Fréttablaðið - 14.09.2015, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 14.09.2015, Blaðsíða 47
Ö ll ve rð e ru b ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi llu r og /e ða m yn da br en gl . INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17. INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. ENERGETICS RIFT Æfingabuxur úr Dry Plus efni. Litur: Svartar. Dömustærðir. ENERGETICS CATENA Léttir æfingaskór. Dömustærðir. 7.990 5.990 ENERGETICS PANAMA Æfingabolur úr DRY Plus efni með góðri öndun. Litir: Rauður, svartur. Dömustærðir. 3.490 NIKE TASKA Íþróttatöskur. Litir: Rauð, svört, blá. Stærð: M. 7.990 Energetics æfingaskór FRÁBÆRT VERÐ! Flott úrval af æfingafatnaði og fylgihlutum á frábæru verði! MEÐ STÆL RÆKTAÐU LÍKAMANN Í hjarta Hróa hattar er þriðja frumsýn- ing Þjóðleikhússins á stuttum tíma og ekki annað hægt að segja en að þeirra leikár sé keyrt hressilega af stað en á Líf og fjör í Skírisskógi ★★★★ laugardaginn var stóra svið hússins í sviðsljósinu. Goðsögnina um Hróa hött þekkja flestir en í sýningu Vesturports eru áherslurnar færðar frá honum til hefðar meyjarinnar Maríönnu. Á meðan hertoginn af Jórvík berst í heilögu stríði í fjarlægum löndum híma dætur hans tvær, Maríanna og Henrietta, heima. Samkvæmt hefðum er þeirra hlutverk að finna sér eigin- mann hið fyrsta en Maríanna hefur aðrar hugmyndir og flýr til að ganga í útlagahóp Hróa hattar sem í fyrstu rekur hana á brott en hægt og rólega fer hið kalda hjarta Hróa að bráðna. David Farr vísar oft í verk Williams Shakespeare, þar á meðal konur sem þykjast vera karlmenn, yngri systurina sem má ekki giftast fyrr en sú eldri finnur sér eiginmann og blikk í áttina til Draums á Jónsmessunótt. Handritið öðlast þannig óvænta og áhugaverða dýpt, þó að kynja- og kynferðispólitík- in sé stundum skrýtin. Einnig hika Gísli og Selma ekki við að vísa í þekktar frá- sagnarhefðir og kvikmyndaatriði með fantafínum árangri, þó er einn frasi í lok verksins orðinn ansi þreyttur. Þýð- ing Garðars er ágæt en öðru hverju er textinn þunglamalegur og gamaldags. Leikhópurinn samanstendur af reynsluboltum, tiltölulega nýútskrif- uðum leikurum og einstaklingum í óreyndari kantinum. Útkoman verður virkilega smellin. Lára Jóhanna tók sér tímabundna pásu frá sviðinu en snýr nú aftur í burðarhlutverki og stendur sig prýðilega í krefjandi hlutverki. Það tekur Þóri aðeins lengri tíma að finna taktinn í hlutverki hins spígsporandi Hróa en hann nær flugi eftir hlé, sam- leikur þeirra tveggja er oft fallegur. En einn maður gerir sér lítið fyrir og stelur sýningunni: Guðjón Davíð Karlsson. Gólarinn Pierre syngur, dansar, gantast og geiflar sig af mikilli list. Stundum er hrein unun að fylgjast með honum spila með áhorfendur. Persóna Hróa er kannski á siðferði- lega gráu svæði, sérstaklega í byrjun, en engin spurning er hvar Jóhann prins lendir á skalanum. Fagurklædda og til- ætlunarsama frekjudollan er í höndum Sigurðar Þórs sem er virkilega góður, sumir taktarnir eru óborganlegir og raddbeitingin kostuleg. Katrín Halldóra er nýútskrifuð og hendist inn á sviðið í hlutverki Henrí- ettu. Hún er fantagóð kómísk leikkona og verður áhugavert að fylgjast með henni í framtíðinni. Stefán Karl fer í allra kvikinda líki á þessari kvöldstund og vekur nær undantekningalaust mikla kæti meðal áhorfenda. Hann er rændur, kaffærður og drepinn til skiptis en virðist njóta sín í botn þrátt fyrir hremmingarnar. Senur hans og Eddu eru líka bráðfyndnar og glaðværu glæpamennirnir, félagar Hróa, flottir í sínum töffaraskap þó húmorinn sé aldrei langt undan. Börkur Jónsson hannar metn- aðarfulla og spennandi leikmyndina. Brekkan á miðju sviðinu er frábærlega notuð, býr til spennu og gefur verkinu ævintýralegan blæ. Búningar Emmu Ryott eru stílhreinir og fallegir líkt og lýsingin. Bardagasenurnar eru fjöl- breyttar og frumlega leystar þó stærri hópsenurnar eiga eftir að slípast aðeins betur til. Gullfallega lokaatriðið á eftir að lifa lengi í minningunni. Leikstjór- arnir geta verið stoltir af sinni vinnu, því framsetningin og sviðslausnirnar eru afar snjallar. Tónlistarfólkið stendur á sviðinu nær allan tímann en ljóðrænu söng- textarnir sem Salka Sól skrifar og syng- ur, þó að fleiri taki líka lagið, tvinnast laglega við sýninguna. Lagatextinn hverfur stundum í ringulreiðina á LeikList Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr Vesturport Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson og Selma Björnsdóttir Leikarar: Þórir Sæmundsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Sigurður Þór Óskarsson, Oddur Júlíusson, Baltasar Breki Samper, Björn Dan Karlsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Stefán Hallur Stefánsson, Jóhannes Níels Sigurðsson, Stefán Karl Stefánsson, Edda Arnljótsdóttir, Ágúst Örn Börgesson Wigum, Emil Adrian Devaney, Gabriel Bergman Guðmunds- son, Agla Bríet Gísladóttir, Rakel María Gísladóttir og Selma Rún Rúnarsdóttir Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Emma Ryott Lýsing: Ken Billington og Ed McCarthy Bardagaatriði: Joe Bostick Þýðing: Garðar Gíslason Tónlist og hljómsveit: Salka Sól Eyfeld, Sigurður Ingi Einarsson, Aron Steinn Ásbjarnarson, Örn Ýmir Arason, Tómas Jónsson sviðinu en þátttaka og spilamennska þeirra er vel af hendi leyst, flæðandi og tilfinningarík. Í hjarta Hróa hattar er fjölskyldu- sýning en erfiðara er að meta hversu ungir leikhúsgestirnir geta verið. Ein- staka atriði eru frekar myrk, þá sér- staklega viðskipti hrottans Gilberts og Arthúrs Makepeace, og eru ekki fyrir viðkvæmar litlar sálir. Hnökrar sýningarinnar breyta ekki þeirri staðreynd að Í hjarta Hróa hattar er stórskemmtileg sýning fyrir ævin- týragjarna áhorfendur. Sigríður Jónsdóttir Niðurstaða: Ærslafull sýning sem hittir beint í mark. 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N u D a G u r22 m e N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ðMenning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.