Mosfellingur - 19.12.2019, Page 6

Mosfellingur - 19.12.2019, Page 6
 - Fréttir úr Mosfellsbæ6 Helgihald yfir hátíðar á Kjalarnesi og í Kjós Helgihald yfir jól og áramót í Reyni- vallaprestakalli yfir jól og áramót er eftirfarandi: Aðfangadagur: Brautarholtskirkja kl. 17 – Aftan- söngur. Saurbæjarkirkja kl. 23 – Jólanæturmessa. Jóladagur: Reynivallakirkja kl. 14 - Hátíðarmessa. Gamlársdagur: Brautarholtskirkja kl. 17 - Aftansöngur. Flugeldasala Kyndils hefst 28. desember Björgunarsveitin Kyndill undirbýr nú sína árlegu flugeldasölu sem hefst laugardaginn 28. desember. Mikið hefur mætt á sjálfboðaliðum sveitarinnar að undanförnu, sérstaklega þegar óveðrið reið yfir nú í desember. Þá fór Kyndill í fjölda útkalla og sá um lokanir á Mosfells- heiði og um Kjalarnes. Dagana eftir að veðrið gekk niður hefur sveitin séð um að selflytja varning norður yfir heiðar, gaskúta, ofna og fleira eftir viðvarandi rafmagnsleysi. Sölustaðir ársins verða í höfuð- stöðvum Kyndils að Völuteigi 23 og á bílaplaninu við KFC í Háholti. Opið er frá kl. 10-22 og til kl. 16 á gamlárs- dag. Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitarinnar og gríðarlega mikilvæg fyrir rekstur sveitarinnar. Hamrar hjúkrunarheimili Óskum eftir hjúkrunarfræðingum Óskað er eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á Hömrum hjúkrunarheimili. Um er að ræða 60% morgun- og kvöldvaktir auk 20% næturvaktir. Umsóknarfrestur er til og með 06. janúar 2020. Nánari upplýsingar veitir Hafdís B. Sigurðardóttir, deildarstjóri, í s. 860 7980 eða gegnum netfangið hafdisbjorg@eir.is. Umsóknir sendist rafrænt gegnum www.eir.is Mæðgurnar og Mosfellingarnir Kristjana Arnardóttir, Arna Hagalínsdóttir og Rúna Birna Hagalínsdóttir hafa stofnað styrkt- arsjóðinn Kraftur Kötlu. Markmið sjóðsins er að styðja við börn í þróunarlöndum til uppeldis og menntunar. „Hugmyndin að sjóðnum kviknaði fyrir nokkrum árum þegar okkur mæðgum lang- aði til að hefja einhvers konar styrktarstarf- semi í nafni Kötlu Rúnar, dóttur Rúnu, sem lést í janúar 2007. Katla gaf okkur öllum ótrúlegan kraft, kraft til að standa saman, kraft til að miðla og hjálpa og æðri skilning á því að allir fá ekki sömu tækifærin,“ segir Arna en hug- myndin hefur verið í mótun í nokkur ár. Öll börn hafi möguleika á menntun Undir lok árs 2014, þegar Rúna var búsett ásamt fjölskyldu sinni í litlum bæ í suður- hluta Eþíópíu, bankaði upp á hjá þeim sárafátæk ung stúlka og óskaði eftir að fá að vinna hjá þeim. Rúna hafnaði stúlkunni og sagðist því miður ekki vera með neina vinnu en þessi áræðna stúlka lét ekki segj- ast og stóð fyrir utan hús fjölskyldunnar í tvo daga. Að lokum fór svo að Rúna og sótti hana og bauð henni starf við þrif. „Stúlkan kunni ekkert til þrifa, enda alin upp og bjó sjálf í moldarkofa en hún lagði sig hins vegar alla fram við að læra tökin, mætti daglega til starfa og varð fljótt ómiss- andi partur af fjölskyldunni. Eftir því sem á leið tók ég eftir því að þegar stúlkan var að fara heim í lok dags laumaði hún alltaf ávöxtum og öðrum afgöngum í poka og tók með sér. Kom í ljós að hún var að taka sér mat til að fara með heim því að maðurinn hennar var mjög veikur. Þau áttu fjögurra ára gamlan dreng sem heitir Eybo. Eftir þetta var hún alltaf send heim með mat í lok dags og var hvött til að hafa drenginn sinn með sér í vinnuna, enda nóg af börnum á heimilinu til að leika sér við. Til að gera langa sögu stutta þá varð þessi litla fallega fjölskylda ómissandi hluti af heimilislífinu. Okkur fannst ómögulegt að Eybo hefði ekki sömu tækifæri og okkar eigin börn til að sækja góðan skóla,“ segir Rúna. Auðvelt að rétta hjálparhönd Þarna kviknaði krafturinn og Rúna hafði samband heim til Íslands og bað nánastu fjölskyldumeðlimi um að taka höndum saman og stofna smá sjóð til að tryggja skólagöngu Eybo. Í fimm ár hefur Eybo núna sótt góðan skóla og fær þá menntun sem hann á skilið, ritföng og fatnað. „Nú er svo komið að við viljum nýta þennan kraft og gefa fleiri börnum sömu tækifæri og Eybo hefur fengið. Kraftur Kötlu styrkir börn til skólagöngu sem búa hjá foreldrum sínum sem hafa ekki efni á að mennta þau. Markmiðið er að veita þessum börnum aðgang að skólum í sínu landi til að þau menntist og eflist sem einstaklingar innan sinnar þjóðar. Við erum í góðu sambandi við aðra foreldra nú þegar sem bíða þess spenntir að börnin þeirra komist í góða skóla,“ segir Kristjana. Kraftur Kötlu þiggur frjáls framlög og sá sem vill gerast styrktaraðili velur sjálfur hversu mikið eða hversu oft viðkomandi styrkir börnin. Allir sem gerast styrktaraðilar fá reglulega upplýsingar um börnin, námsárangur þeirra og fjölskyldur. Hafa má samband við þær mæðgur með því að senda póst á kotlukraftur@gmail.com. frjáls framlög Kraftur Kötlu lætur gott af sér leiða • Styðja börn til menntunar í þróunarlöndunum Stofna styrktarsjóð í nafni Kötlu Rúnar sem lést 2007 rúna birna, kristjana og arna eybo í afmælisveislu (lengst til vinstri) Tilkynnt um hertar reglur í Varmárskóla Í Varmárskóla hafa reglur um að- gengi fullorðinna að skólanum verið hertar meðal annars í ljósi þess að nýverið gerðist það í Reykjavík að fullorðinn einstaklingur fór inn í skóla í Reykjavík og braut gegn barni. Varmárskóli er einn af stærstu skólum landsins með um 830 nemendur og 140 starfsmenn. „Foreldrum og öðrum gestum ber að ganga inn um aðaldyr skólans og gefa sig fram við ritara og tilnefna ástæðu heimsóknar. Í kjölfarið eru foreldrar og aðrir gestir sértaklega merktir á meðan þeir sinna erind- um í skólanum,“ segir Anna Greta Ólafsdóttir skólastjóri Varmárskóla. Skólastjórnendur vonast eftir fullum skilningi á þessum hertu reglum.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.