Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.2019, Page 4

Víkurfréttir - 05.12.2019, Page 4
lindex.is Náttföt frá 15999 58“ Philips UHD TV, 100 þús. kr. gjafabréf í Nettó og Icelandair flugmiðar meðal þúsunda vinninga Skafmiðaleikur Víkurfrétta og verslana á Suðurnesjum Jólalukka 2019 Jólalukka VF í átjánda sinn í 20 verslunum Tuttugu verslanir og þjónustuaðilar á Suðurnesjum eru með í Jólalukku Víkurfrétta 2019 en þetta er í nítjánda skipti sem Víkurfréttir standa fyrir þessum vinsæla skafmiðaleik í samvinnu við verslanir og þjónustuaðila í desember. Nærri sex þúsund vinningar eru í Jólalukkunni en auk þess verða glæsilegir vinningar dregnir út þrisvar sinnum í desember, m.a. þrjú 58“ Philips Smart sjónvörp, tvö 100 þúsund kr. gjafabréf í Nettó og átján 15 þúsund króna gjafabréf í Nettó og þá verða samtals sjö Evrópuferðir með Icelandair í Jólalukkunni þetta árið. Jólalukkan hefst laugardaginn 6. nóv- ember en í þessum vinsæla jólaleik sem gengur út á það að fyrir 6000  kr. viðskipti fæst af- hentur skafmiði í tuttugu verslunum á Suðurnesjum. Vinningar eru frá 54 fyrirtækjum á Suðurnesjum, allt frá tveggja lítra Coca Cola eða Egils Appelsíni upp í Icelandair ferðavinn- inga og nánast allt þar á milli. Þúsundir skemmtilegra vinninga Auk fyrrnefndra vinninga má nefna fleiri eins og vegleg gjafakort frá Bláa lóninu, tíu mánaðarkort frá Sporthús- inu, átta tíu skiptakort frá Vatnaver- öld, 3D mælingu frá einka.is, bílaþrif frá Bílahóteli og þá eru 50 útleigur á sendibíl frá Sendibílaþjónustu Suður- nesja, sendibilinn.is. Þá má nefna 30 KEA hamborgarhryggi, 30 KEA hangilæri og 50 Emmess hátíðarís- tertur, tíu kalkúnar og fimmtán ostakörfur frá Nettó, einnig fjölda bóka frá vinsælustu rithöfundum lands- ins eins og Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur. Þá eru veglegar úttektir frá tuttugu verslunum sem taka þátt í jólaleiknum. Tvö hundruð heppnir munu fá ís á Bitanum og í Ungó, á Pulsuvagn- ingum bíða eitt hundrað pulsur og kók, Sigurjónsbakarí gefur 50 snúða og Héðinsbollur, tugir af pítsum eru frá Langbest og Fernando’s, hádegisverðir frá KEF resturant, Réttinum, Soho og Hjá Höllu og gjafabréf frá Serrano, Library Bistro Bar, Orange Street Food og KFC. Einn heppinn mun fá gistingu á Junior svítu á Hótel Keflavík. Þá munu 50 bíómiðar frá Sambíó- unum renna út í leiknum, sem og fjöldi aðgöngumiða að körfubolta- og knattpyrnu- leikja Keflavíkur. Tuttugu og fimm aðilar munu geta riggað upp frostljósaseríu í glugga frá Húsa- smiðjunni. Hundrað vinningar eru frá Líkama og Boost í Sport- húsinu. Frá Múrbúðinni eru jólatré og ferðagasgrill. Skila vinningslausum miðum í Nettó Punkturinn yfir i-ið er svo útdráttur skafmiða sem skilað er í Nettó í Kefla- vík, Njarðvík og Grindavík. Í desember verða dregnir út þrjú 58“ Philips Smart TV, þrír Icelandair ferðavinningar, tvö 100 þús. króna gjafakort frá Nettó auk átján 15 þús. kr. gjafakorta frá sömu verslun. Útdrættir verða þrisvar í desember og verða nöfn vinningshafa kynnt á vf.is og í blaðinu. Það er því vissara að skila miðum sem fyrst, því til mikils er að vinna. 4 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 5. desember 2019 // 46. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.