefnt, en Unnur var fulltrúi í félagsmálaráði bæjarins til margra ára. Að leiðarlokum er Unni þakkað fyrir allt það sem hún gaf af sér, sem var ekki svo lítið. Minningin um Unni Guðjónsdóttur mun lifa. Ég óska öllum bæjarbúum gleði- legra jóla, árs og friðar.^ Guðmundur Þ. B. Olafsson. C1J3 Unnur Guðjónsdóttir 1913 -1998 Eins og kunnugt er, þá lést Unnur Guðjónsdóttir 1. nóvem- ber síðastliðinn. Undirritaður vill fyrir hönd okkar Alþýðuflokksfélaga þakka Unni samfylgdina og það mikla starf sem hún lagði af mörkum fyrir jafnaðarstefnuna og framgang þeirra baráttumáia sem flokkurinn fylgdi í gegnum tíð- ina, almenningi til heilla. Unnur var fœdd í hér í Vestmannaevjum 25. júni 19]3. Foreldrar hennar voru hjónin Guðjón Jónsson frá Sandfelli hér í bœ og Ingveldur Unadóttir. Foreldrar Guðjóns voru: Jón Valdason og Þuríður Jónsdóttir frá Steinum. Foreldrar Ingveldar voru: Uni Runólfsson og Elín Skúladóttir. Systkini Unnar voru Þorvaldur, Hallgrímur, Guðbjörg, Arný, Þuríður og Jónína, öll látin. Unnur eignaðist tvö börn, þau Jón Ragnar Björnsson í fyrra hjónabandi og Katrínu Sigfúsdóttur með eftirlifandi eiginmanni sínum Sigfúsi Sveinssyni. Þá ólu þau Unnur og Sigfús upp Inga Þorgrím Pétursson, en hann lést af slysförum langt um aldur fram. Ragnar á þrjú börn og Katrín eignaðist þrjú börn, en eitt þeirra er dáið. Unnur sem gaf svo mikið af sér, var hrókur alls fagnaðar, hvar sem hún kom. Unnur var mikil félagsmálamanneskja og nutu Vestmannaeyingar krafta hennar, hvort heldur um var að rœða í málefnum bœjar- félagsins, þar sem hún tók virkan þáitt og sat bæði bœjarstjórnarfundi fyrir Alþýðuflokkinn sem og í hinum ýmsu nefndum, Þar ber einna hœst starf hennar í félags- málaráði og framlag hennar í málefnum aldraðra. Það leið ekki sá dagur að Unnur liti ekki inn á Hraunbúðir, heimili aldraðra, og var þá oftast mikið fjör, því alltaf var Unnur til í að gefa af sér, eins og henni var einni lagið, jafn glöð og hress sem hún var. Leikfélag Vest- mannaeyja naut krafta hennar svo sannarlega, en þar var hún Heiðursfélagi, og má segja að saga leikfélagsins og lífshlaup Unnar hafi verið samofið. Hvert hlutverkið af öðru lék Unnur fyrir leikfélagið og bœjarbúa og er ekki ofsagt að í hverju þeim, einu og einasta, fór hún á kostum. Hún átti hug allra, hvort heldur sem hún lék á leiksviði leikhússins eða á leiksviði lífsins. Það verður aldrei aldrei hœgt að þakka fyrir það mikla sem hún gaf af sér. Þar voru hlutirnir ekki skammtaðir. Eiginmafini og fjölskyldunni allri setidi ég samúðarkveðjur. Guðmundur Þ. B. Ólafsson.

x

Brautin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.