Fréttablaðið - 14.09.2015, Síða 11

Fréttablaðið - 14.09.2015, Síða 11
Hagkvæm bílafjármögnun fyrir viðskiptavini Með reiknivélinni á arionbanki.is getur þú skoðað greiðslubyrði og hvaða fjármögnunarkostir henta þér. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 1 5 -0 9 7 2 Alþingi Stefnt er að því að fjölga stöðu- gildum sálfræðinga í íslenskri heilsu- gæslu um átta á næsta ári. Stöðu- gildi sálfræðinga á öllu landinu eru nú fimmtán en þessi fjölgun er sögð liður í því að efla þjónustu heilsugæslu á landinu og bæta aðgengi að henni. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs er samtals gert ráð fyrir að verja tæpum 69 milljónum króna til þess að ráða sálfræðinga til starfa. Fjárframlög til heilbrigðisstofnana Vesturlands, Norðurlands, Austurlands og Suður- lands verða samtals aukin um 34,4 milljónir vegna þessa og aðrar 34,4 milljónir fara til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einn sálfræðingur ætti því að vera ráðinn á hverja af stofnununum fjórum á landsbyggðinni og fjórir á höfuðborgar svæðinu. Að því er segir í frétt á vef velferðarráðuneytisins er áætlað að eitt stöðugildi sálfræðings þurfi á hverja níu þúsund íbúa, miðað við breska átakið „Improving Access to Psychological Therapies“. Það þýðir að þörf sé á samtals 36,6 stöðugildum hér á landi en eftir þessa breytingu verða stöðugildin samt sem áður aðeins 23 á landsvísu. Haft er eftir Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra að hann vilji áfram fjölga sálfræðingum til samræmis við þessi viðmið og fjölga þannig um fjórtán stöðugildi til viðbótar árin 2017 og 2018. „Það hefur lengi verið vitað að umtalsverður hluti fólks sem leitar til heilsugæslunnar glímir við vandamál þar sem menntun og þekking sálfræð- inga gæti komið að góðum notum, eins og kvíða, þunglyndi, svefnvandamál og fleira mætti telja,“ er haft eftir Kristjáni. „Með þessu móti eflum við heilsugæsl- una og sníðum þjónustu hennar betur að þörfum notenda.“ – bá Til heilsugæslustöðva landsins sækir fólk með margvísleg vandamál. Fréttablaðið/GVA Stöðugildum sálfræðinga hjá heilsugæslunni fjölgað um átta SVeitArStjórnArmál Tillaga  fulltrúa S-lista í bæjarstjórn Hveragerðis um að láta meta varðveislugildi gróður- húsa í bænum var felld af meirihlut- anum. Samkvæmt tillögunni átti matið að verða grundvöllur verndunar ein- stakra gróðurhúsa í Hveragerði. Segir að þegar mest var hafi verið um 50 þúsund fermetrar af gróður- húsum í bænum en í lok árs 2010 hafi þau verið 24 þúsund fermetrar og þeim hafi fækkað meira síðan. „Gróðurhúsin hafa verið hluti af Hveragerði frá upphafi byggðar árið 1929 og eru þar af leiðandi órjúfan- legur hluti af ímynd bæjarins og eitt meginsérkenni hans ásamt hvera- svæðinu í miðju bæjarins,“ sagði í tillögunni. Meirihluti Sjálfstæðisflokks sagði að endurskoðun aðalskipulags bæj- arins væri hafin og að rétt væri  að varðveislugildi gróðurhúsa, eins og annarra mannvirkja í bæjarfélaginu, yrði skoðað. – gar Vilja vernda gróðurhúsin sem einkenni Hveragerðis Gróðurhúsum í Hveragerði fækkar. Fréttablaðið/Pjetur SlyS Björgunarsveitir voru kallaður út í tvígang á laugardagskvöld. Í fyrra útkallinu sóttu björgunar- sveitir frá Blönduósi og Skagaströnd mann sem hafði fótbrotnað við neðri brúna yfir Laxá í Refasveit. Bera þurfti manninn dágóðan spöl þangað sem sjúkrabíll beið þess að flytja hann undir læknishendur. Verkið gekk vel, að því er fram kemur í tilkynningu Landsbjargar, og var manninum komið fljótt og örugg- lega í sjúkrabíl rétt fyrir klukkan tíu um kvöldið. Síðar sama kvöld aðstoðuðu sveitir á Austurlandi göngumann sem hafði hringt í Neyðarlínuna rétt eftir mið- nætti og óskað eftir aðstoð þar sem hann væri örmagna. Maðurinn, sem var staddur í grennd við Hjaltastaðakirkju á Hér- aði, var sóttur á fjórhjóli sem flutti hann að bíl björgunarsveitarinnar sem beið í Dölum. Þaðan var farið með hann að Hjaltastað þar sem sjúkrabíll beið hans. – gj Einn var fótbrotinn og annar örmagna Aðstoða þurfti ferðafólk á Norður- og Austurlandi um helgina. Mynd/Stöð 2 Það hefur lengi verið vitað að um- talsverður hluti fólks sem leitar til heilsugæslunnar glímir við vandamál þar sem menntun og þekk- ing sálfræðinga gæti komið að góðum notum. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra F r é t t i r ∙ F r é t t A B l A ð i ð 11m á n U D A g U r 1 4 . S e p t e m B e r 2 0 1 5

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.