Fréttablaðið - 14.09.2015, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 1 4 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 1 4 . s e p t e M b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
skoðun Ensk stjórnmál og
áhrif þeirra hér. 12-13
sport Breiðabliksstúlkur fengu
Íslandsbikarinn afhentan. 14-16
Menning Líf og fjör í Skíris-
skógi. 22-24
lÍfið Leikur í nýrri herferð. 28-30
plús 2 sérblöð l fólk
l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Sími
512 4900
landmark.is
Á sprettinum við Sæbraut Margir nota göngustíginn meðfram sjónum við Sæbraut til hvers konar útiveru. Hér má sjá ungan mann skokka fram hjá listaverkinu Vörðunni eftir Jóhann Eyfells.
Hinum megin við sundið má svo sjá Kjalarnesið. Fréttablaðið/Pjetur
efnahagsMál Vinnumarkaðsrann-
sókn Vinnumálastofnunar spáir enn
frekari samdrætti í atvinnuleysi á
næsta ári og að atvinnuleysi á árs-
grundvelli verði um 2,7 prósent. Þá
spáir stofnunin því að vöxtur verði
í innflutningi á erlendu vinnuafli.
Hagvöxtur jókst um 5,2 prósent á
fyrstu sex mánuðum ársins, verð-
bólga eykst, Seðlabankinn hefur í tví-
gang hækkað stýrivexti og auk þess
boðar ríkisstjórnin skattalækkanir
og afnáms tolla á sérvöru. Þórólfur
Matthíasson, prófessor við hagfræði-
deild Háskóla Íslands, segir margt
benda til þenslumyndunar.
„Það eru alls konar merki sem
benda til þess að slakinn í efnahags-
lífinu sé búinn og farið er að ganga á
hann,“ segir Þórólfur.
Hann segir að þó sé ekki hægt að
fullyrða að ástandið á vinnumark-
aðnum sé orðið álíka og fyrir hrun.
„Við búum enn við fjármagnshöft
þannig að við höfum ekki sama inn-
flæði fjármagns eins og við höfðum
fyrir hrun. Að því leyti er ástandið
ólíkt.“
Hann segir að stjórnvöld verði
að beita sér í meira mæli samhliða
Seðlabankanum við að passa upp á
að hér skapist ekki of mikil þensla.
„Samtök atvinnulífsins hafa þegar
bent á að óvarlegt er að fara út í þær
skattalækkanir sem hafa verið boð-
aðar. Það þarf að samþætta fjármála-
pólitíkina og peningamálapólitíkina,“
segir Þórólfur og bendir á að það
sé varhugavert að velta allri ábyrgð
vegna þenslumyndunar yfir á Seðla-
bankann en það komi til með að valda
vaxtahækkunum. „Og þeir [vextirnir]
eru nú nógu háir fyrir af ýmsum
ástæðum. Það væri æskilegra að beita
fjárlögunum í meira mæli til að draga
úr skattalækkunum og frestunum á
framkvæmdum og þess háttar.“
Bjarni Benediktsson virðist ekki
sömu skoðunar en hann telur ríkis-
sjóð ekki standa í þensluhvetjandi
aðgerðum og telur höfrungahlaup-
ið á vinnumarkaði ekki til bóta.
– sa, srs / sjá síðu 4
Óábyrgt er að velta
ábyrgð á Seðlabanka
Margir þættir í efnahagslífinu benda til þenslumyndunar. Prófessor í hagfræði
telur mikilvægt að beita fjárlögum í meira mæli til að berjast gegn þenslumynd-
un. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra telur ríkissjóð ekki ýta undir þenslu.
✿ Menntun atvinnulausra
G
ru
nn
sk
ól
am
en
nt
un
Fr
am
ha
ld
ss
kó
la
m
en
nt
un
H
ás
kó
la
m
en
nt
un
60
50
40
30
20
10
%
❚ október 2008
❚ júlí 2015
Það þarf að sam-
þætta fjármála-
pólitíkina og
peningamála-
pólitíkina“
Þórólfur
Matthíasson
bandarÍkin Skógareldar geisa enn
á vesturströnd Bandaríkjanna
og þurftu þúsundir Bandaríkja-
manna að flýja heimili sín í gær vegna
skógarelda norður af borginni
San Francisco. Eldarnir höfðu í
gær brennt rúma fjörutíu þúsund
hektara af ræktarlandi, auk skóla,
verslana og 81 heimilis til grunna.
Fimm þúsund slökkviliðsmenn
voru á svæðinu að reyna að ráða við
aðstæður í gærdag.
Jerry Brown, ríkisstjóri Kaliforníu,
sem San Francisco tilheyrir, hefur lýst
yfir neyðarástandi.
Miklir skógareldar hafa geisað á
vesturströnd Bandaríkjanna undan-
farið vegna þurrkatímabils undan-
farinna ára sem eru með þeim verstu
í manna minnum.
Kalifornía hefur varið hundruðum
milljóna bandaríkjadala í að berjast
við eldana. Þar af rúmlega 200 millj-
ónum, andvirði 25 milljarða íslenskra
króna, í júlímánuði einum. – þea
Skógareldar
eyðileggja tugi
heimila
Eldhaf gleypti bifreiðar og byggingar í
Kaliforníu í gær. NordicPhotos/AFP