Víkurfréttir - 05.12.2019, Page 6
Vox Felix er hópur hæfileikafólks sem
saman myndar kraftmesta kór lands-
ins, þótt víðar væri leitað. Kórinn
hefur verið starfandi frá árinu 2012 og
jafnt og þétt vaxið ásmegin í gegnum
árin og telur nú yfir 35 meðlimi, sem
hver og einn kemur með eitthvað
sérstakt í blönduna og myndar Vox
Felix hljóminn.
Nú rennur kórinn inn í jólahátíðina
með tilheyrandi tónleikahaldi og
er óhætt að segja að jólatónleikar
Vox Felix hafi vaxið með kórnum
síðustu sjö ár og mörg þekkt nöfn
í tónlistarbransanum stigið á stokk
með kórnum á þessum tíma við frá-
bærar undirtektir.
„Í ár mun Jón Jósep Snæbjörnsson
taka slaginn með okkur en óþarfi er
að fjölyrða um þann kraft og hæfileika
sem Jónsi býr yfir og lofum við því
tímamóta tónleikum sem verða lengi
í minnum hafðir,“ segir í tilkynningu
frá Vox Felix.
Kórinn mun halda þrenna tónleika í
desember, tvenna í Keflavíkurkirkju,
þann 10. og þann 11. desember, og í
Grafarholtskirkju þann 16. desember.
Miðasala er á Tix.is.
Þann 25. nóvember var alþjóðlegur
baráttudagur Sameinuðu þjóðanna
gegn kynbundnu ofbeldi. Þann dag
hófst árlegt sextán daga átak gegn
kynbundnu ofbeldi. Átakið nær há-
marki sínu mánudaginn 10. desember,
á alþjóða mannréttindadaginn. Þann
dag er einnig alþjóðlegur dagur So-
roptimista en það er einmitt fyrir
tilstuðlan þeirra samtaka og áskor-
unar frá þeim sem fjöldi fyrirtækja og
stofnanna á Suðurnesjum hafa tekið
þátt í átakinu „Roðagyllum heiminn“.
Á myndum með fréttinni má sjá
orkuver HS Orku í Svartsengi lýst
með appelsínugulum ljósum og
einnig listaverkið Álög í Sandgerði.
Fleiri mannvirki hafa verið lýst upp
appelsínugul. Þannig er ráðhúsið í
Garði upplýst, Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja, Keflavíkurkirkja, Ytri-
Njarðvíkurkirkja og Flugstöð Leifs
Eiríkssonar, svo einhver mannvirki
séu nefnd.
ROÐAGYLLA HEIMINN
Listaverkið Álög við
Sandgerði er lýst upp
með appelsínugulum
ljósum.
Orkuverk HS Orku í Svartsengi er
appelsínugult um þessar mundir.
VF-myndir: Hilmar Bragi
Vox Felix með
þrenna jólatónleika
FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN
898 2222
Frá jólatónleikum Vox Felix í fyrra. VF-mynd: Sólborg Guðbrandsdóttir.
ASX
Verð frá 3.990.000 kr.
Outlander PHEV
Verð frá 4.590.000 kr.
L200 2020
Verð frá 5.490.000 kr.
Bílakjarninn ehf · Njarðarbraut 13 · 260 Reykjanesbæ · Sími: 421 2999 · elli@bilakjarninn.is
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
a
ð
up
p
fy
llt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
b
yr
gð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
gd
-
V
er
ð
m
ið
as
t
vi
ð
ge
ng
i 3
.
d
es
em
b
er
,
20
19
.
Skoðaðu úrvalið á
www.hekla.is/mitsubishisalur
MIKILVÆGAST
AF ÖLLU ER
FJÖLSKYLDAN
Mitsubishi fjölskyldan samanstendur af fjölbreyttum
tegundum gæðabíla sem henta við allar aðstæður.
Það er gott að vera hluti af góðri fjölskyldu, komdu í heimsókn.
B Í L A K J A R N I N N
6 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 5. desember 2019 // 46. tbl. // 40. árg.