Mosfellingur - 19.12.2019, Blaðsíða 31

Mosfellingur - 19.12.2019, Blaðsíða 31
sko ekki vera með einhverjum óþroskuðum dreng,“ segir Anna og skellir upp úr. „Ég samþykkti að hitta hann og sé ekki eftir því, ég kolféll fyrir þessum glaðværa og umhyggjusama orkubolta.“ Lifum enn á minningunum „Fyrstu fimm árin okkar saman var nóg að gera, ég fór í sálfræðinám, við eignuð- umst þrjú börn, giftum okkur og byggðum okkur einbýlishús. Það hefur aldrei verið lognmolla í kringum okkur svo manni leiðist aldrei þótt það hafi stundum tekið á að hafa svona mikið fyrir stafni. Við fluttum í Mosfellsbæ 2007 og gætum ekki hugsað okkur betri stað til að búa á. Árið 2010 fluttum við til Danmerkur og bjuggum þar í eitt ár þar sem ég fór í nám í klínískri sálfræði. Elli minn var heimavinn- andi húsfaðir á meðan og stóð sig vel, það var loksins allt í röð og reglu á heimilinu. Þetta ár var yndislegt í alla staði og við lif- um enn á minningunum. Eftir að heim var komið fór ég í starfsnám á Reykjalundi sem var mjög lærdómsríkt.“ Ýmsir þættir voru ekki athugaðir „Árið 2013 hóf ég störf á sálfræðistofu í Skeifunni. Ég var ófrísk á þessum tíma og við fjölskyldan biðum spennt eftir nýja fjöl- skyldumeðlimnum sem átti að fæðast þetta sama ár en von var á lítilli stúlku. Í fæðingunni eða eftir 42 vikna með- göngu kom í ljós að dóttir okkar var and- vana. Þetta var mikið reiðarslag þar sem ég hafði oft beðið um ítarlegri athugun á meðgöngunni því ég var farin að léttast í lok hennar og eins voru ýmsir aðrir þættir ekki athugaðir. Í krufningu kom í ljós að hún hefði látist 12-24 klukkustundum fyrir fæðinguna vegna vanstarfsemi fylgjunnar, en dóttir okkar var alveg heilbrigð. Við kærðum ljósmóðurina til Landlæknis sem fékk áminningu um vanrækslu í starfi. Einnig voru nokkrir starfsferlar skerptir er varða umsjón með konum eldri en 40 ára.“ Náðum illa að stilla strengi okkar „Þegar við vorum að reyna að vinna úr sorginni vegna dóttur okkar varð ég ólétt og var það mikið lán. Við hjónin vorum búin að eiga erfitt tímabil, náðum illa að stilla strengi okkar saman enda upplifðum við sorgina á gjörólíkan hátt. Sem betur fer fengum við aðstoð og gátum unnið vel úr því sem er ekki sjálfgefið því meirihluti para sem missa barn slíta samvistum. Móðurhlutverkið er eitthvað sem mér hefur fundist svo verðmætt. Það er ekki sjálfgefið að eignast börn og því lít ég alltaf á okkur sem múltí milljónera að eiga fimm börn. Móðurhlutverkið er eitt fallegasta og besta hlutverk sem ég hef tekið að mér en jafnframt það erfiðasta. Það er krefjandi en um leið svo gefandi og gott.“ Leikur sér með ímyndunaraflið Ég spyr Önnu út í sorgina. „Ég er ekki hrædd við sorgina, hún er fyrir mér ást og söknuður til þeirra sem ég elska eins og dóttur minnar og föð- ur. Ég hugsa um sorgina eins og gest sem kemur í heimsókn. Ég finn á lík- ama mínum þegar hún kemur því ég verð orkulaus, döpur og á erfitt með samskipti en ég tek á móti henni með væntumþykju og kærleika. Til að lifa betur með sorginni hef ég leik- ið mér með ímyndunaraflið. Ég hef ákveðið að ýmislegt í náttúrunni eins og vindurinn og sólargeislar séu kossar og kveðja frá dóttur minni. Ég hef fundið sterkt fyrir því að þegar sólin skín á mig þá ímynda ég mér að elskuleg dóttir mín sé að faðma mig eins og ungbörn gera, alveg upp við hálsakotið og ég get fundið hlýjuna. Svona stundir láta mér líða vel, þetta er mín leið til að halda áfram með lífið.“ Fleiri áföll dundu yfir Síðustu sex ár hafa verið fjölskyldunni ansi erfið en fleiri áföll hafa dunið yfir. Fað- ir Önnu greindist með MND sjúkdóminn daginn fyrir jarðarför Mörtu Marínar. Hann lést árið 2015. Annað skelfilegt slys varð innan fjöl- skyldunnar er ungur maður lést 2016 og svo greindist móðir Önnu með mergæxli árið 2017 og hefur tíminn síðan þá verið henni ansi erfiður en hún er þó á uppleið. Önnur erfið áföll hafa komið upp sem einnig hafa tekið sinn toll. „Við höfum verið ótrúlega heppin með stuðningsnet,“ segir Anna. „Við höfum fengið mikla aðstoð frá fjölskyldum okkar, vinum, nágrönnum og skólaumhverfinu. Það er verðmætt að fá svona hjálp þegar maður missir alla getu til að sinna sér og öðrum eins og þegar dóttir okkar lést, fyrir það erum við óendanleg þakklát.“ Naut þess að miðla góðum ráðum „Ég skellti mér í sérfræðinám í hugrænni atferlismeðferð sem var tveggja ára nám með starfi. Ég var með mikið af fyrirlestrum fyrir ýmsa aldurshópa og um ýmis málefni. Ég naut mín í vinnunni við að miðla góðum ráðum um vellíðan fólks og fór því hægt og rólega að vinna meira við það, sem gaf mér mikið. Ég starfa nú sem sálfræðingur og hóp- tímaþjálfari hjá Heilsuborg en svo hef ég einnig verið að taka að mér heilsuferðir til Ungverjalands. Þar fer ég með hóp kvenna í vikuferð á heilsuhótel þar sem fram fer dagleg dagskrá.“ Hægara sagt en gert að vera heima Árið 2017 lenti Anna á vegg, eins og sagt er, en hún var hætt að geta gengið vegna verkja. Hún var búin að finna fyrir streitu- einkennum í þó nokkurn tíma en hafði hunsað þau. Veikindi hennar stafa af áfallastreitu og krónískum verkjum en í ljós komu útbunganir í mjóbaki og hálsliðum sem valda taugaverkjum í útlimum. Hún ákvað að minnka starfshlutfall sitt niður í 50% en það var hægara sagt en gert. Þá fór hugur hennar á fullt og hún átti erfitt með að vera heima og hvílast. Það tók hana hálft ár að venjast nýjum aðstæðum en til þess notaði hún ýmsar leiðir. Nýr dagur ber með sér nýja von „Þegar ég horfi til baka yfir ævina þótt ég sé ekki háöldruð þá sé ég að ég hef verið virkilega heppin í lífinu. Ég hef verið lán- söm með heilsu mína, fjölskylduna, engin alvarleg áföll eða sjúkdómar og fyrir það get ég verið þakklát. Að fá að mæta erfiðum áföllum svona seint á ævinni þegar maður er kominn með meiri þroska til að takast á við krefjandi verkefni er lán í sjálfu sér. Ég er nú í fullu starfi við að hlúa að lík- amlegri og andlegri heilsu minni ásamt því að sinna heimili og börnum. Sú uppbygg- ing heldur að sjálfsögðu áfram út ævina. Í gegnum veikindi mín og við að minnka vinnuna hef ég einnig fengið tækifæri til að endurskoða gildi mín og lífsviðhorf. Ég hef alltaf átt auðvelt með að vera jákvæð og bjartsýn og það hjálpar til í svona ferli. Ég hef alltaf notað hreyfingu til að vinna með líðan mína en nú þarf ég að draga úr henni og auka uppbyggingu á andlegu hliðinni. Ég er búin að sættast við stöðu mína því ég finn að bataferlið er að virka þótt það sé á hraða snigilsins. Ég hef lært það af foreldrum mínum að mæta því sem upp á kemur í lífinu sem verkefni sem þurfi að takast á við og það hjálp- ar mér að hugsa þannig. Móðir mín kenndi mér að taka einn dag í einu og gera sitt besta miðað við aðstæður. Nýr dagur ber svo með sér nýja von. Það sem hefur líka hjálpað mikið í gegnum þessi erfiðu verkefni síðastlið- in ár eru börnin okkar, þau hjálpa okk- ur að vera þakklát með hversdagslega hluti í gegnum barnslega gleði þeirra í einfaldleikanum. Við erum lánsöm með drengina okkar, þeir eru hjálpsamir, um- hyggjusamir og hafa verið ótrúlega dug- legir í gegnum þessi síðustu ár þótt mikið hafi verið á þá lagt.“ Ætlar að njóta jólanna „Í fyrsta sinn í sex ár hlakka ég til jólanna. Áður en við misstum dóttur okkar átti ég svo auðvelt með að gleðjast yfir jólunum og öllu sem þeim fylgdi. En síðustu ár hafa jólin verið erfiður tími þar sem söknuðurinn hefur tekið yfir. En maður lærir að lifa með þessari erfiðu reynslu, sýna sér skilning og þetta tekur allt sinn tíma. Mér þætti vænt um að fá að nota tæki- færið og óska öllum Mosfellingum gleði- legra jóla og farsældar á komandi ári.“ Mosfellingurinn Anna Sigurðardóttir - 31 HIN HLIÐIN Bókin á náttborðinu? Sakamálasagan Feilspor eftir Mariu Adolfsson. Við hvaða aðstæður færðu gæsahúð? Þegar ég sé fallegan dans eða hlusta á fallegt lag. Hvað gleður þig mest? Börnin mín, að samgleðjast þeim í velgengni og barnslegri kátínu og gleði er yndisleg tilfinning. Hvaða litur lýsir þér best? Rauður. Hvað drífur þig áfram? Gleði og ástríða fyrir því sem ég er að gera hverju sinni. Hvað er fegurð? „Beauty lies in the eyes of the beholder“ eða fegurðin býr í augum þess er skynjar hana. Hvert er neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Ég er alltaf að lenda í einhverju en eitt sinn var ég að halda fyr- irlestur um streitu og allt í einu mundi ég ekkert hvað ég var að tala um. Ég áttaði mig að lokum og sagði svo að nú fengju þau bæði fyrirlestur og sýnikennslu um efnið og þá hlógu allir. Að fá að mæta erfiðum áföllum svona seint á ævinni, þegar maður er kominn með meiri þroska til að takast á við krefjandi verkefni, er lán í sjálfu sér. vinkonur í ungverjalandilítill lestrarhestur í þórsmörk maístjarnan marta marín fitness drottning

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.