Brautin - 15.12.1999, Side 9
BRAUTIN
9
Bygging og uppfylling Brattagarðs. Á þessu svæði fyrrum voru pallakrærnar sem voru látnar hver-
fa eftir stríð, aðallega milli 1946-50, en Fiskiðjan reis þarna 1952. Burstirnar þrjár tilheyrðu
Tanganum og voru upphaflega fiskverkunarhús.
minnist ég annars frá mínum
æskudögum í Eyjum, en að allt
heimilisfólkið, sem var margt og
víðsvegar að af landinu sum,
hafði verið samhuga um að
halda uppi þessum gömlu, góðu
íslenzku siðum.
Ljós voru látin loga alla nótti-
na helgu. Börnin tímdu ekki að
sofna út frá ljósunum og allri
þeirri dýrð sem hugsunin um
fæðingu frelsarans skapaði í
hjörtunum. Fólkið lofaði skap-
arann, gjafarann allra góðra
hluta.
Á jóladaginn, er fólið var
komið frá kirkju, skammtaði
húsmóðirin, sem lítt átti heiman-
gengt í jólamessurnar, hinn
eiginlega jólamat. Þeir, sem
furða sig á því, að þessi gamli
siður hélzt svo lengi hér úti í
Eyjum, skyldu hugleiða það, að
Eyjabændurnir bjuggu við
sveitabúskap jafnhliða útgerð-
inni. Eyjafólkið var margt
aðkomið úr sveitunum í landi.
Þau mundu samt hafa verið fá
heimilin hér sem héldu þessum
gamla sið uppi fram á síðustu
árin fyrir aldamót.
Þannig var upp á gamla
móðinn skammtað fólkinu hjá
okkur.Eins og á diskana komst
af kjöti, hangnu og söltuðu,
hveiti- og rúgbrauð, hvoru-
tveggja heimabökuðu. Hveiti-
brauð var aldrei bakað nema til
hátíðabrigða. Með fylgdi bæði
flot og tólg, vel úti látið.
Samskonar skattur var fram-
reiddur á nýársdag handa fólk-
inu, en það hafði gaman af að
gæða bömunum og öðrum á
þessum mikla mat.
Á milli jóla og nýárs voru
jólaboðin, sem frændur og vinir
héldu hvorir öðrum og gengið
milli góðbúanna. Mest var
skemmt sér við spil og tafl og
unga fólkið fór í jólaleiki. Þeir
voru mjög fjölbreyttir og fylgdi
þeim jafnan mikil kátína.
Iþróttaleikir og ýmsar listir leik-
ið af fjöri.
Á þrettándanum var haldin
blysför með álfadansi og brennu
á Póstflötunum. Komu allir, sem
vettlingi gátu valdið til að horfa
á. Sungið var hátt og kveðið:
“Nú er glatt í hverjum hól”,
svo undir tók í fjöllunum.
Álfakóngur var hæsti maður
Eyjanna. Hann fór til Kanada.
Seinna var álfakóngur maður
jafnhár Kristjáni konungi tíunda,
að sögn kunnugra, svo eigi
munaði tommu, eins og þeir
komust að orði.
Lengi hélzt sá siður, að
grímuklæddir unglingar færu
undir leiðsögn ógrímuklæddra
fullorðinna manna og gegnju í
hús að fengnu leyfi og sýndu
sig. Mest var um þetta milli
þorra og þrettánda. Margt mætti
fleira tína til af sérkennum frá
þessum tíma, en ekki er rúm
fyrir það hér.
Vilpan.
Aramótaball fyrir 16 ára og eldri í
Týsheimilinu eftir miðnætti á gamlárskvöld
Hljómsveitin D-7
flUessu stærsta balli
aldarinnarvantar
okkur fleíri dyraverði.
Hafið sambandvið
SæbórOrra.
íbrónafélagvm.
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsælt komandi ár.
Þökkum stuðninginn í gegnum tíðina.
Alþýðuflokkurinn,
✓
Jafnaðarmannaflokkur Islands.
Samfylkingin
Vestmannaeyj alistinn
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsælt komandi ár
Vélstjórafélag Vestmannaeyja
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsælt komandi ár
Sveinafélag járniðnaðarmanna
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
Knattspyrnuvöllurinn inni í Botni.
t