Fréttablaðið - 14.09.2015, Síða 47
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
llu
r
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
ENERGETICS RIFT
Æfingabuxur úr Dry Plus efni.
Litur: Svartar. Dömustærðir.
ENERGETICS CATENA
Léttir æfingaskór. Dömustærðir.
7.990
5.990
ENERGETICS PANAMA
Æfingabolur úr DRY Plus efni með
góðri öndun. Litir: Rauður, svartur.
Dömustærðir.
3.490
NIKE TASKA
Íþróttatöskur. Litir: Rauð,
svört, blá. Stærð: M.
7.990
Energetics
æfingaskór
FRÁBÆRT
VERÐ!
Flott úrval af æfingafatnaði og
fylgihlutum á frábæru verði!
MEÐ STÆL
RÆKTAÐU
LÍKAMANN
Í hjarta Hróa hattar er þriðja frumsýn-
ing Þjóðleikhússins á stuttum tíma og
ekki annað hægt að segja en að þeirra
leikár sé keyrt hressilega af stað en á
Líf og fjör í Skírisskógi
★★★★
laugardaginn var stóra svið hússins í
sviðsljósinu.
Goðsögnina um Hróa hött þekkja
flestir en í sýningu Vesturports eru
áherslurnar færðar frá honum til
hefðar meyjarinnar Maríönnu. Á
meðan hertoginn af Jórvík berst í
heilögu stríði í fjarlægum löndum
híma dætur hans tvær, Maríanna og
Henrietta, heima. Samkvæmt hefðum
er þeirra hlutverk að finna sér eigin-
mann hið fyrsta en Maríanna hefur
aðrar hugmyndir og flýr til að ganga
í útlagahóp Hróa hattar sem í fyrstu
rekur hana á brott en hægt og rólega
fer hið kalda hjarta Hróa að bráðna.
David Farr vísar oft í verk Williams
Shakespeare, þar á meðal konur sem
þykjast vera karlmenn, yngri systurina
sem má ekki giftast fyrr en sú eldri
finnur sér eiginmann og blikk í áttina
til Draums á Jónsmessunótt. Handritið
öðlast þannig óvænta og áhugaverða
dýpt, þó að kynja- og kynferðispólitík-
in sé stundum skrýtin. Einnig hika Gísli
og Selma ekki við að vísa í þekktar frá-
sagnarhefðir og kvikmyndaatriði með
fantafínum árangri, þó er einn frasi í
lok verksins orðinn ansi þreyttur. Þýð-
ing Garðars er ágæt en öðru hverju er
textinn þunglamalegur og gamaldags.
Leikhópurinn samanstendur af
reynsluboltum, tiltölulega nýútskrif-
uðum leikurum og einstaklingum í
óreyndari kantinum. Útkoman verður
virkilega smellin. Lára Jóhanna tók sér
tímabundna pásu frá sviðinu en snýr
nú aftur í burðarhlutverki og stendur
sig prýðilega í krefjandi hlutverki. Það
tekur Þóri aðeins lengri tíma að finna
taktinn í hlutverki hins spígsporandi
Hróa en hann nær flugi eftir hlé, sam-
leikur þeirra tveggja er oft fallegur.
En einn maður gerir sér lítið fyrir
og stelur sýningunni: Guðjón Davíð
Karlsson. Gólarinn Pierre syngur,
dansar, gantast og geiflar sig af mikilli
list. Stundum er hrein unun að fylgjast
með honum spila með áhorfendur.
Persóna Hróa er kannski á siðferði-
lega gráu svæði, sérstaklega í byrjun,
en engin spurning er hvar Jóhann prins
lendir á skalanum. Fagurklædda og til-
ætlunarsama frekjudollan er í höndum
Sigurðar Þórs sem er virkilega góður,
sumir taktarnir eru óborganlegir og
raddbeitingin kostuleg.
Katrín Halldóra er nýútskrifuð og
hendist inn á sviðið í hlutverki Henrí-
ettu. Hún er fantagóð kómísk leikkona
og verður áhugavert að fylgjast með
henni í framtíðinni. Stefán Karl fer í
allra kvikinda líki á þessari kvöldstund
og vekur nær undantekningalaust
mikla kæti meðal áhorfenda. Hann
er rændur, kaffærður og drepinn til
skiptis en virðist njóta sín í botn þrátt
fyrir hremmingarnar. Senur hans og
Eddu eru líka bráðfyndnar og glaðværu
glæpamennirnir, félagar Hróa, flottir í
sínum töffaraskap þó húmorinn sé
aldrei langt undan.
Börkur Jónsson hannar metn-
aðarfulla og spennandi leikmyndina.
Brekkan á miðju sviðinu er frábærlega
notuð, býr til spennu og gefur verkinu
ævintýralegan blæ. Búningar Emmu
Ryott eru stílhreinir og fallegir líkt og
lýsingin. Bardagasenurnar eru fjöl-
breyttar og frumlega leystar þó stærri
hópsenurnar eiga eftir að slípast aðeins
betur til. Gullfallega lokaatriðið á eftir
að lifa lengi í minningunni. Leikstjór-
arnir geta verið stoltir af sinni vinnu,
því framsetningin og sviðslausnirnar
eru afar snjallar.
Tónlistarfólkið stendur á sviðinu
nær allan tímann en ljóðrænu söng-
textarnir sem Salka Sól skrifar og syng-
ur, þó að fleiri taki líka lagið, tvinnast
laglega við sýninguna. Lagatextinn
hverfur stundum í ringulreiðina á
LeikList
Í hjarta Hróa hattar
eftir David Farr
Vesturport
Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson og
Selma Björnsdóttir
Leikarar: Þórir Sæmundsson, Lára
Jóhanna Jónsdóttir, Guðjón Davíð
Karlsson, Sigurður Þór Óskarsson,
Oddur Júlíusson, Baltasar Breki
Samper, Björn Dan Karlsson, Katrín
Halldóra Sigurðardóttir, Baldur Trausti
Hreinsson, Stefán Hallur Stefánsson,
Jóhannes Níels Sigurðsson, Stefán Karl
Stefánsson, Edda Arnljótsdóttir, Ágúst
Örn Börgesson Wigum, Emil Adrian
Devaney, Gabriel Bergman Guðmunds-
son, Agla Bríet Gísladóttir, Rakel María
Gísladóttir og Selma Rún Rúnarsdóttir
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Emma Ryott
Lýsing: Ken Billington og Ed McCarthy
Bardagaatriði: Joe Bostick
Þýðing: Garðar Gíslason
Tónlist og hljómsveit: Salka Sól Eyfeld,
Sigurður Ingi Einarsson, Aron Steinn
Ásbjarnarson, Örn Ýmir Arason, Tómas
Jónsson
sviðinu en þátttaka og spilamennska
þeirra er vel af hendi leyst, flæðandi og
tilfinningarík.
Í hjarta Hróa hattar er fjölskyldu-
sýning en erfiðara er að meta hversu
ungir leikhúsgestirnir geta verið. Ein-
staka atriði eru frekar myrk, þá sér-
staklega viðskipti hrottans Gilberts og
Arthúrs Makepeace, og eru ekki fyrir
viðkvæmar litlar sálir.
Hnökrar sýningarinnar breyta ekki
þeirri staðreynd að Í hjarta Hróa hattar
er stórskemmtileg sýning fyrir ævin-
týragjarna áhorfendur.
Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Ærslafull sýning sem
hittir beint í mark.
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N u D a G u r22 m e N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ðMenning