Fréttablaðið - 14.09.2015, Side 17
LENNY HANNAR
Tónlistarmaðurinn Lenny Kravitz er hugmynda-
smiðurinn nýrrar húsgangalínu í anda áttunda
áratugarins. Línuna hannaði hann í samstarfi
við CB2 fyrirtækið frá Chicago en í henni eru 20
hlutir. Til dæmis lampar, veggskraut, mottur,
púðar og húsgögn.
Askurinn er mastersverkefni mitt í hönnun við LHÍ. Námið snérist um sjálfbærni, umhverfi og með-
vitund og mín nálgun var á viðbrögð
við fjöldaframleiddum mat og einnota
umbúðum. Matarílátið er tákn fyrir
tengingu sem ég hef áhuga á, að tengja
saman staðbundna fæðu og ferðir, að
hægt sé að ferðast og kaupa mat beint
í askinn,“ útskýrir Björg Vilhjálmsdóttir
hönnuður en hún er einn þeirra ís-
lensku hönnuða sem hafa sótt innblást-
ur í menningararfinn.
Form og notagildi asksins heillaði
Björgu. Hún hannaði því matarílát með
skírskotun í hann en hún segir gamla
askinn í raun hafa verið úthugsaðan.
„Askurinn var afar vel hannaður á
sínum tíma, upp úr mikilli neyð og fá-
tækt. Í askinum voru tvö hólf, lok og
bumba, eitt fyrir blautmatinn og annað
fyrir þurrmat. Fólk gat setið með hann
í kjöltu sér og matast. Mér finnst einn-
ig fallegt hvernig hver bar ábyrgð á
sínum aski, fólk fékk matinn sinn í hann
og borðaði eins og það vildi og lokaði
FORN MATARÍLÁT
VORU INNBLÁSTUR
HÖNNUN Íslenskir hönnuðir sækja gjarnan innblástur í menningararfinn,
sagnahefðina eða íslenska náttúru. Björg Vilhjálmsdóttir er einn þeirra en ís-
lenski askurinn varð henni innblástur í mastersnámi.
BEINT FRÁ BÓNDA „Ég sé fyrir mér að þetta þróist út í heimasíðu eða app þar sem fólk gæti séð hvar næsti staður er þar sem hægt
er að kaupa eitthvað beint í askinn.“
12v 0,8A 12v 5,5A
Sporthúsinu / Dalsmári 9-11 / 201 Kópavogur / www.kpi.is
Hryggurinn þinn er
grunnur að góðri heilsu.
Láttu ekki verki og óþægindi
koma í bakið á þér.
Kírópraktorarnir Bobby og Jeannie hafa
hafið störf hjá Kírópraktorstofu Íslands.
Tímapantanir í síma 527 2277.
Magni Jeannie Bobby Guðmundur Jón Arnar
ÚTIVISTARKONA
Björg ólst upp við ferða-
lög og í verkefninu sam-
einaði hún göngumann-
inn og hönnuðinn.