Víkurfréttir - 05.12.2019, Page 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Marta Eiríksdóttir, sími 857 8445, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir,
vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@
vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís
Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun:
Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn
útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er
á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá
kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift
inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta,
vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt
fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
retturinn.is
Alhliða
veisluþjónusta
Rétturinn matstofa
býður upp á ljúffengan
heimilismat í hádeginu
Opið frá 11:00 – 14:00
Hafnargötu 90 - Reykjanesbæ
Draga til baka launa
hækkanir bæjarfulltrúa
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar
í bæjarstjórn Grindavíkur hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna launa-
hækkanna bæjarfulltrúa sem samþykktar voru á síðasta fundi
bæjarstjórnar Grindavíkur.
„Við teljum sanngjarnt að bæjarfull-
trúar Grindavíkurbæjar séu á svip-
uðum launum og bæjarfulltrúar sam-
bærilegra sveitarfélaga á landinu.
En í ljósi kjaramála á vinnumarkaði
munum við leggja til á næsta bæjar-
stjórnarfundi að draga til baka þær
launahækkanir bæjarfulltrúa sem
samþykktar voru á síðasta fundi
bæjarstjórnar þann 26. nóvember
síðastliðinn,“ segir í yfirlýsingunni
sem undirrituð er af fulltrúum D-,
B- og S-lista.
Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar,
og Þröstur Söring, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugvallarins, hafa látið
af störfum hjá Isavia. Þetta kemur fram í bréfi sem Sveinbjörn Indriðason,
forstjóri Isavia, sendi starfsmönnum Keflavíkurflugvallar í síðustu viku
og Túristi.is greinir frá.
Þar segir að tekin hafi verið ákvörðun
um skipulagsbreytingar á Keflavíkur-
flugvelli með það að markmiði að
tengja betur saman þjónustu við við-
skiptavini og þróun flugvallarins,
bæði núverandi og til framtíðar.
Guðmundur Daði Rúnarsson sem
starfað hefur sem framkvæmdastjóri
tækni- og eignasviðs Keflavíkurflug-
vallar, mun nú leiða þann hluta sem
snýr að þjónustu við viðskiptavini,
vöruframboð og þróun flugvallarins.
Þá mun Elín Árnadóttir, aðstoðar-
forstjóri Isavia, taka tímabundið við
verkefnum sem snúa að rekstri hans
samkvæmt því sem segir í bréfinu. Sú
staða sem snýr að rekstri Keflavíkur-
flugvallar verður auglýst fljótlega.
60 rýma hjúkrunarheimili
byggt á Nesvöllum
Fyrirhugað er að byggja 60 rýma
hjúkrunarheimili á Nesvöllum. Þetta
kom fram í máli Ásu Eyjólfsdóttur,
forstöðumanns öldrunarþjónustu,
þegar hún kynnti stöðu mála varð-
andi byggingu nýs hjúkrunarheim-
ilis að Nesvöllum, á fundi öldrunar-
ráðs Reykjanesbæjar í síðustu viku.
Hjúkrunarheimilinu Hlévangi verður
lokað og munu þau 30 rými sem þar
eru flytjast að Nesvöllum þannig að
um er að ræða aukningu um 30 rými.
Öldungaráð Reykjanesbæjar fagnar
aukningu hjúkrunarrýma í sveitar-
félaginu. Ráðið minnir þó á að nauð-
synlegt sé að hugsa til framtíðar og að
fjöldi hjúkrunarrýma haldist í hendur
við fjölgun íbúa.
Fataþjófur á ferðinni
Þjófnaður úr fataverslun var til-
kynntur lögreglunni á Suður-
nesjum í vikunni sem leið. Sást
til aðila sem hafði stungið inn á
sig fatnaði í versluninni og gengið
út án þess að borga. Vitað er til
þess að viðkomandi náði að taka
með sér fatnað samtals að verð-
mæti tólf þúsund krónum en
ekki liggur fyrir hvort hann hafði
meiri verðmæti á brott með sér.
Lögregla rannsakar málið.
Óvenju mikið um
umferðaróhöpp
Óvenju mikið var um umferðaró-
höpp í umdæmi lögreglunnar á
Suðurnesjum í vikunni sem leið,
en engin alvarleg slys á fólki. Má
þar nefna að ökumaður sem var
að aka Byggðaveg við Sandgerði
missti skyndilega stjórn á bifreið
sinni með þeim afleiðingum að
hún byrjaði að snúast og stöðvað-
ist á ljósastaur.
Annar ökumaður blindaðist af sól
sem er lágt á lofti þessa dagana
og ók á bifreið sem verið var að
bakka út úr stæði á Njarðvíkur-
braut. Bifreiðin sem ekið var á
lenti á þriðju bifreiðinni sem var
kyrrstæð og mannlaus.
Rúmlega 200 þúsunda
króna hraðasekt
Nokkrir ökumenn voru kærðir
fyrir of hraðan akstur í umdæmi
lögreglunnar á Suðurnesjum í
síðustu viku. Sá sem hraðast ók
mældist á 143 km hraða á Reykja-
nesbraut þar sem hámarkshraði
er 90 km. Hans bíður 210 þús-
unda króna sekt og svipting öku-
réttinda í einn mánuð.
Þá reyndist ökumaður, sem stað-
inn var að því að virða ekki stöðv-
unarskyldu, sviptur ökuréttindum.
Bifreið valt út í móa
Bílvelta varð í Brekadal í Reykja-
nesbæ um helgina. Ökumaðurinn
hafði misst af beygju sem hann
hugðist taka og ætlaði því að
hemla og snúa við. Ekki tókst
betur til en svo að bifreiðin
hafnaði utan vegar og valt út í
móa. Ökumaður kenndi eymsla
og ætlaði að leita til læknis. Bif-
reiðin var óökufær eftir veltuna.
Enn fremur rann rúta út af
Norðurljósavegi í hálku og vóg salt
þar sem hún var komin. Dráttar-
bifreið var fengin til að draga hana
upp á veginn. Engir farþegar voru
um borð.
Þá kærði lögreglan á Suðurnesjum
nokkra ökumenn fyrir of hraðan
akstur. Sá sem hraðast ók mældist
á 132 km hraða á Reykjanesbraut
þar sem hámarkshraði er 90 km
á klukkustund. Um var að ræða
erlendan ferðamann.
Fáeinir voru svo teknir úr umferð
vegna gruns um vímuefnaakstur.
DAGBÓK LÖGREGLU
Breytingar í yfirstjórn
Keflavíkurflugvallar
TJÓNASKOÐUN
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR
BÍLRÚÐUSKIPTI/VIÐGERÐIR
INNSTILLING Á ÖRYGGISBÚNAÐI
MYNDAVÉL OG FJARLÆGÐARRADAR
Bolafæti 3 – Njarðvík
Sími 421 4117
bilbot@simnet.is
AUGLÝSINGASÍMINN ER
421 0001
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 5. desember 2019 // 46. tbl. // 40. árg.