Fréttablaðið - 14.09.2015, Page 12

Fréttablaðið - 14.09.2015, Page 12
SKOÐUN Eigum til á lager hinar vinsælu Robland sambyggðu vélar á góðum verðum. Grunnverð 1.189.834 bjóðum 15% afslátt á vélum og aukahlutum framm að páskum. Fullt að flottum vörum á góðu verði fyrir iðnaðinn og handverkið. Smiðshöfða 12 110 Reykjavík S: 586 8000 Smiðshöfða 12, 110 Reykjavík • S: 5868000 • www.roggi.is Vélasýning 17. 18. og 19. september frá kl. 10-17 Sýndar verða vélar frá Robland og allt það sem við höfum upp á að bjóða í þjónustu við tréiðnaðinn. Starfsmenn frá Robland verksmiðjunni verða á staðnum. Kaffiá könnunni Hnökr- arnir felast í stjórnarhátt- um þeirra sem hundsa vilja almenn- ings nema á fjögurra ára fresti. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hitti líkast til naglann á höfuðið í vikunni þegar hann sagði Pírata vera jaðarflokk. Flokk sem nýtur fylgist vegna þess að almenningur hefur misst alla trú á hefðbundnum stjórnmálum. Efalítið er mikið til í þessu. En hins vegar verður að setja stórt spurningamerki við það að setja Pírata þar með undir hatt óskyldra framboða víða um Evrópu og for- setaframboð Donalds Trump í Bandaríkjunum. Það gæti Pírötum hafa sárnað en þeir svara þá fyrir það ef þeir mega vera að. En við hin getum horft út í jaðarinn og reynt að átta okkur á því hvað það er sem laðar fylgi almennings þangað um þessar mundir og hvers vegna gengur upp að skil- greina Pírata sem jaðarflokk. Það sem felst í því að tilheyra jaðrinum er nefnilega fyrst og fremst valdaleysi. Bæði einstaklingar sem og samfélagshópar geta tilheyrt jaðr- inum. Þekktir jaðarhópar í samtímanum eru til að mynda öryrkjar, útigangsfólk, aldraðir, atvinnulausir, innflytj- endur og svo mætti áfram telja upp ýmsa valdalausa eða að minnsta kosti valdalitla minnihlutahópa. Konur hafa líka búið við það að tilheyra jaðrinum sem valdalaus hópur með öllu og upp úr slíku valdaleysi, slíkri jaðarsetningu, spratt einmitt Kvennaframboðið á sínum tíma. Það breytti miklu og vann stóra sigra þó enn séu mörg óunnin verkin í þeim efnum. Þar sem fólk hefur misst alla trú á hefðbundnum stjórn- málum, eins og Sigmundur Davíð bendir á, þá leitar það annað. Það leitar einmitt til valdalauss hóps sem tilheyrir jaðrinum og er því engum háður. Píratar hafa nefnilega, ólíkt fjórflokknum, engin sjáanleg tengsl við hagsmunaað- ila og engra hagsmuna að gæta nema þá heildarhagsmuna þjóðarinnar. Fyrir hinn almenna og langþreytta kjósanda í íslenskum stjórnmálum hljómar það eins og draumur í dós. Píratar hafa aldrei verið við völd og hafa því aldrei skellt í virkjun, verksmiðju eða göng þegar korter er í kosningar og það finnst kjósendum líkast til nokkuð aðlaðandi. Málið er að Píratar eru, eins og svo stór hluti fólksins í landinu, nánast með öllu valdalausir nema á fjögurra ára fresti og það er óviðunandi ástand. Því í lýðræðisríki vill lýðurinn ráða. Það ætti að segja sig sjálft en gerir það þó greinilega ekki því það eru nefnilega, eins og Sigmundur Davíð bendir á, hnökrar á lýðræðinu sem við búum við á Íslandi. Sigmundur Davíð virðist meta það sem svo að hnökrarn- ir felist í vantrú almennings á hefðbundnum stjórnmálum. Úr þessu þurfi að bæta og það standi upp á stjórnmála- flokkana að gera það. Stjórnmálaflokkur forsætisráðherra hefur samanlagt verið við völd á Íslandi áratugum saman en hnökrarnir felast í vantrú almennings. Nei, það einfald- lega gengur ekki upp. Hnökrarnir felast í stjórnarháttum þeirra sem hundsa vilja almennings nema á fjögurra ára fresti. Hnökrarnir felast í þeim sem fara frekar að vilja hagsmunaaðila en vilja almennings. Hnökrarnir liggja í kjarna valdsins en ekki á jaðrinum hjá valdalausum lýðnum. Lýðnum sem vill hafa meira að segja um líf sitt og samborgara sinna en er í boði á fjögurra ára fresti með loforðum um ís fyrir alla og ídýfu með. Því er aukið lýðræði það eina sem getur bjargað stjórnmálunum en ekki flokkarnir sjálfir. Smá hnökrar Magnús Guðmundsson magnus@ frettabladid.is Formaður fjárlaganefndar, Vigdís Hauksdóttir, virðist vera að hita upp fyrir fjárlagagerðina með því að senda öryrkjum tóninn. Að hennar mati eru þeir of margir og hún óttast að þeir svindli óskap- lega mikið á kerfinu og því vill hún stórefla eftirlit með greiðslum Tryggingastofnunar. Þessu sama fólki lofaði Framsóknarflokkurinn kjarabótum í kosningabarátt- unni sem ekki hefur verið staðið við nema að litlu leyti. Hins vegar þurfa örorkulífeyrisþegar nú að borga meira fyrir mat vegna hækkunar matarskatts og greiða hærri húsaleiguleigu því húsaleigubætur hafa ekki hækkað í tíð þessarar ríkisstjórnar. Þá sýnir nýleg rannsókn að hlutfall af tekjum fólks til heilbrigðisútgjalda fer vaxandi. Kannski er formaður fjárlaganefndar að reyna að leiða athyglina frá þessum nöturlegu staðreyndum! Fjöldi öryrkja Haft er eftir formanni fjárlaganefndar að öryrkjar á Íslandi séu miklu hærra hlutfall af vinnuaflinu en ann- ars staðar á Norðurlöndunum. Þetta er bara bull eins og bent hefur verið á af Stefáni Ólafssyni prófessor og stjórnarformanni Tryggingastofnunar á öðrum vett- vangi. Í raun eru örorkulífeyrisþegar heldur færri hér í samanburði við flest Norðurlandanna. Hvert er vandamálið? Langalgengustu orsakir örorku hér á landi eru vegna geðraskana og stoðkerfissjúkdóma. Ég vil hvetja for- mann fjárlaganefndar til nýta starfsþrek sitt til að forgangsraða fjármunum í þágu örykja, fólks sem býr ekki við fulla starfsorku. Í fyrsta lagi verður að hækka örorkulífeyri því örorkulífeyrisþegar eru í mestri áhættu allra hér á landi að búa við fátækt, í öðru lagi þarf að hækka húsaleigubætur, í þriðja lagi verður að auka fjárveitingar til geðheilbrigðisþjónustu svo hún verði aðgengilegri og kosti minna, í fjórða lagi þarf að minnka kostnað fólks við heilbrigðisþjónustu og sjúkraþjálfun, í fimmta lagi þarf að veita meira fé til vinnuverndar og í sjötta lagi þarf að opna aftur fram- haldsskólana fyrir fólki yfir 25 ára aldri svo allir fái tækifæri til að mennta sig til nýrra starfa. Þetta væri virðingarverð byrjun! Ekki bulla um öryrkja! Í raun eru örorkulíf- eyrisþegar heldur færri hér í saman- burði við flest Norður- landanna.  Sigríður Ingi björg Ingadóttir þingkona Sam- fylkingarinnar og formaður vel- ferðarnefndar Frá degi til dags Halldór ÚtgáFuFélag: 365 miðlar ehf. StjórnarFormaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ForStjóri: Sævar Freyr Þráinsson ÚtgeFandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborga svæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 FréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is HelgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FramleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitSHönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r Corbyn-manían Á laugardag varð ljóst að Jeremy Corbyn hefði sigrað í formanns­ kosningu í Verkamannaflokknum í Bretlandi með töluverðum mun eða um 59 prósentum atkvæða. Ljóst er að Corbyn laðar að sér fjöldann allan af einstaklingum en hans stjórnmál virðast vekja von í brjósti fólks. Margir telja að róttæk vinstristefna Corbyns muni ekki eiga upp á pallborðið hjá kjósendum en skoðana­ könnun Ashcrofts lávarðar frá því um helgina sýnir fram á að um 52 prósent breskra kjósenda telja að róttækur sósíalískur flokkur myndi hafa góð áhrif á samfélagið. Fólk þreytt á kerfiskörlum Í Bandaríkjunum nýtur Bernie Sanders, frambjóðandi í forvali Demókrata, einnig óvæntra vin­ sælda. Bæði Sanders og Corbyn lýsa sjálfum sér sem demókrat­ ískum sósíalistum eða jafn­ aðarmönnum. Margar kannanir í Bandaríkjunum sýna fram á það að stór hluti almennings þar sé í raun sammála sósíalískum stefnumálum Sanders. Hér heima bólar hins vegar lítið á sósíalísku byltingunni líkt og í Bretlandi og Bandaríkjunum. Samfylking og Vg ríða ekki feitum hesti í skoðana­ könnunum, kannski af því að þeir séu taldir of miklir kerfisflokkar. Corbyn og Sanders eru almennt taldir and­kerfisframbjóðendur, en hér nýtur and­kerfisflokkur Pírata umtalsverðs fylgis. stefanrafn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.