Brautin - 15.12.1999, Qupperneq 3
BRAUTIN
Jólahugvekja
Ég er Ijós heimsins. Sá sem fylgir
mér, mun ekki ganga í myrkri, held-
urhafa Ijós lífsins. (Jóhannes 8:12.)
Þessi setning er sögð í Landakirkju
í hverjum sunnudagaskóla, allir þeir
sem talað geta taka undir um leið og
kveikt er á kertunum. Það er gott að
hafa þetta yfir með börnunum, því
eins og máltækið segir „ lengi býr að
fyrstu gerð”. Allt það góða sem við
leggjum inn hjá börnunum okkar
hjálpar þeim síðar meir á lífsleið-
inni, þegar erfiðleikar steðja að. Það
er margt mannanna bölið og þyngra
en tárum taki að horfa á eftir ungu
myndarlegu fólki í faðm bakkusar
eða það sem verra er í klœrnar á
fíkniefnadjöflinum. Oft virðist barátt-
an við þessi tvö vondu öfl vera von-
laus enda við rammann reip að
draga.
Eflaust hugsar nú einhver, „átti
þetta ekki að vera jólahugvekja?” Jú
víst er það en í okkar hverfula heimi
eru ekki alltaf jól. Þau koma þó alltaf
einu sinni á ári og lýsa upp svartasta
skammdegið. Aðventan er góður tími
til þess að taka til bæði í kringum sig
og í sálinni. Þær fjórar helgar sem í
aðventunni eru er gott að nota til
þess að eiga samvistir við fjölskyld-
una, íhuga hvað það er sem við
metum mest og hugsa um það hvar
við höfum farið út af brautinni og
hvernig við ætlum að komast á rétta
leið aftur.
Því miður er það svo að aðventan
er erfið mörgum. Veraldlegir og
andlegir erfiðleikar skjóta upp
kollinum sem aldrei fyrr. Þrýstingur
á foreldra er mikill, fjölmiðlar eru
fullir af auglýsingum um hluti sem
allir þarfnast og verða að eignast,
annars verða bara enginn jól. Allt
verður að vera hreint og fínt, annars
verða bara enginn jól. Allt þarf að
skreyta, annars verða bara enginn
jól. Eða hvað? 1 raun þurfum við
ekkert af því sem að framan er sagt
ef við eigum jól í hjarta okkar. Til
þess að eiga jól í hjarta okkar þurf-
um við að finna innri frið og hann
fœst ekki keyptur. Við þurfum líka að
eiga góð samskipti við fjölskyldu
okkar og vini og það fæst heldur
ekki keypt.
í Matteus 11 kafla, versi 28 segir:
Komið til mín, allir þér sem erfiði
hafið og þungar byrðar, og ég mun
veita yður hvíld. Það er von mín að
þeir sem eiga um sárt að binda af
hvaða orsökum sem það nú er, smáar
eða stórar sorgir finni frið í hjarta
sínu og eigi gleðileg jól með því fólki
sem því er kœrast hvort sem er í
nærveru þess eða huga.
Guðrún Erlingsdóttir
|
1
1
1
1
I
1
I
I
I
|
|
1
i
i
i
i
|
i
1
i
i
i
1
É
■m
Helgihald í Landakirkju
Aðfangadagur jóla:
18:00 Aftansöngur
23:30 Hátíðarstund
Jóladagur:
14:00 Hátíðarguðsþjónusta.
- Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur jólalög í hálftíma
fyrir guðsþjónustu.
Annar dagur jóla:
14:00 Fjölskylduguðsþjónusta
16:00 Hátíðarguðsþjónusta á Hraunbúðum
- Barnakór Barnaskólans syngur við þessar
guðsþjónustur.
Þriðjudagur 28. desember:
16:00 Jólatrésskemmtun.
- Allir hvattir til að mæta og dansa í kringum jólatréð
og hitta jólasveinana.
Gamlársdagur:
18:00 Aftansöngur
Nýársdagur:
14:00 Hátíðarmessa
- Sóknarnefndarmaður stígur í stólinn
- Altarisganga
Aðventkirkjan
um jólin
Jóladagur 25. des.:
14:00 Samkoma
Nýársdagur l.jan. 2000
14:00 Samkoma
Allir velkonuiir
Jóladagskrá
Hvítasunnukirkjunnar
um jólin
Aðfangadagur:
18:00 Aftansöngur
Jóladagur:
15:00 Hátíðarsamkoma
Annar dagur jóla:
15:00 Vakningarsamkoma
Gamlársdagur:
18:00 Þakkargjörðarsamkoma með frálsum
þakkarávörpum til Guðs vors lands.
Nýársdagur
15:00 Hátíðarsamkoma
Sunnudagur, 2.janúar
19:00 Sameiginlegt samsæti safnaðarins
Menn fagna saman áframhaldandi blessun Guðs og
varðveislu á komandi ári.
Hjartanlega velkomin að gera útvalningu ykkar vissa á
þessum dögum og ganga Kristi við hönd inn í nýja öld.