Brautin - 15.12.1999, Síða 12
BRAUTIN
12
Guðrún Jacobsen:
Jólagesturinn
Það var aðfangadagur jóla.
Skafrenningurinn þyrlaðist fra-
man í gangandi vegfarendur, og
þeir létu það gott heita, því að
allir vou komnir í hátíðaskap.
Eftir gangstéttinni, sem lá við
fáfarna götu, kom drengur gang-
agndi. Hann hægði á sér fyrir
framan hvern búðarglugga, sem
varð á vegi hans, og horfði
hrifningaraugum á allt, sem inni
var. etta var svipfallegur dren-
gur, með hátt og hvelft enni og
góðlega andlitsdrætti.
Honum varð litið á búðar-
klukkuna í einni verzluninni, og
hörkk í kút, þegar hann sá að
klukkan var orðin fjögur, og
flýtti sér leiðar sinnar.
Egill, en svo hét drengurinn,
hugsaði heim til mömmu og litla
bróður. Mömmu var áreiðanlega
farið að lengja eftir honum, því
að hann hafði ekki komið heim
síðan á hádegi. Það var svo
margt fallegt í verzlunar glugg-
unum, er dró þá að sér með
ómótstæðilegur afli sem leið
áttu um strætið. En nú mátti það
ekki tefja fyrir honum Iengur.
Mamma og litli bróðir biðu
eftirvæntingafull heima, því að
hann átti að skreyta jólatréð, en
það hafði Egill gert síðan pabbi
hans dó, en hann hafði farizt á
sjónum fyrir tveimur árum, eða
um það leyti sem litli bróðir
fæddist. Og erfiða daga hafði
litla fjölskyldan átt síðan.
Mamma vann við hússtörf hjá
hinum og þessum, og á meðan
annaðist Egill litla bróður, - það
gat tíu ára hnokkinn, - og milli
þess sem hann sótti skólann,
seldi hann blöð, því mömmu
munaði um hvem skildinginn.
Egill hraðaði sér yfir götuna, og
var rétt dottinn, þegar rann rak
tána í svartan hlut, sem lá fyrir
fótum hans. Hann tók hlutinn
upp, og starði agndofa á úttroðið
seðlaveskið, sem lá í hönd hans.
Egill gekk eins og í draumi
upp á gangstéttina hinum megin
götunnar, og hugsanir
hringluðust sitt á hvað í
kollinum á honum.
Nú yrði hann að fara alla leið
niður í bæ og skila veskinu á
lögreglustöina, og klukkan var
orðin svo margt. En hann fengi
kannski fundarlaun? Það hýrn-
aði yfir honum við tilhugsunina
og herti á sér, en um leið rak
hann sig á gamlan mann, sem st
óð boginn í baki og horfði leit-
andi augum allt í kringum sig.
Gamli maðurinn féll um koll,
en Egill flýtti sér að rétta honum
hjálparhönd, og dustaði af
honum snjóinn.
„Nú, hver þremillinn gengur á
fyrir þér, strákur, að ana svona
beint á mann,“ nöldraði karlinn.
Egill bað gamla manninn
fyrirgefningar og ætlaði að
halda ferð sinni áfram, en stanz-
aði við, þegar hann sá karlinn
halda áfram að bogra við að
þereifa í kringum sig. Svo sagði
hann hikandi:
„Ertu að leita einhvers?“
„Varðar þig nokkuð um það“
mælti karlinn önugur, „hvort ég
leita einhvers eða ekki? En ef
það getur satt forvitni þína,
srákur, þá er ég að leita að
seðlaveskinu mínu, sem ég
klaufaðist til að glopra upp úr
vasanum.11
Það glaðnaði yfir Agli.
„Það er þó ekki þetta veski?“
spurði hann vongóður, og rétti
gamla manninum svarta veskið.
Karlinn starði á veskið stein-
hissa, svo hrifsaði hann það til
sín.
„Jú, jú rétt er það, hvar
fannstu veskið?“ Og hann gaut
tortryggnisaugum á Egil.
„A miðri götunni,“ svaraði
Egill.
„Rétt er nú það,“ mælti karl
og ræskti sig, „þú ætlast víst til
þess að fá fundarlaun, er ekki
svo?“
„Nei, ekki ætlast ég til þess, ef
þú hefur ekki efni á því,“ mælit
Egill hreinskilnislega.
„Jæja, jæja, ég má nú missa
eitthvað smávegis, við skulum
nú sjá til.“
Karl bjó nú vel og vandlega
um seðlaveskið í frakkavasa
sínum, náði svo í litla buddu, og
tók úr henni þrjá spegilfagra
tveggja krónu peninga og rétti
Agli litla.
„Ertu nú alveg viss um, að þú
megir missa allt þetta?“ mælti
Egill og leit alvörugefinn á
gamla manninn.
„Ætli það ekki,“ svaraði karl
ergilega.
„Þá þakka ég fyrir, en...
en...“
„En hvað?“ spurði karlinn
önugur.
„Eg ætlaði bara að bjóðast til
að styðja þig heim,“ svaraði
Egill feimnislega.
Karlinn horfi á Egil, undur-
furðulegur á svipinn.
„Nú, svo þú vilt víst fá auka-
greiðslu fyrir það, er ekki svo?“
Það kom kökkur í hálsinn á
Agli litla.
„Nei, ég ætlast ekki til neinna
borgunar, mig langar aðeins til
að gera svolítið góðverk, svo að
ég geti verið ánægður í kvöld.“
„Nú, vegna hvers viltu vera
ánægður í kvöld?“ spurði karl
forvitnislega.
„Vegna þess, að í kvöld er
fæðingarhátíð frelsarans, sem
eyddi lífi sínu í að hjálpa þeim,
sem voru þess þurfandi.“
„Ó, alveg rétt. Það eru að
koma jól,“ mælti gamli
maðurinn og rankaði við sér.
„Og þú heldur, að ég sé þurf-
andi fyrir hjálp þína, drengur?"
„Já, þú ert orðinn gamall og
gætir runnið til á hálkunni.“
„Eg er nú alveg hissa,“ mælti
gamli maðurinn og skoðaði Egil
litla í krók og kring.
„Og ég ætla að þiggja hjálp
þína, drengur minn.“
Egill varð glaður við, og bauð
gamla manninum öxl sína til að
styðjast við. Þeir lögðu af stað,
gengu eftir gangstéttinni.
Skafrenningurinn lék um bak
þeirra, og myrkrið var skollið á.
Um leið og þeir sveigðu fyrir
horn, rak Egill augun í horaðan
og sultarlegan kött, sem kúrði
þar í afdrepi. Hann beygði sig
niður og strauk kettinum, sem
mjálmaði aumkunarlega.
„Nú, nú, ætlarðu ekki að halda
áfram, drengur," mælti gamli
maðurinn, og það vottaði fyrir
hlýleik í rödd hans.
„Jú, jú, ég ætlaði aðeins að
taka kisu með, mamma gefur
henni að borða. Hún hlýtur að
vera svöng, sjáðu hve hún er
horuð.“
Og Egill tók köttinn upp, en
hann hjúfraði sig í handarkrika
hans. Gamli maðurinn horfði
andartak fast á dreginn, svo
studdi hann sig við öxl hans, og
þeir héldu ferð sinni áfram.
Gamli maðurinn fór nú að
spyrja Egil um hagi hans, og
drengurinn sagði honum frá litla
bróður, föður sínum, sem farizt
hafði á sjónum og mömmu, sem
væri svo dugleg og góð. Þegar
Egill þagnaði, stundi gamli
maðurinn þunglega.
„Af hverju stynur þú svona
sárt?“ spurði hann, og horfði á
gamla manninn meðaumkun-
araugum.
„Ertu orðinn þreyttur?“
„Nei, nei drengur minn,“
mælti gamli maðurinn dapurri
röddu. „Eg er bara að hugsa um
það að einu sinni átti ég dreng
líkan þér, hjálpsaman og göfug-
lyndan, en Guð tók hann frá mér
ungan að aldri.“
„Áttir þú aðeins þennan eina
dreng?“ spurði Egill, og kenndi
sárt í brjósti um gamla manninn.
„Já, bara þennan eina dreng,“
mælti gamli maðurinn.
„En er mamma hans dáin
líka?“ spurði Egill hikandi.
„Já, ég missti hana fyrir tíu
árum, Guð tók hana líka til sín.
Það var góð kona, sem öllum
vildi gera gott, eins og hún
móðir þín, sem þú varst að segja
mér frá.“
Og gamli maðurinn þurrkaði
sér um hvarmana.
„En gerir þú það ekki líka?“
spurði Egill.
„Ha, ég? Nei, nei, drengur
minn. Eftir að ég missti allt, sem
mér þotti vænzt um hér á jörðu,
sneri ég baki við meðbræðrum
mínum, og hafði ekkert saman
við þá að sælda. Eg varð önugur
og fáskiptinn, og trúði því, að
þeir, sem vildu mér vel, gerðu
það í eiginhagsmunarskyni.“
„Og trúir þú því ennþá?“
spurði Egill.
„Eg veit ekki, drengur minn.“
Allt í einu datt Agli litla
dálítið í hug.
„Heyrðu annars, viltu nú ekki
vera jólagestur okkar mömmu í
kvöld?“
„Hver, ég?“
Gamli maðurinn varð steinhissa.
„Já, gerðu það,“ mælti Egill
hinn ákafasti.
„Á hverju aðfangadagskvöldi
höfum við reynt að ná í ein-
hvern, sem er einmana og
snauður og boðið honum að
snæða með okkur jólamatinn.
Og við mamma héldum áfram
þeim sið eftir að pabbi dó.
Stundum var það aðeins svangur
hundur stundum bara horaður
köttur, því við náðum ekki í
neina manneskju. En ég held nú
það skipti engu máli, hvort það
er dýr eða maður, sem gefið er
að borða, - eða heldur þú það?“
Gamli maðurinn þurfti nú að
snýta sér hraustlega, svo varð
hann að taka ofan gleraugun og
þurkka af þeim móðuna. Þegar
því var lokið, mælti hann hræðri
röddu:
„Nei, drengur minn, það skiptir
engu máli. Dýrin eiga líka
tilverurétt hér á jörðu, eigi síður
en maðurinn, og ég ætla að
þiggja þitt góða boð. En heldur
þú að hún móðir þín veit mót-
töku tveimur jólagestum.“ Og
gamli maðurinn benti á köttinn,
sem malaði vært í handarkrika
Egils.
„Já, mamma verður svo hjart-
ans fegin, því að hjá okkur er
alltaf nóg rúm og nægur jóla-
matur handa þeim gestum, sem
að garði ber,“ mælti Egill fast.
„Jæja, vinur minn, þá skulum
við herða okkur, mig er farið að
langa til að kynnast henni
móður þinni.“ Og nú var allt
önuglyndið horfið úr rödd gamla
mannsins.
Þeir hertu förina, og brátt voru
þeir komnir að stóru fjöl-
býlishúsi. Egill leiddi gamla
manninn niður brotnar kjallara-
tröppur og kallaði hátt til móður
sinnar.
Myndarleg kona um þrítugt,
góðmannleg ásýndum, kom til
dyra, með lítinn dreng í fanginu.
hún kyssti Egil, og bauð gamla
manninn velkominn. Hún tók
við yfirhöfn hans og leiddi hann
til stofu. Þar stóð uppljómað
jólatré. Borð var á miðju gólfi,
og á því stóð borðbúnaður fyrir
fjóra. Hún bauð gamla mann-
inum sæti við borðið, og sagði
honum frá því, hve hún væri
ánægð með komu hans. Svo tók
hún brosandi við kisu, og bar
hana að mataraski, sem var hjá
ofninum, en Egill litli flýtti sér
að skipta um föt.
Móðir hans kveikir nú á jóla-
trénu, og brátt hljómaði „Heims
um ból, helg eru jól“ um stofu-
na.
Þau óskuðu hvert öðru gleði-
legra jóla og settust svo að
snæðingi.
Gamli maðurinn neytti hinnar
fábrotnu máltíðar af beztu lyst.
Litli bróðir undi sé við leikföng-
in sín, sæll og glaður. og kisa
svaf vært og malaði af vellíðan.
Þarna dvaldi gamli maðurinn í
góðu yfirlæti fram eftir kvöld-
inu, og hlýjan og velvildin yljaði
honum um hjartarætumar, sem
hann mætti hjá snauðu fjöl-
skyldunni, er þó var svo rík, að
hún gat miðlað öðrum. Þegar
hann kvaddi þau klukkan rúm-
lega ellefu, þakkaði hann fyrir
sig með fögrum orðum, en
móðirin bað Guð að blessa
hann.
Egill litli vildi endilega fylgja
honum áleiðis, og það var
þakksamlega þegið af gamla
manninum.
Er þeir nálguðust eitt af betri
hverfum borgarinnar, stað-
næmdist gamli maðurinn og
kvaddi litla gestrisna vininn
sinn.
Egill horfði á eftir honum, þar
sem hann gekk styrkum skrefum
eftir strætinu. Svo flýtti hann sér
heim.
Gamli maðurinn nálgaðist eitt
fegursta stórhýsið við enda
götunnar. Hann gekk upp tröpp-
umar og studdi á bjölluhnapp.
Einkennisklæddur dyravörður
kom til dyra og tók lotningar-
fullur við yfirhöfn hans.
Svo lokuðust dyrnar.
Og nokkrum vikum eftir jól
skeði dálítið á heimili Egils sem
gerði litlu fjölskylduna forviða.
Þau fengu nefnilega boð um
að mæta á þekktri lögfræðiskrif-
stofu. Og undrun sinni áttu þau
engin orð til að lýsa, er þeim var
sagt það af lögfræðingi gamla
mannsins, að hann væri látinn,
og hefði eftirlátið þeim allar
eigur sínar, sem væru milljóna
virði.