Mosfellingur - 19.12.2019, Blaðsíða 6
- Fréttir úr Mosfellsbæ6
Helgihald yfir hátíðar
á Kjalarnesi og í Kjós
Helgihald yfir jól og áramót í Reyni-
vallaprestakalli yfir jól og áramót er
eftirfarandi: Aðfangadagur:
Brautarholtskirkja kl. 17 – Aftan-
söngur. Saurbæjarkirkja kl. 23
– Jólanæturmessa.
Jóladagur: Reynivallakirkja
kl. 14 - Hátíðarmessa.
Gamlársdagur: Brautarholtskirkja
kl. 17 - Aftansöngur.
Flugeldasala Kyndils
hefst 28. desember
Björgunarsveitin Kyndill undirbýr
nú sína árlegu flugeldasölu sem
hefst laugardaginn 28. desember.
Mikið hefur mætt á sjálfboðaliðum
sveitarinnar að undanförnu,
sérstaklega þegar óveðrið reið yfir
nú í desember. Þá fór Kyndill í fjölda
útkalla og sá um lokanir á Mosfells-
heiði og um Kjalarnes. Dagana eftir
að veðrið gekk niður hefur sveitin
séð um að selflytja varning norður
yfir heiðar, gaskúta, ofna og fleira
eftir viðvarandi rafmagnsleysi.
Sölustaðir ársins verða í höfuð-
stöðvum Kyndils að Völuteigi 23 og á
bílaplaninu við KFC í Háholti. Opið
er frá kl. 10-22 og til kl. 16 á gamlárs-
dag. Flugeldasalan er mikilvægasta
fjáröflun björgunarsveitarinnar og
gríðarlega mikilvæg fyrir rekstur
sveitarinnar.
Hamrar hjúkrunarheimili
Óskum eftir hjúkrunarfræðingum
Óskað er eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á Hömrum hjúkrunarheimili. Um er að
ræða 60% morgun- og kvöldvaktir auk 20% næturvaktir.
Umsóknarfrestur er til og með 06. janúar 2020.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís B. Sigurðardóttir, deildarstjóri, í s. 860 7980 eða
gegnum netfangið hafdisbjorg@eir.is.
Umsóknir sendist rafrænt gegnum www.eir.is
Mæðgurnar og Mosfellingarnir Kristjana
Arnardóttir, Arna Hagalínsdóttir og Rúna
Birna Hagalínsdóttir hafa stofnað styrkt-
arsjóðinn Kraftur Kötlu. Markmið sjóðsins
er að styðja við börn í þróunarlöndum til
uppeldis og menntunar.
„Hugmyndin að sjóðnum kviknaði fyrir
nokkrum árum þegar okkur mæðgum lang-
aði til að hefja einhvers konar styrktarstarf-
semi í nafni Kötlu Rúnar, dóttur Rúnu, sem
lést í janúar 2007.
Katla gaf okkur öllum ótrúlegan kraft,
kraft til að standa saman, kraft til að miðla
og hjálpa og æðri skilning á því að allir fá
ekki sömu tækifærin,“ segir Arna en hug-
myndin hefur verið í mótun í nokkur ár.
Öll börn hafi möguleika á menntun
Undir lok árs 2014, þegar Rúna var búsett
ásamt fjölskyldu sinni í litlum bæ í suður-
hluta Eþíópíu, bankaði upp á hjá þeim
sárafátæk ung stúlka og óskaði eftir að fá
að vinna hjá þeim. Rúna hafnaði stúlkunni
og sagðist því miður ekki vera með neina
vinnu en þessi áræðna stúlka lét ekki segj-
ast og stóð fyrir utan hús fjölskyldunnar í
tvo daga. Að lokum fór svo að Rúna og sótti
hana og bauð henni starf við þrif.
„Stúlkan kunni ekkert til þrifa, enda alin
upp og bjó sjálf í moldarkofa en hún lagði
sig hins vegar alla fram við að læra tökin,
mætti daglega til starfa og varð fljótt ómiss-
andi partur af fjölskyldunni. Eftir því sem
á leið tók ég eftir því að þegar stúlkan var
að fara heim í lok dags laumaði hún alltaf
ávöxtum og öðrum afgöngum í poka og tók
með sér. Kom í ljós að hún var að taka sér
mat til að fara með heim því að maðurinn
hennar var mjög veikur. Þau áttu fjögurra
ára gamlan dreng sem heitir Eybo.
Eftir þetta var hún alltaf send heim
með mat í lok dags og var hvött til að hafa
drenginn sinn með sér í vinnuna, enda nóg
af börnum á heimilinu til að leika sér við.
Til að gera langa sögu stutta þá varð þessi
litla fallega fjölskylda ómissandi hluti af
heimilislífinu. Okkur fannst ómögulegt að
Eybo hefði ekki sömu tækifæri og okkar
eigin börn til að sækja góðan skóla,“ segir
Rúna.
Auðvelt að rétta hjálparhönd
Þarna kviknaði krafturinn og Rúna hafði
samband heim til Íslands og bað nánastu
fjölskyldumeðlimi um að taka höndum
saman og stofna smá sjóð til að tryggja
skólagöngu Eybo. Í fimm ár hefur Eybo
núna sótt góðan skóla og fær þá menntun
sem hann á skilið, ritföng og fatnað.
„Nú er svo komið að við viljum nýta
þennan kraft og gefa fleiri börnum sömu
tækifæri og Eybo hefur fengið. Kraftur
Kötlu styrkir börn til skólagöngu sem búa
hjá foreldrum sínum sem hafa ekki efni á
að mennta þau.
Markmiðið er að veita þessum börnum
aðgang að skólum í sínu landi til að þau
menntist og eflist sem einstaklingar innan
sinnar þjóðar. Við erum í góðu sambandi
við aðra foreldra nú þegar sem bíða þess
spenntir að börnin þeirra komist í góða
skóla,“ segir Kristjana.
Kraftur Kötlu þiggur frjáls framlög
og sá sem vill gerast styrktaraðili
velur sjálfur hversu mikið eða hversu
oft viðkomandi styrkir börnin. Allir
sem gerast styrktaraðilar fá reglulega
upplýsingar um börnin, námsárangur
þeirra og fjölskyldur. Hafa má samband
við þær mæðgur með því að senda póst á
kotlukraftur@gmail.com.
frjáls framlög
Kraftur Kötlu lætur gott af sér leiða • Styðja börn til menntunar í þróunarlöndunum
Stofna styrktarsjóð í nafni
Kötlu Rúnar sem lést 2007
rúna birna, kristjana og arna
eybo í afmælisveislu
(lengst til vinstri)
Tilkynnt um hertar
reglur í Varmárskóla
Í Varmárskóla hafa reglur um að-
gengi fullorðinna að skólanum verið
hertar meðal annars í ljósi þess
að nýverið gerðist það í Reykjavík
að fullorðinn einstaklingur fór
inn í skóla í Reykjavík og braut
gegn barni. Varmárskóli er einn af
stærstu skólum landsins með um
830 nemendur og 140 starfsmenn.
„Foreldrum og öðrum gestum ber
að ganga inn um aðaldyr skólans og
gefa sig fram við ritara og tilnefna
ástæðu heimsóknar. Í kjölfarið eru
foreldrar og aðrir gestir sértaklega
merktir á meðan þeir sinna erind-
um í skólanum,“ segir Anna Greta
Ólafsdóttir skólastjóri Varmárskóla.
Skólastjórnendur vonast eftir
fullum skilningi á þessum hertu
reglum.