Fréttablaðið - 14.09.2015, Qupperneq 6
Nicotinell, lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Hætta skal alfarið reykingum meðan á meðferð með Nicotinell
stendur. Upphafsskammtur skal ákvarðaður út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Verði vart við aukaverkanir þegar hærri styrkleiki er notaður skal íhuga að skipta yfir í lægri styrkleika. Meðferðarlengd er einstaklingsbundinn. Samtímis neysla á súrum drykkjum, eins og t.d. kaffi og sódavatni, getur minnkað frásog nikótíns í munni.
Forðast skal þessa drykki í 15 mínútur fyrir notkun lyfjatyggigúmmís. Tyggja skal eitt stykki Nicotinell lyfjatyggigúmmí við reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stykki á sólarhring, þó ekki fleiri en 15 stykki af 4 mg lyfjatyggigúmmíi og 25 stykki af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Vegna eiginleika lyfjatyggigúmmís sem lyfjaforms getur nikótínþéttni
í blóði verið mismunandi á milli einstaklinga. Því skal miða tíðni skammta við einstaklingsþörf, innan uppgefinna hámarksskammta. Tyggja skal eitt lyfjatyggigúmmí þar til finnst sterkt bragð. Lyfjatyggigúmmíið skal því næst hvíla á milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal byrja að tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mínútur.
Í flestum tilfellum skal meðferðin standa í a.m.k. 3 mánuði. Eftir 3 mánuði skal draga smám saman úr notkun. Venjulega er ekki mælt með notkun Nicotinell lyfjatyggigúmmís lengur en í eitt ár. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin
til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Þeir sem reykja ekki og þeir sem hafa ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna eiga ekki að nota Nicotinell. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota Nicotinell ef þú: ert
þunguð, með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi. Einstaklingar undir 18 ára aldri mega ekki nota Nicotinell nema að læknisráði. Nikótín sem er gleypt getur valdið
versnun einkenna hjá sjúklingum sem eru með bólgu í vélinda, munni eða koki, magabólgu eða magasár. Einstaklingum með gervitennur, eiga við vandamál í liðamótum kjálka og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform en lyfjatyggigúmmí. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota
lyfjatyggigúmmíið. Athuga ber að lyfjatyggigúmmíið og munnsogstöflurnar innihalda natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321) sem getur valdið staðbundinni ertingu slímhúðar en sumar bragðtegundir innihalda að auki sorbitól (E420), maltitól (E965) eða aspartam (E 951) sem ekki allir mega taka. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
®
Ertu að hætta að reykja?
Veistu hvaða bragðtegund hentar þér?
Lyfjaauglýsing
Fæst í 6 bragðtegundum!
NICOTINELL
LYFJATYGGIGÚMMÍ
Nicotinell-6-bragdtegundir-5x10 copy.pdf 1 12/08/15 09:40
Palestínufólk hreinsar upp brak í Al-Aqsa-moskunni í gamla bæjarhlutanum í Jerúsalem í gær eftir átök sem þar
brutust út milli hópa Palestínumanna og ísraelskrar öryggislögreglu. Kveikjan var mótmæli vegna ákvörðunar
Moshe Yaalon, varnarmálaráðherra Ísraels, í síðustu viku um að neita ákveðnum hópum um aðgang að mosku-
svæðinu. NordicPhotos/AFP
StjórnSýSla Gert er ráð fyrir að fjár-
heimildir til ríkissaksóknara lækki
um 31,8 milljónir króna að raun-
gildi í fjárlagafrumvarpi næsta árs.
Lögð er til 50 milljóna króna
lækkun vegna verkefna sem færast
frá ríkissaksóknara til nýs embættis
héraðssaksóknara með breyttri
skipan ákæruvalds.
Í öðru lagi er gert ráð fyrir 20
milljóna króna framlagi sem
lýtur að eflingu embættisins með
tveimur nýjum stöðugildum, meðal
annars vegna eftirlits með rann-
sóknum og meðferð ákæruvalds,
eftirlits með hlustunum og sérstök-
um rannsóknaraðferðum, vinnslu
tölfræðiupplýsinga ákæruvaldsins,
menntunar og þjálfunar ákærenda
og alþjóðlegra samskipta.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissak-
sóknari segir að önnur af tveimur
meginforsendum með stofnun
embættis héraðssaksóknara hafi
verið að efla embætti ríkissak-
sóknara.
„Ríkisendurskoðun var búin að
skoða málin hjá okkur og komst
að þeirri niðurstöðu í skýrslunni
að það væri varhugavert að skera
niður,“ segir Sigríður.
Í umræddri skýrslu gagnrýnir
Ríkisendurskoðun að á árunum
2009 til 2015 hafi sérstakur sak-
sóknari fengið fimmfalt hærri
upphæð af fjárlögum en ríkissak-
sóknari, eða 5,5 milljarða á móti
1,1 milljarði. Nánast öll sakamál í
landinu séu á könnu ríkissaksókn-
ara, auk þess sem embættið gegni
umfangsmiklu eftirlits- og sam-
ræmingarhlutverki.
Sigríður Friðjónsdóttir segir að
Fjárheimildir
skornar niður
um 32 milljónir
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari
segir að ráðning tveggja nýrra sak-
sóknara myndi kosta 26 milljónir.
Fréttablaðið/Pjetur
Ríkisendurskoðun
var búin að skoða
málin hjá okkur og komst að
þeirri niðurstöðu í skýrsl-
unni að það væri varhuga-
vert að skera niður.
Sigríður Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari
lögreglumál Lögregla á landsbyggð-
inni telur sig ekki færa um að halda
uppi ásættanlegu öryggisstigi. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu grein-
ingardeildar ríkislögreglustjóra um
skipulagða glæpastarfsemi.
Þá segir einnig í skýrslunni að
lögreglu hafi verið sniðinn þröngur
stakkur undanfarin ár. „Verði svo
áfram er sú áhætta fyrir hendi að
umfang skipulagðrar brotastarfsemi
aukist án viðspyrnu samfélagsins.“
Almennt telur lögregla sig ekki færa
um að halda uppi ásættanlegri frum-
kvæðislöggæslu. Sú aðstaða heftir
möguleika lögreglu á upplýsingaöflun
um starfsemi skipulagðra brotahópa.
Lögregla telur að á höfuðborgar-
svæðinu starfi á bilinu fimm til tíu
skipulagðir glæpahópar, en telur sig
ekki geta dregið úr umfangi þeirra á
meðan staðan helst eins.
Þá kemur einnig fram í skýrslunni
að vísbendingar séu um að man-
sal sé stundað á kampavínsklúbb-
um í Reykjavík. Í skýrslunni segir að
of litlar upplýsingar séu um hvort
erlendar stúlkur sem þar starfa séu
fluttar til lands nauðugar eða ekki.
„Þær eru jafnan ófúsar til sam-
starfs við lögreglu sem torveldar
rannsóknir,“ segir í skýrslunni.
– þea
Geta ekki tryggt ásættanlegt öryggisstig
Ríkissaksóknari fær 32 milljónum minna á fjárlög-
um næsta árs en í fyrra. Ástæðan er flutningur verk-
efna frá saksóknara til héraðssaksóknara. Embættið
fær þó mörg ný verkefni við breytingarnar.
með tilkomu héraðssaksóknara-
embættisins muni stór hluti af
verkefnum frá ríkissaksóknara fara
til nýja embættisins. Á móti komi
að mörg ný verkefni bætist við.
Til dæmis í formi kærumála sem
verða mörg hundruð. Hún býst til
dæmis við því að stór hluti þeirra
kyn ferðis brotamála sem héraðs-
saksóknari kemur til með að fella
niður verði kærður til ríkissak-
sóknara. „Það er mjög mikil vinna
í þeim málum.“
Þá bendir Sigríður á að gert sé ráð
fyrir því í fjárlögunum að 20 millj-
óna framlag verði nýtt til þess að
ráða í tvö ný stöðugildi. „En málið
er það að tveir starfsmenn kosta 26
milljónir,“ segir hún og vonast til
að þarna hafi bara orðið reiknivilla
sem verði leiðrétt á meðan fjárlaga-
frumvarpið er í meðförum þingsins.
jonhakon@frettabladid.is
Möguleg reiknivilla:
Í fjárlögum næsta árs er gert ráð
fyrir 20 milljóna króna framlagi til
að ráða í tvö ný stöðugildi hjá ríkis-
sáttasemjara. Sigríður Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari bendir hins vegar á
að ráðning tveggja nýrra saksóknara
myndi kosta 26 milljónir króna.
1 4 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 m á n u D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
Hreinsa til eftir átök gærdagsins